Ágúst og Lýður nefndir í drögunum

Við­skiptaflétt­urnar sem rann­sókn­ar­nefnd Alþingis hefur nú svipt hul­unni af teygðu anga sína til aflandseyja.

Í skýrslu rann­sókn­ar­nefndar Alþingis um söl­una á hlut í Bún­að­ar­bank­anum, árið 2003, kemur fram að tak­mark­aðar upp­lýs­ingar séu til um félagið félagið Dekhill Advisors, sem fékk hluta hagn­að­ar­ins af Hauck & Auf­häuser við­skipt­unum.

Félagið fékk 46,5 millj­ónir doll­ara í sinn hlut, upp­hæð sem sam­svarar um fjórum millj­örðum króna í dag.

Nafn félags­ins fannst í gegnum síma­greiðslu en einu upp­lýs­ing­arnar um það eru skrán­ing um stofn­setn­ingu á Bresku Jóm­frúreyjum 25. júlí 2005 með núm­er­inu 668854, að því er segir í skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar.

Samdægurs

Bak­samn­ingar um Welling & Partners voru und­ir­rit­aðir sama dag og S-hóp­ur­inn keypti nær helm­ings­hlut rík­is­ins í Bún­að­ar­bank­anum, eins og rakið er ítar­lega í frétta­skýr­ingum á vef Kjarnans í dag, þar sem vísað er til fyrr­nefndar skýrslu. 

Þeir samn­ingar kváðu á um að félag í eigu Ólafs Ólafs­sonar skildi fá rúm­lega helm­ing hagn­aðar félags­ins í sinn hlut á móti tæp­lega helm­ingi hagn­aðar sem rynni til ann­ars aðila.

Ólafur sagði í yfir­lýs­ingu fyrr í dag að þeir samn­ingar hefðu ein­ungis verið samn­ingar milli tveggja einka­að­ila.

Þegar upp var staðið var sá pen­ingur færður inn á reikn­ing félags­ins Dekhill Advisors Ltd. Þrátt fyrir að Dekhill hafi fengið greiddar 46 millj­ónir doll­ara kemur það ekki við sögu í við­skiptaflétt­unni fyrr en eignir Welling & Partners eru greiddar út. Þá er greiðslan rakin til félags­ins.

Viðskiptaflétta í leynd

Spjótin bein­ast að þessu huldu­fé­lagi og hver sé eig­andi þess. Í skýrslu nefnd­ar­innar segir, að sam­kvæmt gögnum og skjala­drögum, sem rann­sókn­ar­nefndin afl­aði sér, þá komi nöfn Ágústs og Lýðs Guð­munds­sona, sem oft eru kenndir við Bakkavör, þar við sögu.

Samkvæmt gögnum og skjala­drögum átti félagið Jeff Agents Corp. að verða eig­andi Welling & Partners með „við­skiptafléttu milli þeirra“ eins og það er orðað í skýrsl­unni. Rann­sókn­ar­nefndin vísar líka til tvennra skjala­draga um raun­veru­legt eign­ar­hald Jeff Agents Corp. Þau eru þó „öll óund­ir­rituð að hluta og því ófull­komin að formi til,“ segir í skýrsl­unni, en að skráðir eig­endur í drög­unum séu Lýður og Ágúst Guð­munds­synir.



Þeir voru fyrir fall Kaup­þings í hópi stærstu eig­enda bank­ans í gegnum félagið Exista, sem fór með fjórð­ungs­hlut í bank­anum.

Orðrétt segir í skýrsl­unni: „Þriðju sam­komu­lags­drögin bera á hinn bóg­inn með sér að vera milli ann­ars vegar KV Associates S.A. og hins vegar tveggja nafn­greindra íslenskra kaup­sýslu­manna, Lýðs Guð- munds­sonar og Ágústs Guð­munds­sonar, og kveða á um að KV Associates S.A. stýri félag­inu Jeff Agents fyrir raun­veru­lega eig­endur þess, sem til­greindir eru þeir Ágúst og Lýður. Drögin bera dag­setn­ing­una 29. jan­úar 2003 en eru á sama hátt og hin tvö fyrr­nefndu aðeins und­ir­rituð af hálfu KV Associates S.A., sem fyrr af Karim Van den Ende, en óund­ir­rituð af hálfu hins til­greinda gagn­að­ila, það er þeim Lýði og Ágústi Guð­munds­sonum sem raun­veru­legra eig­enda Jeff Agents sam­kvæmt sam­komu­lags­drög­unum.

Enginn þeirra sem nefndin til­tekur, að hafi komið að gerð bak­samn­inga og blekk­inga í tenslum við fyrr­nefnd við­skipti með eign­ar­hlut í Bún­að­ar­bank­anum, kann­ast við þetta félag. Ekki Bjarki Diego, ekki Hreiðar Már Sig­urðs­son, ekki Ólafur Ólafsson, ekki Sigurður Ein­ars­son og ekki Magnús Guð­munds­son. Ágúst og Lýður gera það ekki heldur, þrátt fyrir að nöfnin finn­ist í drög­unum.

Þá nefna Stein­grímur Kárason og Kristín Pét­urs­dóttir, sem voru yfir áhættu­stýr­ingu og fjár­stýr­ingu Kaup­þings áður fyrr og á þeim tíma þegar við­skiptin voru fram­kvæmd, ekki félagið í sínum bréf­legu svörum til nefnd­ar­innar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Hauck&Aufhäuser

Leiðari

Þórður Snær Júlíusson

Að opin­bera Ólaf Ólafsson er ekki mann­rétt­inda­brot

Ólafur Ólafsson hefur kært íslenska ríkið til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu fyrir það að Alþingi hafi skipað rann­sókn­ar­nefnd til að upp­lýsa um það að hann og sam­starfs­fé­lagar hans hefðu beitt ríkið, fjöl­miðla og almenn­ing allan stór­kost­legum blekk­ingum til að kom­ast yfir Bún­að­ar­bank­ann árið 2003. Ólafur telur að vinna og birt­ing á skýrslu rann­sókn­ar­nefnd­ar­innar hafi vegið „alvar­lega að orð­spori og æru“ hans án...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár