Borgarstjóri: Ríkið noti ónýttar lóðir til uppbyggingar

Borg­ar­stjóri kallar eftir nánu sam­starfi ríkis og sveit­ar­fé­laga þegar kemur að því að byggja upp íbúðir.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Mynd: Birgir Þór

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stóri, segir að íslenska ríkið verði að nýta ónýttar lóðir sem það á á höf­uð­borg­ar­svæð­inu til að byggja upp hús­næði. Hann segir að ríkið og sveit­ar­fé­lög verði að vinna að saman að því að auka fram­boð hús­næðis til að leysa þann vanda sem nú sé á fast­eigna­mark­aði.

Fast­eigna­verð hefur hækkað um 18,6 pró­sent á síð­ustu tólf mán­uðum, og telur Þjóðskrá að vöntun sé á um átta þús­und íbúðum inn á markað til að anna eft­ir­spurn, sé horft til sögu­legrar þró­unar þegar kemur að árlegri þörf.

Í viku­legum pistli sínum segir Dagur að hann líti svo á að stjórn­völd hafi gert mikil mis­tök um síð­ustu alda­mót þegar verka­manna­bú­staða­kerfið var brotið upp, og nauð­syn­legt sé að byggja upp nýtt hús­næð­is­kerfi sem tryggi fólki þak yfir höf­uðið.

„Eitt mesta óheilla­skref sem stigið hefur verið í hús­næð­is­sögu þjóð­ar­innar var þegar rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks gekk milli bols og höf­uðs á verka­manna­bú­staða­kerf­inu um síð­ustu alda­mót. Það hafði byggst upp á meira en hálfri öld og veitt þús­undum fjöl­skyldna öruggt skjól. Ekkert var sett fram í stað­inn. Mark­að­ur­inn átti að leysa málið. Þetta voru alvar­legar villi­götur sem sam­fé­lagið er ennþá að súpa seyðið af.“

„Í borg­ar­ráði í vik­unni urðu þau tíma­mót að við úthut­uðum fyrstu lóð­unum til sam­starfs­verk­efnis borg­ar­innar og verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar við upp­bygg­ingu hag­kvæms leigu­hús­næðis án hagn­að­ar­sjón­ar­miða. ASÍ og BSRB hafa stofnað hús­næð­is­fé­lag sem byggja mun 1.000 leigu­í­búðir í Reykja­vík á næstu fjórum árum. Lóðirnar fyrir fyrstu íbúð­irnar verða við Móaveg í Graf­ar­vogi, Urð­ar­brunn í Úlf­arsár­dal og Hall­gerð­ar­veg við Kirkju­sand en alls munu um 300 íbúðir rísa á þessu reitum. Næstu lóðum til verk­efn­ins verður úthlutað síðar á þessu ári. Reykja­vík­ur­borg og ríkið leggja fram stofn­fram­lög vegna verk­efn­anna á grund­velli laga sem loks­ins voru sam­þykkt í haust.“

[links]„Ég bind miklar vonir við þessa upp­bygg­ingu sem segja má að séu hinir nýju verka­manna­bú­staðir í breyttri mynd. Sam­starfið er jafn­framt hluti af þeirri meg­in­á­herslu borg­ar­innar að eiga sam­starf við hús­næð­is­fé­lög sem byggja án hagn­að­ar­sjón­ar­miða,“ segir Dagur.

Hann seg­ist enn­fremur viss um að mark­að­ur­inn mun ekki leysa úr þeim vanda sem sé kom­inn upp. Hugsa þurfi stórt, og að sam­starf þeirra sem aðkomu eiga að hús­næð­is­málum sé nauð­syn. „Ég tel að staðan á hús­næð­is­mark­aði kalli á að ríki og Reykja­vík­ur­borg efni til sam­starfs um upp­bygg­ingu í þágu ungs fólks sem vill kaupa hús­næði en á ekki mögu­leika á því í núver­andi stöðu.“

„Í mínum huga mun mark­að­ur­inn ekki leysa þetta verk­efni einn og sér, frekar en að hann hafi komið í stað verka­manna­bú­stað­ar­kerf­is­ins á sínum tíma. Ríki og borg geta lagt fram lóðir og svæði, auk þess sem huga þarf að reglu­verki sem miðar að þvi að íbúð­irnar verði reistar og seldar án hagn­að­ar­sjón­ar­miða. Slík for­dæmi eru þekkt þegar íbúðir fyrir eldri borg­ara eru ann­ars vegar. Þetta þyrfti að útfæra vand­lega og gætu þetta verið sölu­í­búðir eða ein­hvers­konar kaup­leigu- eða búsetu­réttar­í­búðir, eða blanda af þessu þrennu.“

„Mark­miðin væru þau sömu og með verka­manna­bú­stöð­unum á sínum tíma, öruggt þak yfir höf­uðið. Það er einnig mik­il­vægt að þessi verk­efni komi til við­bótar við sam­starf um bygg­ingu 2.500-3.000 leigu- og búsetu­réttar­í­búðar sem unnið er að í Reykja­vík og er lyk­il­at­riði til að gera hús­næð­is­mark­að­inn betri. Í þessu sam­hengi má bæta við að í borg­ar­ráði í vik­unni var lagt fram bréf sem ég sendi félags- og fjár­mála­ráð­herra til að ítreka óskir borg­ar­innar um að van­nýttar lóðir sem ríkið hefur haft yfir að ráða innan borg­ar­markanna verði látnar renna til upp­bygg­ingar hag­kvæms íbúð­ar­hús­næðis. Þær eru á góðum stöðum og á þessum svæðum gætu risið allt að 800 íbúðir. Margar lóð­anna henta sér­stak­lega vel fyrir stúd­enta­í­búðir eða sölu­í­búðir fyrir ungt fólk, eins og nefnt var hér að ofan,“ segir Dagur í pistli sínum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgarmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár