Upphæðin sem nýtt var undir hatti „Fyrstu fasteignar“ tvöfaldaðist á rúmu ári

Þeim sem nýttu úrræðið „Fyrsta fast­eign“ til að nota sér­eign­ar­sparnað sinn skatt­frjálst til að greiða niður hús­næð­is­lán sín, eða í útborgun fyrir íbúð, fjölg­aði um þrjú þús­und frá lokum árs 2018. Nýtingin er þó enn langt frá 50 millj­arða króna mark­mið­inu.

Bjarni Benediktsson og Sigurður Ingi Jóhannsson, sem þá leiddu ríkisstjórn, kynntu Fyrstu fasteign í ágúst 2016, nokkrum vikum fyrir haustkosningar það árið.
Bjarni Bene­dikts­son og Sigurður Ingi Jóhanns­son, sem þá leiddu rík­is­stjórn, kynntu Fyrstu fast­eign í ágúst 2016, nokkrum vikum fyrir haust­kosn­ingar það árið. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Alls hafa þeir sem nýtt hafa sér úrræðið „Fyrsta fast­eign“ greitt inn á lán sín eða borgað í útgreiðslu á útborgun fyrir íbúð 10,5 millj­arða króna frá því að úrræðið tók gildi. um 5,9 millj­arðar króna hafa verið nýttir til að greiða inn á lán og tæp­lega 4,6 millj­arðar króna í útgreiðslu.

[links]Þetta kemur fram í tölum sem fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur tekið saman fyrir Kjarn­ann. „­Fyrsta fast­­­eign“ stendur þeim til boða sem eru að kaupa sína fyrstu íbúð.

Sam­­­kvæmt úrræð­inu geta þeir nýtt sér­­­­­eign­­­ar­líf­eyr­is­­­sparnað til að safna fyrir inn­­­­­borgun á fyrstu íbúð­­­ar­­­kaup eða greitt inn á höf­uð­stól hús­næð­is­láns. Alls er heim­ilt að ráð­stafa að hámarki 500 þús­und krónum á ári í mest tíu ár með ofan­­­greindum hætti sam­­­kvæmt skil­­­málum „Fyrstu fast­­­eign­­­ar“.

Úrræðið hefur staðið til boða frá árinu 2017. Framan af var það ekki nýtt mikið en nýt­ingin tók kipp í fyrra, á árinu 2020. Frá byrjun þess árs og út jan­úar síð­ast­lið­inn fór heild­ar­upp­hæðin sem nýtt hefur verið til að greiða inn á lán eða í útgreiðslu undir hatti „Fyrstu fast­eignar“ farið úr 5,2 millj­örðum króna í 10,5 millj­arða króna. Hún hefur því rúm­lega tvö­fald­ast á einu ári.

[adspot]Hús­næð­is­mark­að­ur­inn í fyrra var enda mjög virkur. Alls hækk­aði verð íbúð­ar­hús­næðis á höf­uð­borg­ar­svæð­inu um 7,7 pró­sent á árinu og mikil vaxta­lækkun, ásamt auknu láns­fram­boði, gerði það að verkum að íbúða­við­skiptum fjölg­aði mikið milli ára.

Notendum fjölgaði mikið og eru sjö þúsund

Þegar úrræðið „Fyrsta fast­eign“ var kynnt í Hörpu um miðjan ágúst 2016 af þáver­andi ráða­­­mönnum þjóð­­­ar­innar kom fram í glæru­kynn­ingu að um 50 millj­­­arðar króna myndu rata í inn­­­greiðslur á hús­næð­is­lánum vegna „Fyrstu fast­­­eign­­­ar“ á tíu árum eftir að úrræðið tæki gild­i.

Sam­­­kvæmt kynn­ing­unni áttu um 14 þús­und manns að nýta sér úrræðið á fyrstu árum þess. Þá var lagt upp með að árlega myndu um tvö þús­und manns mæt­­­ast í hóp þeirra sem eiga kost á því að nýta sér úrræð­ið.

Ljóst er að hóp­­­ur­inn sem hefur valið að nýta sér leið­ina er mun fámenn­­­ari en stefnt var að og því verður skatt­­af­­slátt­­­ur­inn vænt­an­­­legra mun minni en fram kom í kynn­ingu þáver­andi ráða­­­manna.

Í grein­ar­gerð sem fylgdi með frum­varp­inu sem lög­festi úrræðið kom strax fram að umfang hennar gæti náð til 4.300 til 15.200 laun­þega, sam­kvæmt grein­ingu sem Analytica fram­kvæmdi fyrir fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­ið. Ef þátt­töku­fjöld­inn yrði við neðri mörk þess fjölda þá umfang aðgerð­anna ein­ungis 13 millj­arðar króna sam­kvæmt sömu grein­ar­gerð. Það er tölu­vert langt frá þeim 50 millj­örðum króna sem kynntir voru í Hörpu í ágúst 2016.

Í svörum við fyr­ir­spurn Kjarn­ans um nýt­ingu sér­eign­ar­sparn­aðar til nið­ur­greiðslu hús­næð­is­lána svar­aði ráðu­neytið því ekki til hversu margir hefðu nýtt sér „Fyrstu fast­eign“, heldur gaf upp heild­ar­tölu allra sem notað hefðu sér­eign­ar­sparnað sinn til að borga inn á hús­næði eða -lán. Sú tala var tæp­lega 63 þús­und og fjölg­aði þeim um tæp­lega fimm þús­und milli ára.

Upp­hæðin sem notuð var innan „Fyrstu fast­eign­ar“ úrræð­is­ins var um ell­efu pró­sent af heild­ar­upp­hæð­inni, sem var 92 millj­arðar króna í lok jan­úar 2021. Hlutfall þeirra sem nýttu „Fyrstu fast­eign“ af þeim hópi sem not­aði sér­eign til að greiða inn á hús­næð­is­lán fór úr því að vera sjö pró­sent í lok árs 2018 en er, líkt og áður sagði, ell­efu pró­sent nú. Miðað við það hlut­fall má ætla að um sjö þús­und manns hafi nýtt sér „Fyrstu fast­eign“ og að þeim hafi fjölgað um þrjú þús­und frá byrjun árs 2019.

Tekju­hærri lík­legri til að taka þátt í sér­eign­ar­sparn­aði

Grein­ing Analytica á væntri nýt­ingu sér­­­eign­­ar­­sparn­aðar fyrir stjórn­­völd þegar vinna við frum­varpið stóð yfir byggði á gögnum úr skatt­fram­­tölum fyrir tekju­árið 2015 og var úrtakið miðað við laun­þegar sem voru með launa­­tekjur en áttu ekki fast­­eign. Analytica fram­­reikn­aði svo launa­­tekj­­urnar fram til árs­ins 2016 miðað við launa­breyt­ingar í stað­greiðslu­­gögnum og flokk­aði loks eftir hjú­­skap­­ar­­stöðu, aldri með­­al­­launum og með­­al­fjár­­hæð sparn­aðar í sér­­­eign og því hvort að við­kom­andi væri að greiða í sér­­­eign eða ekki.

Í grein­­ar­­gerð frum­varps­ins á sínum tíma sagði að með­­al­­tekjur þeirra sem spara í sér­­­eign væru umtals­vert hærri en hjá þeim sem gera það ekki. Náms­­menn voru dregnir út úr úrtak­inu þar sem þeir voru „al­­mennt ekki taldir hafa sama fjár­­hags­­legt svig­­rúm til sparn­að­­ar.“

Því lá þegar fyr­ir þegar frum­varpið var lagt fram, sam­­kvæmt grein­ing­unni, að þeir sem gátu frekar nýtt sér sér­­­eign­­ar­­leið­ina sem kynnt var fyrir fyrstu fast­­eign­­ar­­kaup­endur voru þeir sem hafa hærri tekjur og eru þar með lík­­­legri til að taka þátt í sér­­­eign­­ar­­sparn­aði.

Þeir sem nýta sér sér­­­­­eign­­­ar­líf­eyr­is­­­sparnað til að greiða niður hús­næð­is­lán sitt sam­­­kvæmt úrræðum sem stjórn­­­völd hafa inn­­­­­leitt á und­an­­­förnum árum fá tvö­­­faldan ávinn­ing.

Í fyrsta lagi fæst mót­fram­lag frá vinn­u­veit­enda sem er ígildi launa­hækk­­­un­­­ar. Í öðru lagi fæst skatta­af­­­sláttur frá rík­­­inu sem ein­ungis býðst þeim sem nota sér­­­­­eigna­­­sparnað sinn til að greiða niður hús­næð­is­lán.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár