Hafa enn ekki svarað spurningum um Leiðréttinguna

Skuldaleiðréttingin, sem felur í sér millifærslu á 80 milljörðum króna til hluta Íslendinga, var kynnt í nóvember 2014. Enn er beðið svara við því hvernig hún skiptist.
Skulda­leið­rétt­ingin, sem felur í sér milli­færslu á 80 millj­örðum króna til hluta Íslend­inga, var kynnt í nóv­em­ber 2014. Enn er beðið svara við því hvernig hún skipt­ist. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Vinna við seinni skýrslu Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um nið­ur­færslu verð­tryggðra lána stendur enn yfir sjö mán­uðum eftir að beiðni um hana var lögð fram og sam­þykkt á Alþingi. Ekki hefur verið hægt að fá upp­lýs­ingar um hvernær skýrslan verður til­búin en sam­kvæmt svörum ráðu­neyt­is­ins verður hún send Alþingi um leið og það ger­ist. Aðgerðin fól í sér milli­færslu á um 80 millj­örðum króna úr rík­is­sjóði til hluta þeirra Íslend­inga sem voru með verð­tryggð lán á árunum 2008 og 2009.

Tíu þing­menn stjórn­ar­and­stöð­unnar ósk­uðu í októ­ber í fyrra sam­eig­in­lega eftir nýrri skýrslu um nið­ur­færslu verð­tryggðra fast­eigna­lána, hina svoköll­uðu leið­rétt­ingu, þar sem skýrsla Bjarna Bene­dikts­son­ar, sem skilað var til Alþingis í lok júní 2015 hafi ekki svarað öllum þeim spurn­ingum sem hún átti að gera. Þetta er í annað sinn sem þing­menn­irnir ósk­uðu eftir nýrri skýrslu. Það gerðu þeir fyrst í júlí 2015. Beiðni þing­mann­anna var hins vegar ekki sam­þykkt á Alþingi þá og þar af leið­andi var ekki verið hægt að svara henni. Seinni beiðnin var hins vegar sam­þykkt 20. októ­ber 2015.

Þing­menn­irnir tíu fóru meðal ann­ars fram á að fá að vita hvernig heild­ar­upp­hæð leið­rétt­ing­ar­inn­ar, um 80,4 millj­örðum króna, skipt­ist eftir tekjum á milli allra fram­telj­enda árið 2014, hvort sem þeir nutu lækk­unar eða ekki og hvernig heild­ar­upp­hæðin dreif­ist á milli allra fram­telj­enda eftir hreinum eign­um.

Í grein­ar­gerð sem fylgdi beiðn­inni segir að Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, hafi lagt fram fyr­ir­spurn í 15 liðum um nið­ur­færslu verð­tryggðra fast­eigna­lána 11. nóv­em­ber 2014. Þar segir enn­frem­ur: „Tæpum mán­uði seinna barst „svar“ fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra þar sem engri spurn­ingu var svarað efn­is­lega en svörum lofað á vor­þingi með fram­lagn­ingu sér­stakrar skýrslu ráð­herra um aðgerð­ina. Málið olli nokkru upp­námi á Alþingi og svar­aði ráð­herra í kjöl­farið fimm af 15 spurn­ingum þing­manns­ins 29. jan­ú­ar. Beðið var eftir frek­ari svörum í fimm mán­uði til við­bótar og 29. júní sl. birti fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra svo loks skýrslu sína um lækkun höf­uð­stóls verð­tryggðra hús­næð­is­veð­lána (809. mál). ­Skýrslan svarar því miður ekki öllum þeim spurn­ingum sem settar voru fram í fyr­ir­spurn Katrínar Jak­obs­dóttur tæpum átta mán­uðum áður. Sér­stak­lega vantar svör við 1., 2. og 3. tölul. fyr­ir­spurn­ar­innar og er hér leit­ast við að fá loks­ins svör við þessum spurn­ing­um. Að auki er farið fram á upp­lýs­ingar um hlut­fall skulda­nið­ur­færsl­unnar eftir eigna­stöðu og eftir tekjum miðað við árið 2014, en upp­lýs­ingar þar að lút­andi ættu nú í sumar að geta verið unnar úr skatt­fram­tölum fyrir það ár.“

Spurn­ing­arnar fimm sem stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn­irnir vilja fá svör við eru eft­ir­far­andi:

  1. Hvernig skipt­ist heild­ar­upp­hæð þeirrar fjár­hæðar sem varið hefur verið til lækk­unar verð­tryggðra fast­eigna­veð­lána ein­stak­linga milli beinnar höf­uð­stólslækk­unar á fast­eigna­veð­lánum ein­stak­linga og frá­drátt­ar­liða, svo sem fast­eigna­veð­krafna án veð­trygg­inga, van­skila og greiðslu­jöfn­un­ar­reikn­inga?
  2. Hverjir eru frá­drátt­ar­lið­irnir og hver er skipt­ingin milli þeirra í krónum talið?
  3. Hvert er heild­ar­hlut­fall beinnar höf­uð­stólslækk­un­ar, þ.e. lækk­unar höf­uð­stóls að und­an­skildum frá­drátt­ar­lið­um, af verð­tryggðum fast­eigna­veð­lán­um?
  4. Hvernig dreif­ist heild­ar­upp­hæðin sem varið hefur verið til lækk­unar verð­tryggðra hús­næð­is­lána eftir tekjum á milli allra fram­telj­enda árið 2014, hvort sem þeir nutu lækk­unar eða ekki? Hvert er hlut­fall heild­ar­upp­hæð­ar­innar sem skipt­ist niður á tekju­bil hvers tíunda hluta fyrir sig, miðað við eignir á árinu 2014? Hver er fjöldi fram­telj­enda á bak við hvert tekju­bil?
  5. Hvernig dreif­ist heild­ar­upp­hæðin sem varið hefur verið til lækk­unar verð­tryggðra hús­næð­is­lána á milli allra fram­telj­enda árið 2014 eftir hreinum eign­um, þ.e. eignum umfram skuld­ir? Hvert er hlut­fall heild­ar­upp­hæð­ar­innar sem skipt­ist niður á eigna­bil hvers tíunda hluta fyrir sig, miðað við eignir á árinu 2014? Hver er fjöldi fram­telj­enda á bak við hvert eigna­bil?
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiðréttingin

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Leið­rétt­ingin er þjóð­ar­skömm

Skýrsla um skipt­ingu Leið­rétt­ing­ar­innar, 72,2 millj­arða króna milli­færslu úr rík­is­sjóði til hluta lands­manna, var loks­ins birt í gær. Fyrri upp­lýs­ingar um aðgerð­ina höfðu ein­ungis sýnt skipt­ingu hennar milli þeirra hópa sem hana þáðu, ekki á milli allrar þjóð­ar­innar. 19 mán­uðir eru síðan að beðið var um skýrsl­una á Alþingi. Vítavert er að skýrslan hafi ekki verið birt á síð­asta kjör­tíma­bili,...
Fréttirleiðréttingin

Spurn­ingum um Leið­rétt­ing­una enn ósvarað

Enn bólar ekk­ert á skýrslu frá Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra um frek­ari upp­lýs­ingar um það hvernig Leið­rétt­ingin svo­kall­aða skipt­ist á milli fólks, þrátt fyrir að meira en ár sé liðið frá því að níu stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn lögðu fram beiðni um skýrsl­una. Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri-grænna, vakti athygli á þessu á þingi í morgun. „Þessar upp­lýs­ingar hljóta að liggja fyrir og hæstv. ráð­herra...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár