Um 30 prósent vinnandi Íslendinga hafa fengið 21 milljarð króna í skattaafslátt

Tæpur þriðj­ungur vinn­andi Íslend­inga notar sér­eign­ar­sparnað sinn til að greiða niður hús­næð­is­skuldir. Það fá þeir að gera skatt­frjálst og lækka þar með skatt­byrði sína umfram aðra umtals­vert.

Alls höfðu 62.952 ein­stak­lingar nýtt sér sér­eigna­sparnað sinn til að greiða inn á lán eða í útborgun fyrir íbúð í lok jan­úar síð­ast­lið­ins. Í þeirri tölu er sam­skatt­aðir taldir sem tveir aðilar jafn­vel þótt að ein­ungis annar þeirra hafi greitt inn á höf­uð­stól hús­næð­is­láns þeirra.

[links]Um er að ræða bæði þá sem nýttu sér­eigna­sparnað sinn til hús­næð­is­kaupa og -lána­nið­ur­greiðslu sam­kvæmt úrræði þess efnis sem kynnt var undir hatti Leið­rétt­ing­ar­innar vorið 2014 og þá sem nýttu sér „Fyrstu fast­eignar“ úrræðið, sem var kynnt í ágúst 2016 og kom til fram­kvæmda um mitt ár 2017.

Þetta þýðir að um 17 pró­sent allra lands­manna og um 30 pró­sent allra sem eru á vinnu­mark­aði, hafa nýtt sér hið skatt­frjálsa úrræði.

Samkvæmt tölum sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur tekið saman fyrir Kjarnann nemur umfang nýt­ingar Íslend­inga á úrræð­unum tveimur frá miðju árið 2014 og fram til loka jan­úar 2021 alls 92 millj­örðum króna. Í þeim tölum kemur einnig fram að áætluð lækkun tekju­skatts og útsvars frá því að úrræðin buð­ust fyrst og fram til síð­ustu ára­móta sé 21,1 millj­arður króna.

Því hefur þessi hópur fengið 21,1 millj­arða króna í með­gjöf úr rík­is­sjóði sem öðrum hefur ekki boð­ist á umræddu tíma­bili. Um er að ræða tekju­tap sem ríki og sveit­ar­fé­lög þurfa ekki að takast á við nú, þar sem skattur af sér­eign­ar­sparn­aði er vana­lega borg­aður þegar fólk fer á eft­ir­laun.

Matið „nokkurri óvissu háð“

Þegar úrræðið um að nota sér­eign­ar­sparnað sinn skatt­frjálst til að greiða niður hús­næð­is­lán var kynnt árið 2014, sem hluti af Leið­rétt­ing­unni svoköll­uðu, var það gert þannig að sá hópur sem áætlað var að nýtti sér það myndi geta notað alls 70 millj­arða króna til þeirra verka á tíma­bil­inu. Það byggði á skýrslu sér­fræð­inga­hóps sem skil­aði af sér skýrslu til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins í nóv­em­ber 2013. Á meðal þeirra sem sátu í sér­fræði­hópnum voru Sigurður Hann­es­son, nú fram­kvæmda­stjóri Samtaka iðn­að­ar­ins, sem var for­maður hans og Lilja D. Alfreðs­dóttir, nú mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

[adspot]Þegar frum­varp var loks lagt fram, til að lög­binda úrræðið, sagði í grein­ar­gerð þess að áður­nefnt mat sér­fræð­inga­hóps­ins hefði verið „nokk­urri óvissu háð“. Ekkert talna­legt mat lægi fyrir á úrræð­inu.

Því skip­aði Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi og núver­andi fjár­mála- og efna­hags­hags­ráð­herra, nýjan starfs­hóp til að reikna áhrif úrræð­is­ins.

Undir því sem sviðsmyndir áætluðu

Sá hópur skil­aði af sér þremur sviðs­myndum sem sýndu að fram á mitt ár 2017 myndu 56.066 til 81.597 ein­stak­lingar nýta sér sér­eigna­sparnað til að greiða niður hús­næð­is­lán eða til í útgreiðslu útborg­unar. Heild­ar­upp­hæðin sem þessi hópur átti að geta greitt inn á hús­næð­is­skuldir sínar átti að vera 60 til 82 millj­arðar króna.

Í lok jan­úar 2021, þremur og hálfu ári eftir að upp­runa­legur gild­is­tími úrræð­is­ins rann út (það hefur síðan tví­vegis verið fram­lengt og er nú í boði fram til loka júní 2021) var fjöldi þeirra sem nýttu sér bæði upp­runa­lega sér­eign­ar­sparn­að­ar­úr­ræðið og „Fyrstu fast­eign“ kom­inn upp í 62.952. Út frá töl­unum sem ráðu­neytið tók saman fyrir Kjarnann má áætla að um ell­efu pró­sent þess hóps, alls um sjö þús­und manns, séu að nýta „Fyrstu fast­eign“. Það þýðir að upp­runa­lega úrræðið er fyrst að ná neðri mörkum þeirra sviðs­mynda sem starfs­hóp­ur­inn teikn­aði upp um þessar mundir.

Heild­ar­upp­hæðin sem hóp­ur­inn átti að ná að greiða inn á hús­næð­is­skuldir sínar fyrir mitt ár 2017 náð efri mörk­unum í sviðs­myndum hóps­ins fyrst undir lok árs 2020. Í jan­ú­ar­lok 2021 nam heild­ar­notkun á sér­eign­ar­sparn­aði undir hatti úrræð­is­ins um 81,5 millj­arði króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

leiðréttingin

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Leið­rétt­ingin er þjóð­ar­skömm

Skýrsla um skipt­ingu Leið­rétt­ing­ar­innar, 72,2 millj­arða króna milli­færslu úr rík­is­sjóði til hluta lands­manna, var loks­ins birt í gær. Fyrri upp­lýs­ingar um aðgerð­ina höfðu ein­ungis sýnt skipt­ingu hennar milli þeirra hópa sem hana þáðu, ekki á milli allrar þjóð­ar­innar. 19 mán­uðir eru síðan að beðið var um skýrsl­una á Alþingi. Vítavert er að skýrslan hafi ekki verið birt á síð­asta kjör­tíma­bili,...
Fréttirleiðréttingin

Spurn­ingum um Leið­rétt­ing­una enn ósvarað

Enn bólar ekk­ert á skýrslu frá Bjarna Bene­dikts­syni fjár­mála­ráð­herra um frek­ari upp­lýs­ingar um það hvernig Leið­rétt­ingin svo­kall­aða skipt­ist á milli fólks, þrátt fyrir að meira en ár sé liðið frá því að níu stjórn­ar­and­stöðu­þing­menn lögðu fram beiðni um skýrsl­una. Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri-grænna, vakti athygli á þessu á þingi í morgun. „Þessar upp­lýs­ingar hljóta að liggja fyrir og hæstv. ráð­herra...
Fréttirleiðréttingin

Hafa enn ekki svarað spurn­ingum um Leið­rétt­ing­una

Vinna við seinni skýrslu Bjarna Bene­dikts­sonar, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, um nið­ur­færslu verð­tryggðra lána stendur enn yfir sjö mán­uðum eftir að beiðni um hana var lögð fram og sam­þykkt á Alþingi. Ekki hefur verið hægt að fá upp­lýs­ingar um hvernær skýrslan verður til­búin en sam­kvæmt svörum ráðu­neyt­is­ins verður hún send Alþingi um leið og það ger­ist. Aðgerðin fól í sér milli­færslu...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár