Ríkisstjórnin sagði 70 milljarðar – Raunveruleikinn er 31 milljarður

Þegar Leið­rétt­ingin var kynnt átti hún að lækka hús­næð­is­lán um 150 millj­arða. Þar af áttu 70 millj­arðar að koma til vegna nýt­ingu sér­eign­ar­sparn­aðar. Nú þegar tveir mán­uðir eru eftir hafa lands­menn nýtt 31 millj­arð. Samtals er lækkun lána 103 millj­arðar.

Bjarni Benediktsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson kynntu Leiðréttinguna.
Bjarni Bene­dikts­son og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son kynntu Leið­rétt­ing­una. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Í mars 2014 var Leið­rétt­ingin, stærsta mál síð­ustu rík­is­stjórnar, kynnt með við­höfn í Hörpu. Í kynn­ing­unni kom fram að heild­ar­um­fang hennar yrði 150 millj­arðar króna. Það átti að greiða 80 millj­arða króna úr rík­is­sjóði til hluta þeirra sem voru með verð­tryggð hús­næð­is­lán á árunum 2008 og 2009 með því að lækka höf­uð­stól hús­næð­is­lána þeirra. Hinir 70 millj­arð­arnir áttu að koma til vegna þess að Íslend­ingum yrði kleift að nota sér­eign­ar­líf­eyr­is­sparn­að­inn sinn skatt­frjálst til að greiða niður hús­næð­is­lán í þrjú ár, frá miðju ári 2014 of fram til júníloka 2017. Þegar liggur fyrir að nið­ur­greiðslu­upp­hæðin sem kom úr rík­is­sjóði varð ekki 80 millj­arðar heldur 72,2 millj­arðar króna. Og hún fór að að mestu til tekju­hærri og eign­ar­meiri hópa sam­fé­lags­ins.

[links]

Nú eru ein­ungis tveir mán­uðir þar til upp­haf­lega tíma­bilið þar sem heim­ilað var að nota sér­eign­ar­sparnað til að greiða niður hús­næð­is­lán er liðið. Það hefur reyndar verið fram­lengt til júníloka 2019, en sú fram­leng­ing lá ekki fyrir árið 2014 þegar 70 millj­arða króna talan var sett fram í kynn­ingum þáver­andi rík­is­stjórnar.

Kjarninn kall­aði eftir upp­lýs­ingum um hversu miklu Íslend­ingar hefðu ráð­stafað af sér­eign­ar­sparn­aði sínum inn á hús­næð­is­lán sín. Í svörum fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins, sem byggja á upp­lýs­ingum frá rík­is­skatt­stjóra, kemur fram að í lok mars 2017, þremur mán­uðum áður en upp­haf­lega heim­ildin átti að renna út, hefðu ein­stak­lingar ráð­stafað 31,2 millj­arði króna af sér­eigna­sparn­aði sínum inn á lán þegar tekið er til­lit til fram­lags vinnu­veit­enda. Það vantar því tæp­lega 40 millj­arða króna upp á að sú tala sem þáver­andi rík­is­stjórn full­yrti í Hörpu að myndi nást með greiðslu sér­eign­ar­sparn­aðar inn á hús­næð­is­lán.

[adspot]

Þegar Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son og Bjarni Bene­dikts­son kynntu nið­ur­stöður skulda­leið­rétt­ing­ar­innar í nóv­em­ber 2014 sagði m.a. í frétta­til­kynn­ingu: „Leið­rétt­ingin lækkar höf­uð­stól íbúða­lána um 150 millj­arða króna á næstu 3 árum og við full­nýt­ingu leið­rétt­ingar lækkar höf­uð­stóll íbúða­lána um 20 pró­sent.“ Ljóst er að því fer fjarri en þessi full­yrð­ing hafi stað­ist. Sam­an­lagt nemur höf­uð­stólslækk­unin – sem er að fullu útgreidd – og nýt­ing sér­eign­ar­sparn­aðar 103,4 millj­örðum króna, eða rétt rúm­lega tveimur þriðja af þeirri upp­hæð sem lofað var í röð kynn­inga í Hörpu fyrir þremur árum síðan.

150 millj­arðar króna urðu því að 103,4 millj­örðum króna. Sú tala getur hækkað lít­il­lega á næstu tveimur mán­uðum en ljóst er að hún verður fjarri því sem full­yrt var að myndi koma út úr aðgerð­unum.

Ómarktækt mat og óábyrg framsetning

70 millj­arða króna talan sem for­kólfar þáver­andi rík­is­stjórnar full­yrtu að myndi skila sér til nið­ur­greiðslu höf­uð­stóls í gegnum nýt­ingu sér­eign­ar­sparn­aðar er komin úr skýrslu sér­fræð­inga­hóps um höf­uð­stólslækkun, sem skil­aði af sér í nóv­em­ber 2013 og var stýrt af Sigurði Hann­essyni. Á meðal ann­arra sem sátu í þeim hópi var Lilja Alfreðs­dóttir, núver­andi vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Ljóst er af lestri skýrsl­unnar að talan byggir ekki á mjög ítar­legu mati, enda segir í skýrsl­unni að matið sé „háð nokk­urri óvissu“.

Þegar frum­varpið um úrræðið var lagt fram kom fram í grein­ar­gerð að reiknað væri með að 56 þús­und fjöl­skyldur myndu nýta sér sér­eign­ar­sparnað til að greiða niður hús­næð­is­skuldir. Þá hafði talan sem sam­tals myndi renna til verks­ins lækkað úr 70 millj­örðum króna í 61,4 millj­arða króna, en sú lækkun var ekki kynnt sér­stak­lega og rík­is­stjórnin gerði engar til­raunir til að leið­rétta fyrri fram­setn­ingu.

Reyndar er það svo að í frum­varp­inu eru settar fram nokkrar sviðs­myndir þar sem umfang sér­eign­ar­sparn­að­ar­að­gerð­ar­innar er reiknað út frá mögu­legri þátt­töku. Sú svartasta af þeim gerir ráð fyrir að ein­ungis 43 þús­und fjöl­skyldur taki þátt í aðgerð­inni og að það skili sam­tals 47 millj­arða króna lækkun.

Veru­leik­inn hefur síðan reynst allt annar. Mest var nýt­ingin á úrræð­inu á árinu 2016, þegar 25.402 ein­stak­lingar, ekki fjöl­skyldur, nýttur sér það. Og sam­tals hafa þeir sem nýtt hafa sér úrræðið greitt 31,4 millj­arða króna inn á hús­næð­is­lánin sín. Það er um 45 pró­sent af þeirri upp­hæð sem kynnt var á Hörpu­fund­unum með Sigmundi Davíð og Bjarna og 67 pró­sent af svört­ustu sviðs­mynd­inni sem dregin var upp í frum­varp­inu sem lagt var fram til að færa úrræðið í lög.

Tekjuhærri miklu líklegri til að spara séreign

Það vekur ef til vill furðu að svo fáir nýti sér úrræði sem felur aug­ljós­lega í sér mik­inn ávinn­ing. Ríkið er að heim­ila fólki að nota sér­eigna­sparn­að­inn sinn skatt­frjálst til að greiða niður hús­næð­is­lán. Ef fólk notar sparn­að­inn ekki með þessum hætti þarf það að greiða skatt af honum. Þess utan er sér­eigna­sparn­aður þess eðlis að ein­stak­ling­ur­inn greiðir sjálfur hluta hans en fær við­bót­ar­fram­lag frá atvinnu­rek­anda á móti, sem félli ann­ars ekki til. Því er um tvö­faldan ávinn­ing að ræða: ann­ars vegar fullan skatta­af­slátt af nýt­ingu fjár­muna sem ann­ars yrðu skatt­lagðir og hins vegar launa­hækkun sem kæmi ekki til nema við­kom­andi safni sér í sér­eign­ar­sparnað.

Í svörum fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans kemur fram að af þeim 31,2 millj­örðum króna sem ráð­stafað hefur verið af sér­eign­ar­sparn­aði inn á höf­uð­stól hús­næð­is­lána hafi eigið fram­lag launa­manna verið 20,1 millj­arðar króna en fram­lag vinnu­veit­enda um 11,1 millj­arðar króna. Rúmlega þriðj­ungur þess er því fé sem kemur frá vinnu­veit­anda sem ekki stæði til boða nema að við­kom­andi væri að leggja fyrir sér­eign­ar­sparnað.

Af hverju eru þá ekki fleiri að nýta sér þetta kosta­boð? Lík­leg­asta skýr­ingin er sú að ansi margir telja sig ekki hafa svig­rúm til þess. Sér­eigna­sparn­aður fer nefni­lega mjög eftir tekjum. Í skýrslu sér­fræð­inga­hóps­ins, sem minnst var á hér að ofan, kom fram að með­al­launa­tekjur fjöl­skyldna sem spör­uðu í sér­eign og skuld­uðu í fast­eign væri miklu hærri en með­al­launa­tekjur þeirra sem spara ekki. „Almennt eru tekjur þeirra sem spara í sér­eigna­líf­eyr­is­sparn­aði mun hærri en hinna sem ekki gera það,“ segir orð­rétt í skýrsl­unni. Og þar er bætt við að „tekju­mis­munur þeirra sem spara og gera það ekki er mik­ill á öllum aldri. Hér er alls staðar átt við fast­eigna­eig­endur sem skulda eitt­hvað í fast­eign­inni.“

Því liggur fyrir að nýt­ing sér­eign­ar­sparn­aðar til nið­ur­greiðslu hús­næð­is­lána, og skatt­leysið sem henni fylgir, er úrræði sem nýt­ist mun betur tekju­hærri hópum sam­fé­lags­ins en þeim sem eru með lægri tekjur. Alveg eins og nið­ur­færsla á höf­uð­stól verð­tryggðra lána gerði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiðréttingin

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Leið­rétt­ingin er þjóð­ar­skömm

Skýrsla um skipt­ingu Leið­rétt­ing­ar­innar, 72,2 millj­arða króna milli­færslu úr rík­is­sjóði til hluta lands­manna, var loks­ins birt í gær. Fyrri upp­lýs­ingar um aðgerð­ina höfðu ein­ungis sýnt skipt­ingu hennar milli þeirra hópa sem hana þáðu, ekki á milli allrar þjóð­ar­innar. 19 mán­uðir eru síðan að beðið var um skýrsl­una á Alþingi. Vítavert er að skýrslan hafi ekki verið birt á síð­asta kjör­tíma­bili,...
Fréttirleiðréttingin

Spurn­ingum um Leið­rétt­ing­una enn ósvarað

Enn bólar ekk­ert á skýrslu frá Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra um frek­ari upp­lýs­ingar um það hvernig Leið­rétt­ingin svo­kall­aða skipt­ist á milli fólks, þrátt fyrir að meira en ár sé liðið frá því að níu stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn lögðu fram beiðni um skýrsl­una. Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri-grænna, vakti athygli á þessu á þingi í morgun. „Þessar upp­lýs­ingar hljóta að liggja fyrir og hæstv. ráð­herra...
Fréttirleiðréttingin

Hafa enn ekki svarað spurn­ingum um Leið­rétt­ing­una

Vinna við seinni skýrslu Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um nið­ur­færslu verð­tryggðra lána stendur enn yfir sjö mán­uðum eftir að beiðni um hana var lögð fram og sam­þykkt á Alþingi. Ekki hefur verið hægt að fá upp­lýs­ingar um hvernær skýrslan verður til­búin en sam­kvæmt svörum ráðu­neyt­is­ins verður hún send Alþingi um leið og það ger­ist. Aðgerðin fól í sér milli­færslu...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár