Í þá tíð… Forsetaraunir fyrri tíðar

Talsvert hefur hitnað undir Banda­ríkja­for­seta upp á síðkastið, en þrátt fyrir umræðu um að hann muni jafn­vel ekki ljúka kjör­tíma­bil­inu er óvíst hvernig fer. Sögu­bækur geyma tvö til­felli um ákæru gegn for­seta vegna brota í starfi, en hvor­ugt gekk í gegn.

Það er fátt gott að frétta af Donald Trump þessa dagana. Óvíst er þó hvort hann verði ákærður af þinginu.
Það er fátt gott að frétta af Donald Trump þessa dag­ana. Óvíst er þó hvort hann verði ákærður af þing­inu. Mynd: EPA

Það er ekki ofsögum sagt að for­seta­tíð Donalds Trump hafi verið tals­vert brokk­geng það sem af er. Þrátt fyrir fögur (og all­nokkur veru­lega ófögur) fyr­ir­heit hefur honum orðið fátt úr verki nema að und­ir­byggja þær efa­semdir sem flestir höfðu um hæfi hans í emb­ætti.

Fyrir utan að hafa verið gerður aft­ur­reka með bann við komum fólks frá sér­völdum löndum þar sem múslimar eru í meiri­hluta og áætl­anir sínar um að byggja tröll­vax­inn múr við suð­ur­mæri lands­ins, hlað­ast upp grun­semdir um hvort Trump og hans fólk hafi mögu­lega brotið lög í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna í fyrra.

Nú þykir ljóst að nokkrir af hans helstu trún­að­ar­mönnum voru í sam­bandi við rúss­neska aðila, og er jafn­vel talið að ein­hverjir þeirra hafi lagt á ráðin með Rússum til að koma höggi á Hillary Clinton, mót­fram­bjóð­anda Trumps.

And­stæð­ingar Trumps hafa verið ósparir á yfir­lýs­ingar um svik, lygar, vald­níðslu og land­ráð og á þingi hafa sumir demókratar kallað eftir því að hann verði ákærður fyrir brot í emb­ætti og settur af (impeachment) eins og stjórn­ar­skráin leyfir.

Enn sem komið er þykir það harla ólík­legt að slíkt fari í gang á næst­unni og for­ysta demókrata vill bíða og sjá hvað kemur út úr rann­sókn­unum á afskiptum Rússa af kosn­ing­unum, en kann­anir sína að fleiri Banda­ríkja­menn eru fylgj­andi því að ákæra verði lögð fram á hendur honum en eru mót­fallnir. Þá eru uppi fréttir um að lög­fræð­ingar í Hvíta hús­inu séu farnir að kynna sér hvernig ferlið virkar og hvernig sé best að verj­ast. Hverju sem fram vindur, má vitna í Keith E. Whittington, stjórn­mála­fræði­pró­fessor við Princeton:

Tvisvar reynt en hvorug tilraunin tókst – Nixon „slapp“

Í sögu banda­rískra stjórn­mála hefur tvisvar verið reynt að koma for­seta frá með því að ákæra fyrir brot í emb­ætti.

Síðast var það Bill Clinton sem mátti standa fyrir máli sínu frammi fyrir þing­inu árið 1998 fyrir mein­særi og að hindra fram­gang rétt­vís­innar í Lewinski-mál­inu sem tröll­reið banda­rísku þjóð­lífi um ára­bil, (og Trump var svo vænn að end­ur­lífga í kosn­inga­bar­átt­unni).

Clinton sagð­ist, fyrir rétti, aldrei hafa átt í kyn­ferð­is­legu sam­bandi við Lewinski, en sú full­yrð­ing reynd­ist síðar vera röng eins og allir vita. Repúblikanar á þingi þótt­ust þar hafa höndlað gullið tæki­færi til að bola for­set­anum í burtu, en þrátt fyrir ákafa og harða bar­áttu náðu þeir ekki að safna saman þeim 2/3 atkvæða sem til þarf til að setja for­set­ann af.

Fyrsti for­set­inn sem mátti bera af sér sakir í ákæru til emb­ætt­is­missis var Andrew Johnson, árið 1868. Johnson var vara­for­seti Abrahams Lincoln en sett­ist í for­seta­stól eftir að Lincoln var ráð­inn af dögum.

Bak­grunnur Johnsons var sér­stakur því að hann var eini öld­unga­deild­ar­þing­maður upp­reisn­ar­ríkj­anna í suðri, sem sögðu sig úr ríkja­sam­band­inu árið 1861, sem hélt tryggð við sam­bandið.

Eftir að Johnson tók við, gerði hann samn­ing við Suð­ur­ríkin um end­ur­reisn, sem þótti þeim afar hag­stæður. Þau fengu með honum full ríkja­rétt­indi á meðan þau fengu að setja sér lög um rétt­indi svartra sem afmnámu þræla­hald aðeins að nafni til.

Af þessum ástæðum, og öðrum, tróð Johnson illsakir við rót­tæk­ari öfl, sem voru fylgj­andi afnámi þræla­halds, bæði á þingi og í hans eigin rík­is­stjórn. Til að tempra völd hans setti þingið lög sem áttu að koma í veg fyrir að for­seti gæti rekið emb­ætt­is­menn sem öld­unga­deildin hafði stað­fest, án sam­þykkis deild­ar­innar.

---- Hæ @Pallih! ----

Johnson fór þvert á þessi nýju lög með því að reka Edward Standon her­mála­ráð­herra, sem var stækur and­stæð­ingur þræla­halds. Stanton tók því ekki þegj­andi og læsti sig inni á skrif­stofu sinni á meðan þing­heimur hóf mála­rekstur gegn Johnson. For­set­inn var ákærður í febr­úar 1868, en, líkt og með Clinton síðar, fékkst ekki nægur meiri­hluti til að sak­fella hann, þótt það hafi staðið ansi tæpt. Sumir lyk­il­menn kusu gegn sak­fell­ingu, ekki til að verja Johnson, heldur til að standa vörð um skipt­ingu rík­is­valds­ins og rétt for­set­ans til að vera ósam­mála þing­inu.

Johnson lauk kjör­tíma­bil­inu, en hlaut ekki til­nefn­ingu demókrata til að verða for­seta­efni þeirra síðar sama ár.

Alræmd­asti for­set­inn í sögu Banda­ríkj­anna, og sá eini sem hefur horfið úr stóli fyrir lok kjör­tíma­bils lif­andi lífs, er Richard Nixon. Eins og alkunna er, braut Nixon gróf­lega af sér í emb­ætti þar sem hann reyndi að hylma yfir með glæp sem und­ir­menn hans frömdu.

Ákæru­ferlið var hafið og Nixon hugð­ist standa fyrir máli sínu, en eftir að upp­tökur af fundi hans með aðstoð­ar­manni, þar sem fram kom að hann hafði sann­ar­lega lagt á ráðin um að stöðva rann­sókn­ina, var ljóst að hann hafði ekki stuðn­ing á þingi. Áður en til þess kom að hann væri settur af, sagði hann af sér og Gerald Ford vara­for­seti tók við.

Hvað gerist ef forseti er settur af?

Allt of snemmt er að spá fyrir um hvort Trump verði ákærður, enda er alls óvíst að nægur fjöldi repúblik­ana muni kjósa gegn sínum manni, jafn­vel þó að yfir­stand­andi rann­sókn muni koma illa út fyrir for­set­ann.

Ef svo færi, myndi Mike Pence vara­for­seti taka við völdum, en næstir í gogg­un­ar­röð­inni eru for­seti full­trúa­deild­ar­innar, Paul Ryan, þar á eftir vara­for­seti öld­unga­deild­ar­innar (Vara­for­set­inn Pence er for­seti öld­unga­deild­ar­innar), en Orrin Hatch gegnir því emb­ætti. Rex Tiller­son utan­rík­is­ráð­herra kemur honum næst.

[box]

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

íþátíð

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár