Fimm konur og tíu karlar verði dómarar við Landsrétt

Búið er að velja fimmtán ein­stak­linga sem þykja hæf­astir í emb­ætti dóm­ara við Lands­rétt, sem tekur til starfa í upp­hafi næsta árs, en Alþingi þarf að sam­þykkja skipun þeirra. Fjórir dóm­arar, pró­fess­orar og borg­ar­lög­maður eru meðal þeirra.

Sigríður Andersen er dómsmálaráðherra.
Sigríður Andersen er dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hér­aðs­dóm­arar, einn settur hæsta­rétt­ar­dóm­ari, borg­ar­lög­maður og fjórir pró­fess­orar í lög­fræði eru meðal þeirra sem verða skipuð dóm­arar við nýjan Lands­rétt, milli­dóms­stig sem tekur til starfa í upp­hafi næsta árs, ef Alþingi sam­þykkir skipun þeirra.

[links]Listi yfir þá fimmtán ein­stak­linga sem þóttu hæf­astir af nefnd­inni sem metur hæfi dóm­ara hefur verið birtu, en 37 sóttu um þegar aug­lýst var í febr­úar. Fimm konur og tíu karlar munu skipa dóm­ara­emb­ættin í Lands­rétti, en fjórtán konur og 23 karlar sótt­ust eftir emb­ættum. Mikil umræða skap­að­ist um það í vetur hvort setja ætti ákvæði um jafna stöðu kvenna og karla í laga­texta um Lands­rétt, en meiri­hluti alls­herjar- og mennta­mála­nefndar Alþingis taldi það óþarft þar sem þegar væri skýrt að ráð­herra þurfi að fara að jafn­rétt­islögum.

Alþingi mun fá list­ann til sín og skipa dóm­ar­ana.

Eft­ir­töld eru á list­anum:

  1. Aðal­steinn E. Jónasson hæsta­rétt­ar­lög­maður
  2. Ástráður Har­alds­son hæsta­rétt­ar­lög­maður
  3. Davíð Þór Björg­vins­son pró­fessor við laga­deild Háskóla Íslands
  4. Eiríkur Jónsson pró­fessor við laga­deild Háskóla Íslands
  5. Hervör Þor­valds­dóttir hér­aðs­dóm­ari
  6. Ing­veldur Ein­ars­dóttir settur hæsta­rétt­ar­dóm­ari
  7. Jóhannes Rúnar Jóhanns­son hæsta­rétt­ar­lög­maður
  8. Jóhannes Sig­urðs­son hæsta­rétt­ar­lög­maður
  9. Jón Hösk­ulds­son hér­aðs­dóm­ari
  10. Krist­björg Steph­en­sen borg­ar­lög­maður
  11. Oddný Mjöll Arn­ar­dóttir pró­fessor við laga­deild Háskóla Íslands
  12. Ragn­heiður Harð­ar­dóttir hér­aðs­dóm­ari
  13. Sigurður Tómas Magn­ús­son atvinnu­lífs­pró­fessor við laga­deild Háskól­ans í Reykja­vík
  14. Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son hæsta­rétt­ar­lög­maður
  15. Þorgeir Ingi Njálsson, dóm­stjóri við Hér­aðs­dóm Reykja­ness

Uppfært: Dóms­mála­ráðu­neytið vill koma því á fram­færi að nefnd um hæfni umsækj­enda hafi ekki lokið störfum. Þá hafi nefndin ekki skilað dóms­mála­ráð­herra skýrslu sinni um málið og ekki sé hægt að segja til um hvenær hún lýkur verk­efn­inu. Listinn sem Kjarninn birtir er engu að síður sá listi sem nefndin komst að nið­ur­stöðu um og sendi á umsækj­endur. Þeir hafa nú tíma til að koma athuga­semdum sínum á fram­færi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

dómstólar

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár