Vill leikskóla frá níu mánaða aldri

Fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins segir rann­sóknir sýna að barn­eignir hafi jákvæð áhrif á laun karla en ekki kvenna. Þessu þurfi að breyta.

Fram­kvæmda­stjóri Samtaka atvinnu­lífs­ins, Halldór Benjamín Þor­bergs­son, segir að lík­lega sé örugg dag­vist­un­ar­úr­ræði frá níu mán­aða aldri barna besta leiðin til að stuðla að auknu launa­jafn­rétti og meiri mögu­leikum fyrir konur í atvinnu­líf­inu.

Þetta kemur fram í grein sem Halldór Benjamín skrifar í Morg­un­blaðið í dag.

„Barn­eignir hafa jákvæð áhrif á laun karla en nei­kvæð áhrif á laun kvenna. Þetta sýna rann­sóknir en þessu má breyta. Með því að auka dag­vist­un­ar­þjón­ustu frá því að fæð­ing­ar­or­lofi lýkur og þar til leik­skóla­vist hefst má jafna stöðu kynj­anna á vinnu­mark­aði. Einnig yrði þetta til að draga úr launa­mun kynj­anna, auka hlut kvenna í stjórn­un­ar­stöðum og gera þeim kleift að sækja fram á fleiri sviðum en nú er. Til að brúa bilið sem nú er til staðar neyð­ast for­eldrar oft til að taka launa­laust leyfi frá störfum. Reynslan sýnir að sú byrði lendir oftar á konum sem þar af leið­andi verða af tæki­færum á vinnu­mark­aði og drag­ast aftur úr varð­andi starfs­fram­vindu og laun sam­an­borið við karl­menn,“ segir Halldór Benjamín.

Hann segir að Samtök atvinnu­lífs­ins leggi mikla áherslu á að það stuðla að jafn­rétti á vinnu­mark­aði. Það sé ekki eftir neinu að bíða. Nú þurfi stjórn­mála­menn­irnir að taka við. „Samtök atvinnu­lífs­ins munu ekki láta sitt eftir liggja ef vilji er til að stíga alvöru skref til að auka jafn­rétti kynj­anna. Örugg dag­vist­un­ar­úr­ræði frá níu mán­aða aldri eru senni­lega öfl­ug­asta verk­færi sam­fé­lags­ins gegn launa­mun kynj­anna. Yfir til ykkar, stjórn­mála­menn,“ segir í grein­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár