Dómsmálaráðherra leggur til sjö konur og átta karla í Landsrétt

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra hefur lagt fram sína til­lögu að skipan dóm­ara við Lands­rétt. Tillagan er nokkuð breytt frá til­lögu dóm­nefndar, og meðal ann­ars eru fleiri konur á list­anum.

Sigríður Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra hefur lagt fram til­lögu sína að dóm­urum við Lands­rétt, sem á að taka til starfa í byrjun næsta árs. Sigríður leggur til við Alþingi að sjö konur og átta karlar taki sæti sem dóm­arar. Málið fer til umfjöll­unar í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd Alþingis.

„Sú veit­ing emb­ætta sem liggur fyrir fyrir dóms­mála­ráð­herra er án for­dæma. Er aug­ljós­lega ein­stakt að skipa þurfi fimmtán dóm­ara í senn við stofnun nýs dóm­stóls. Umsækj­endur hafa fjöl­breyttan bak­grunn. Að mati dóms­mála­ráð­herra er það jákvætt og gefur til­efni til þess að huga sér­stak­lega að yfir­bragði hins nýja dóm­stóls með til­liti til þeirrar þekk­ingar og reynslu sem þar verður,“ segir í bréfi Sigríðar til Unnar Brár Kon­ráðs­dóttur, for­seta Alþingis. 

Tillaga Sigríðar er tölu­vert frá­brugðin þeirri til­lögu sem dóm­nefnd lagði fram fyrir ráð­herr­ann fyrr í þessum mán­uði. Fjórir ein­stak­lingar, sem nefndin lagði til að yrðu dóm­arar, kom­ast ekki á lista Sigríðar. Það eru þeir Ástráður Har­alds­son, Eiríkur Jónsson, Jóhannes Rúnar Jóhanns­son og Jón Hösk­ulds­son. Í þeirra stað koma Arn­fríður Ein­ars­dóttir, Ásmundur Helgason, Jón Finn­björns­son og Ragn­heiður Braga­dóttir.

Kjarninn greindi frá þeirri til­lögu, eins og lesa má hér. Dóm­nefndin lagði til fimmtán nöfn, sem fara hér á eftir.

  1. Aðal­steinn E. Jón­as­son hæsta­rétt­ar­lög­maður
  2. Ást­ráður Har­alds­son hæsta­rétt­ar­lög­maður
  3. Davíð Þór Björg­vins­son pró­­fessor við laga­­deild Háskóla Íslands
  4. Eiríkur Jóns­son pró­­fessor við laga­­deild Háskóla Íslands
  5. Her­vör Þor­valds­dóttir hér­aðs­dóm­ari
  6. Ing­veldur Ein­ars­dóttir settur hæsta­rétt­ar­dóm­ari
  7. Jóhannes Rúnar Jóhanns­son hæsta­rétt­­ar­lög­­maður
  8. Jóhannes Sig­urðs­son hæsta­rétt­­ar­lög­­maður
  9. Jón Hösk­ulds­son hér­­aðs­­dóm­­ari
  10. Krist­björg Steph­en­sen borg­ar­lög­maður
  11. Oddný Mjöll Arn­ar­dótt­ir pró­­fessor við laga­­deild Háskóla Íslands
  12. Ragn­heiður Harð­ar­dótt­ir hér­­aðs­­dóm­­ari
  13. Sig­urður Tómas Magn­ús­son atvinn­u­lífs­­pró­­fessor við laga­­deild Háskól­ans í Reykja­vík
  14. Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son hæsta­rétt­­ar­lög­­maður
  15. Þor­geir Ingi Njáls­son, dóm­stjóri við Hér­aðs­dóm Reykja­ness.

Dóm­nefndin til­greindi sam­tals tólf þætti sem hún lagði til grund­vallar nið­ur­stöðu sinni. Reynsla af dóm­ara­störfum er þar lögð að jöfnu við reynslu af lög­manns­störfum og störfum í stjórn­sýsl­unni. Sam­an­lögð reynsla af fræði­störfum og kennslu ásamt menntun þá vegur það jafn þurngt og hinir þrír fyrr­greindu þættir. Mats­þættir er lúta að stjórn þing­halda, samn­ingu og ritun dóma og almennrar starfs­hæfni eru hins vega látnir liggja milli hluta, þar sem ekki er gert upp á milli umsækj­enda hvað þá þætti varðar. Reynsla dóm­ara fái því ekki það vægi sem til­efni er til.

Nefndin taldi ekki rétt að bregða út frá venj­unni við vægi ákveð­inna þátta, og taldi að þeir fimmtán sem hún valdi hafi verið hæf­astir. Munur hafi verið á hæfni þess sem var í fimmt­ánda sæti og þess sem á eftir kom.

Ráðherra segir í bréfi sínu að mat á hæfni umsækj­enda sé alltaf vanda­samt. „Eina ófrá­víkj­an­lega krafan sem hlýtur að vera gerð er að til emb­ætt­is­ins velj­ist hæfir ein­stak­lingar og að þeir búi yfir kostum sem renni raun­veru­legum stoðum undir hið mik­il­væga starf sem fram innan rétt­ar­ins í sam­starfi við aðra sem þar starfa.“ Matið verði aldrei vél­rænt.

Eftir að hafa farið yfir öll gögn máls­ins er það nið­ur­staða Sigríðar að fleiri umsækj­endur hafi komið til greina, alls 24 umsækj­endur.

  1. Aðal­steinn E. Jónasson, hæsta­rétt­ar­lög­maður
  2. Arn­fríður Ein­ars­dóttir, hér­aðs­dóm­ari
  3. Ásmundur Helgason, hér­aðs­dóm­ari
  4. Davíð Þór Björg­vins­son, pró­fessor við laga­deild Háskóla Íslands
  5. Hervör Þor­valds­dóttir, hér­aðs­dóm­ari
  6. Ing­veldur Ein­ars­dóttir, settur hæsta­rétt­ar­dóm­ari
  7. Jóhannes Sig­urðs­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður
  8. Jón Finn­björns­son, hér­aðs­dóm­ari
  9. Krist­björg Steph­en­sen, borg­ar­lög­maður
  10. Oddný Mjöll Arn­ar­dóttir, pró­fessor við laga­deild Háskóla Íslands
  11. Ragn­heiður Braga­dóttir, hér­aðs­dóm­ari
  12. Ragn­heiður Harð­ar­dóttir, hér­aðs­dóm­ari
  13. Sigurður Tómas Magn­ús­son, atvinnu­lífs­pró­fessor við laga­deild Háskól­ans í Reykja­vík
  14. Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður
  15. Þorgeir Ingi Njálsson, dóm­stjóri við Hér­aðs­dóm Reykja­ness
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár