Staðsetning Borgarlínu liggur fyrir í byrjun sumars

Sveit­ar­fé­lögin á höf­uð­borg­ar­svæð­inu munu skil­greina rými fyrir skil­virkt almenn­ings­sam­göngu­kerfi á næstu mán­uðum.

Gróf teikning af tillögum dönsku verkfræðistofunnar COWI. Þegar fyrstu skref hafa verið ákveðin um hvar borgarlínan muni liggja þurfa sveitarfélögin að ráðast í breytingar á svæðisskipulagi og deiliskipulagi til þess að skapa rými fyrir Borgarlínuna.
Gróf teikn­ing af til­lögum dönsku verk­fræði­stof­unnar COWI. Þegar fyrstu skref hafa verið ákveðin um hvar borg­ar­línan muni liggja þurfa sveit­ar­fé­lögin að ráð­ast í breyt­ingar á svæð­is­skipu­lagi og deiliskipu­lagi til þess að skapa rými fyrir Borg­ar­lín­una. Mynd: Aðsend.

Samtök sveit­ar­fé­laga á höf­uð­borg­ar­svæð­inu munu á næstu dögum aug­lýsa fyr­ir­hug­aða stað­setn­ingu Borg­ar­línu og auknar bygg­ing­ar­heim­il­i­dir innan áhrifa­svæða hennar.

Verk­lýs­ing fyrir Borg­ar­línu hefur verið lögð fram sam­eig­in­lega í stjórnum sveit­ar­fé­lag­anna sex á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem fyr­ir­hugað er að nýja sam­göngu­kerfið muni liggja í gegnum.

Verk­efna­lýs­ingar verða í kynn­ingu til 25. apríl og er óskað eftir athuga­semdum og ábend­ingum við frum­áætl­an­irnar sem verða svo til áfram­hald­andi skoð­unar.

Til ein­föld­unar má segja að um sé að ræða skil­grein­ingu á helstu sam­göngu­leiðum höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins. Á íslensku hafa þessar sam­göngu­leiðir verið kall­aðar sam­gönguás en á ensku hefur hug­takið „corridor“ (ísl. gangur) verið notað. Það mætti því líkja borg­ar­lín­unni sem göngum í bygg­ingu sem tengja hin ýmsu rými húss­ins saman.

Hvar mun uppbyggingin fara fram?

Hrafn­kell Proppé, svæð­is­skipu­lags­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, var gestur fyrsta þáttar Aðfar­ar­innar í hlað­varpi Kjarnans á laug­ar­dag­inn. Hann útskýrði svæð­is­skipu­lag höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins fyrir umsjón­ar­mönnum þátt­ar­ins, þeim Magneu Guð­munds­dóttur og Guðmundi Kristján Jónssyni, auk þess að ræða þær áskor­anir sem blasa við þegar kemur að upp­bygg­ingu öfl­ugs almenn­ingsam­göngu­kerfis.

„Fyrsta árið eftir að svæð­is­skipu­lagið var sam­þykkt, fram til árs­ins 2016 gerð­ist ekk­ert voða­lega mikið,“ sagði Hrafn­kell þegar hann var spurður hvernig það hafi gengið að koma verk­efnum Borg­ar­lín­unnar af stað. Hann við­ur­kennir að stundum komi dagar þar sem honum finn­ist umræðan jafn­vel fara gegn sam­þykktu skipu­lagi til árs­ins 2040 en svo komi dagar þar sem stór skref eru stigin í þá átt sem mörkuð hefur verið.

„Fyrir svona tæpu ári síðan var svo settur svo­lít­ill kraftur í að klára Borg­ar­lín­una. Við erum núna að fara að birta aug­lýs­ingu eftir nokkra daga þar sem við erum að fara með verk­lýs­ingu í kynn­ingu. Þar erum við að festa Borg­ar­lín­una inn í hverju ein­asta svæð­is­skipu­lagi; hvar hún muni liggja og hvar eigi að vera stöðvar.“

Hrafn­kell segir að með fram því að áætla hvar Borg­ar­línan muni liggja þá þurfi einnig að skil­greina hvar þung­inn í upp­bygg­ingu borg­ar­lands­ins muni fara fram. „Það eru þessar auknu upp­bygg­ing­ar­heim­ildir sem þurfa að fylgja Borg­ar­lín­unni. Og síðan eru þá sex af þessum sjö sveit­ar­fé­lögum að breyta sínum svæð­is­skipu­lögum, það er í fyrsta sinn sem við keyrum þetta svona sam­hliða.“

Lest eða strætisvagnar?

Hrafn­kell segir að það sé ótíma­bært að segja til um hvaða sam­göngu­tækni muni drífa Borg­ar­lín­una á end­anum. Það gæti vel verið að sjálfa­kandi stræt­is­lestir á gúmmí­hjólum verði sú lausn sem verið fyrir val­inu. Einnig skiptir máli hvaða áhrif tæknin mun hafa á umhverfi sitt; það er öðru­vísi hljóð­mengun sem hlýst af vögnum á gúmmí­hjólum og spor­vögnum.

„Það mun fara fram ákveðið val. Í því höfum við samt reynt að hafa fókus á því að við þurfum að taka frá rými fyrir massa­flutn­inga og við getum ekki nákvæm­lega sagt um það í dag hvaða tækni­lausnir verða mögu­legar í fram­tíð­inni.“

Hrafn­kell segir það mjög mik­il­vægt að sveit­ar­stjórn­irnar séu stað­fastar í að taka frá rýmið fyrir massa­flutn­inga. Þá fylgir upp­bygg­ing í kringum þetta sam­göngu­rými sem mun svo stuðla að því að hægt verði að reka kerfi með löngum þjón­ustu­tíma og hárri tíðni ferða.

Að mörgu að huga

Við val á þeim leiðum sem kort­lagðar hafa verið þarf að hafa margt í huga, eins og gefur að skilja. Danska verk­fræði­stofan COWI hefur teiknað upp nokkar hugs­an­legar sviðs­myndir fyrstu áfanga Borg­ar­lín­unnar. Þær leiðir hafa svo verið lagðar ofan á þema­kort af höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem sýna ráð­andi breytur á borð við:

  • Dreif­ingu íbúa og raun­þétt­leiki byggðar.
  • Sam­an­lagðan íbúa­fjölda eftir tak­mörk­uðum svæðum.
  • Fjölda fer­metra á höf­uð­borg­ar­svæð­inu þar sem stunduð er atvinnu­starf­semi.
  • Fjölda nýrra íbúða.
  • Fjölda atvinnu­hús­næðis.

Allt skiptir þetta máli þegar ósæð höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins verður valin. Allar leið­irnar hafa það sam­eig­in­legt að byrja frá Hörpu, við Reykja­vík­ur­höfn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár