Spurningum um Leiðréttinguna enn ósvarað

Enn bólar ekk­ert á skýrslu frá Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra um frek­ari upp­lýs­ingar um það hvernig Leið­rétt­ingin svo­kall­aða skipt­ist á milli fólks, þrátt fyrir að meira en ár sé liðið frá því að níu stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn lögðu fram beiðni um skýrsl­una. Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri-grænna, vakti athygli á þessu á þingi í morgun.

„Þessar upp­lýs­ingar hljóta að liggja fyrir og hæstv. ráð­herra gerði þá betur í því að skila bara auðu og segja að hann hafi ekki upp­lýs­ing­arnar ef hann hefur þær ekki. Þetta á auð­vitað að vera löngu komið, herra for­seti. Þetta er ekki boð­legt,“ sagði Katrín. Hún sagði að henni hefði verið sagt að rekið hafi verið eftir skýrsl­unni í ráðu­neyt­inu. „Ég fer nú að velta því fyrir mér hvernig hæst­virtir ráð­herrar ætla að sinna skyldum sínum gagn­vart þing­inu þegar þeir kom­ast upp með það í heilt ár að svara ekki skýrslu­beiðni frá níu þing­mönnum úr öllum stjórn­ar­and­stöðu­flokk­unum.“

Einar K. Guð­finns­son, for­seti Alþingis, sagð­ist ætla að kanna hvernig á þessu stæði og hvers vegna skýrslan væri ekki komin til Alþingis.

Oddný Harð­ar­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, tók undir með Katrínu og sagði vinnu­brögðin í mál­inu til hábor­innar skammar, að það skuli drag­ast í heilt ár að bregð­ast við skýrslu­beiðni um stærsta kosn­inga­lof­orðið. „Maður spyr sig þá hvort þarna séu spurn­ingar sem hæstv. fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra treysti sér ekki til þess að upp­lýsa um svörin við. Þarna er spurt um tekjur, eignir, hverjir fengu nið­ur­greiðsl­una. Er það ekki einmitt eins og bent hefur verið á að þarna var ríku fólki rétt rík­isfé og stuðn­ingur? Ég leyfi mér að full­yrða að þess vegna sé skýrslan ekki komin fram. Meðan ég fæ ekki aðrar skýr­ingar held ég mig við þessa.“

Vilja upplýsingar um skiptingu 80 milljarða

Skýrslu­beiðnin var sam­þykkt fyrir ári síðan, eftir að fyrri skýrsla Bjarna um málið þótti ekki svara öllum spurn­ingum sem hún átti að gera.

Þing­­menn­irnir fóru meðal ann­­ars fram á að fá að vita hvernig heild­­ar­­upp­­hæð leið­rétt­ing­­ar­inn­­ar, um 80,4 millj­­örðum króna, skipt­ist eftir tekjum á milli allra fram­telj­enda árið 2014, hvort sem þeir nutu lækk­­unar eða ekki og hvernig heild­­ar­­upp­­hæðin dreif­ist á milli allra fram­telj­enda eftir hreinum eign­­um.

Í grein­­ar­­gerð sem fylgdi beiðn­­inni segir að Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­maður Vinstri grænna, hafi lagt fram fyr­ir­­spurn í 15 liðum um nið­­ur­­færslu verð­­tryggðra fast­­eigna­lána 11. nóv­­em­ber 2014. Þar segir enn­frem­­ur: „Tæpum mán­uði seinna barst „svar“ fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra þar sem engri spurn­ingu var svarað efn­is­­lega en svörum lofað á vor­­þingi með fram­lagn­ingu sér­­stakrar skýrslu ráð­herra um aðgerð­ina. Málið olli nokkru upp­­­námi á Alþingi og svar­aði ráð­herra í kjöl­farið fimm af 15 spurn­ingum þing­­manns­ins 29. jan­ú­­ar. Beðið var eftir frek­­ari svörum í fimm mán­uði til við­­bótar og 29. júní sl. birti fjár­­­mála- og efna­hags­ráð­herra svo loks skýrslu sína um lækkun höf­uð­stóls verð­­tryggðra hús­næð­is­veð­lána (809. mál). ­Skýrslan svarar því miður ekki öllum þeim spurn­ingum sem settar voru fram í fyr­ir­spurn Katrínar Jak­obs­dóttur tæpum átta mán­uðum áður. Sér­­stak­­lega vantar svör við 1., 2. og 3. tölul. fyr­ir­­spurn­­ar­innar og er hér leit­­ast við að fá loks­ins svör við þessum spurn­ing­­um. Að auki er farið fram á upp­­lýs­ingar um hlut­­fall skulda­n­ið­­ur­­færsl­unnar eftir eigna­­stöðu og eftir tekjum miðað við árið 2014, en upp­­lýs­ingar þar að lút­­andi ættu nú í sumar að geta verið unnar úr skatt­fram­­tölum fyrir það ár.“

Spurn­ing­­arnar fimm sem stjórn­­­ar­and­­stöð­u­­þing­­menn­irnir vilja fá svör við eru eft­ir­far­andi:

  1. Hvernig skipt­ist heild­­ar­­upp­­hæð þeirrar fjár­­hæðar sem varið hefur verið til lækk­­unar verð­­tryggðra fast­­eigna­veð­lána ein­stak­l­inga milli beinnar höf­uð­stólslækk­­unar á fast­­eigna­veð­lánum ein­stak­l­inga og frá­­­drátt­­ar­liða, svo sem fast­­eigna­veð­krafna án veð­­trygg­inga, van­skila og greiðslu­­jöfn­un­­ar­­reikn­inga?
  2. Hverjir eru frá­­­drátt­­ar­lið­irnir og hver er skipt­ingin milli þeirra í krónum talið?
  3. Hvert er heild­­ar­hlut­­fall beinnar höf­uð­stólslækk­­un­­ar, þ.e. lækk­­unar höf­uð­stóls að und­an­­skildum frá­­­drátt­­ar­lið­um, af verð­­tryggðum fast­­eigna­veð­lán­um?
  4. Hvernig dreif­ist heild­­ar­­upp­­hæðin sem varið hefur verið til lækk­­unar verð­­tryggðra hús­næð­is­lána eftir tekjum á milli allra fram­telj­enda árið 2014, hvort sem þeir nutu lækk­­unar eða ekki? Hvert er hlut­­fall heild­­ar­­upp­­hæð­­ar­innar sem skipt­ist niður á tekju­bil hvers tíunda hluta fyrir sig, miðað við eignir á árinu 2014? Hver er fjöldi fram­telj­enda á bak við hvert tekju­bil?
  5. Hvernig dreif­ist heild­­ar­­upp­­hæðin sem varið hefur verið til lækk­­unar verð­­tryggðra hús­næð­is­lána á milli allra fram­telj­enda árið 2014 eftir hreinum eign­um, þ.e. eignum umfram skuld­ir? Hvert er hlut­­fall heild­­ar­­upp­­hæð­­ar­innar sem skipt­ist niður á eigna­bil hvers tíunda hluta fyrir sig, miðað við eignir á árinu 2014? Hver er fjöldi fram­telj­enda á bak við hvert eigna­bil?
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiðréttingin

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Leið­rétt­ingin er þjóð­ar­skömm

Skýrsla um skipt­ingu Leið­rétt­ing­ar­innar, 72,2 millj­arða króna milli­færslu úr rík­is­sjóði til hluta lands­manna, var loks­ins birt í gær. Fyrri upp­lýs­ingar um aðgerð­ina höfðu ein­ungis sýnt skipt­ingu hennar milli þeirra hópa sem hana þáðu, ekki á milli allrar þjóð­ar­innar. 19 mán­uðir eru síðan að beðið var um skýrsl­una á Alþingi. Vítavert er að skýrslan hafi ekki verið birt á síð­asta kjör­tíma­bili,...
Fréttirleiðréttingin

Hafa enn ekki svarað spurn­ingum um Leið­rétt­ing­una

Vinna við seinni skýrslu Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um nið­ur­færslu verð­tryggðra lána stendur enn yfir sjö mán­uðum eftir að beiðni um hana var lögð fram og sam­þykkt á Alþingi. Ekki hefur verið hægt að fá upp­lýs­ingar um hvernær skýrslan verður til­búin en sam­kvæmt svörum ráðu­neyt­is­ins verður hún send Alþingi um leið og það ger­ist. Aðgerðin fól í sér milli­færslu...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár