Fimm leiðir til að styrkja innviði ferðaþjónustunnar

Ferða­þjón­ustan vex og vex. Hag­vöxtur mæld­ist 7,2 pró­sent í fyrra, ekki síst vegna gríð­ar­legrar aukn­ingar í komu erlendra ferða­manna til lands­ins. En til þess að bregð­ast við þessum mikla vexti þarf að styrkja inn­viði lands­ins.

Ferða­þjón­ustan er burð­ar­stólp­inn í gjald­eyr­is­sköpun hag­kerf­is­ins eftir gríð­ar­legan vöxt á árunum 2010 og til dags­ins í dag. Í nýrri skýrslu grein­ingar Íslands­banka um stöðu mála í ferða­þjón­ust­unni er dregin upp mynd af ótrú­legum vexti og vaxt­ar­verkjum sömu­leiðis.

Gangi spáin eftir sem birt­ist í skýrsl­unni, þá verða erlend­ir­ferða­menn 2,3 millj­ónir á þessu ári og verður fimmta hver mann­eskja á land­inu í sumar ferða­maður. Árið 2016 komu 1,8 millj­ónir til lands­ins en árið 2010 voru þeir undir 500 þús­und.

Óhætt er að segja að þessi veru­leiki sé lyg­inni lík­astur, sé aðeins horft nokkur ár aftur í tím­ann.

Hrópandi þörf er fyrir sterk­ari inn­viði í land­inu til að taka betur á móti ferða­mönnum, að því er fram hefur komið hjá Samtökum ferða­þjón­ust­unnar. Í nýlegum pistli á vef Sam­tak­anna er að því spurt hvort ríkið sé mesti „gull­graf­ari“ ferða­þjón­ust­unnar.

Í pistl­inum eru stjórn­völd gagn­rýnd harð­lega fyrir að slá af fram­kvæmdir, sem voru á sam­göngu­á­ætlun. Orðrétt segir í pistl­inum: „Samtök ferða­þjón­ust­unnar lýsa yfir miklum von­brigðum með boð­aðan nið­ur­skurð í sam­göngu­á­ætlun. Það er með ólík­indum að þeim nauð­syn­legu sam­göngu­fram­kvæmdum sem ferða­þjón­ustan hefur ítrekað kallað eftir sé nú enn og aftur ýtt út af borð­inu. Sem dæmi má nefna Detti­foss­veg. Þær fram­kvæmdir hafa ítrekað verið slegnar af á sama tíma og með­al­tals­aukn­ing umferðar um svæðið er umtals­vert meiri en gengur og ger­ist á Íslandi. Þá á dreif­ing og álags­stýr­ing ferða­manna á svæð­inu mikið undir að Detti­foss­vegur verði greið­fær allan árs­ins hring.“

Ákvörðun stjórn­valda byggði þó á gömlum syndum rík­is­stjórnar Sigurðar Inga Jóhanns­sonar, og Alþingis á þeim tíma. Þá var sam­göngu­á­ætlun sam­þykkt sem þó var ekki fjár­mögnuð nema að hluta, líkt og Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála­ráð­herra og for­maður Við­reisnar, hefur bent á.

Margar hug­myndir hafa verið nefndar þegar kemur að því að efla inn­viði­ferða­þjónstunnar.

Hér verða nefndar fimm leiðir sem gætu styrkt inn­við­ina, einkum hjá rík­inu og sveit­ar­fé­lögum.

1. Sveitarfélög fái hlutdeild í VSK-tekjum

Stærsti tekju­stofn íslenska rík­is­ins er virð­is­auka­skattur en tekjur vegna þess tekju­stofns eru áætlar 186,5 millj­arðar króna. Ferða­þjón­ustu­fyr­ir­tæki eru stór hluti af þeim sem greiða þennan veltu­skatt í hag­kerf­inu. Píratar höfðu þetta sem stefnu­mál fyrir síð­ustu kosn­ingar og meðal sveit­ar­stjórn­ar­manna hefur verið rætt um að það gæti styrkt sveit­ar­stjórn­ar­stigið veru­lega, þegar kemur að ferða­þjón­ustu, að fá hlut­deild í þessum tekjum. Ef ein­ungi eitt pró­sent færi til sveit­ar­fé­laga þá væru það 1,86 millj­arðar króna, svo dæmi sé tekið. Auðvelt er enn fremur að tengja VSK-tekj­urnar þannig að sveit­ar­fé­lög fái hlut­deild í þeim eftir upp­runa á hverjum stað. Þannig geta þau sveit­ar­fé­lög sem hafa mikil umsvif í ferða­þjón­ustu innan sinna vébanda, fengið tekjur til að standa undir inn­viða­upp­bygg­ingu.

2. Gjaldtaka á ferðamannastöðum

Eitt af því sem ekki tókst að ná sam­stöðu um á síð­asta kjör­tíma­bili var útfærsla á gjald­töku við ferða­manna­staði, til dæmis inn í þjóð­görðum. Stjórn­völd hafa boðað upp­bygg­ingu á innviðum í ferða­þjón­ustu, og hafa allir flokk­arnir sem eiga aðild að rík­is­stjórn, Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, Björt fram­tíð og Viðreisn, talað fyrir þeim mögu­leika að hefja gjald­töku á fjöl­förnum stöðum til að standa undir upp­bygg­ingu. Líklega þarf ekki að bíða lengi eftir því að útfærsla komi fram í þessum efnum, sem Alþingi mun síðan taka til umfjöll­unar.

3. Vegtollar

Vega­gerðin birti í byrjun árs­ins tölur sem sýndu að umferð­ar­þungi hefur auk­ist stór­kost­lega um land allt vegna þess mikla vaxtar sem hefur verið í ferða­þjón­ust­unni. Í umfjöllun á vef Vega­gerð­ar­innar í byrjun mán­að­ar­ins kemur fram að enn eitt metið í umferð á hring­veg­inum hafi verið slegið. Þannig jókst umferð um 16 lyk­il­telj­ara á hring­veg­inum um 15 pró­sent milli ára, sem telst gríð­ar­lega mikil aukn­ing. Jón Gunn­ars­son sam­göngu­ráð­herra hefur talað fyrir veg­tollum, meðal ann­ars á helstu umferð­ar­æðum við höf­uð­borg­ar­svæðið, en hug­mynd­irnar hafa fengið blendin við­brögð, svo til alveg þvert á póli­tískar línur. En ef þessi þróun heldur áfram, sem margt bendir til, þá verður hugs­an­lega óhjá­kvæmi­legt að taka upp veg­tolla til að hraða upp­bygg­ingu á vega­kerf­inu.

4. Endurskipulagning gistiþjónustu

Umfang leigu­í­búða í gegnum vefi eins og Airbnb er gíf­ur­legt hér á landi, og hafa áhrifin á fast­eigna­markað verið veru­leg, að því er segir í nýrri skýrslu Íslands­banka um ferða­þjón­ust­una. Margar borgir í heim­inum hafa gripið til þess ráðs að tak­marka veru­lega mögu­leika á útleigu íbúða, einkum í mið­borgum, til að koma í veg fyrir alvar­legar hlið­ar­verk­anir á almennan íbúða- og leigu­markað. Má nefna San Francisco og Berlín í því sam­hengi. Þær hafa bannað eða tak­markað veru­lega mögu­leika á útleigu íbúa á ákveðnum svæðum, ekki síst til að vernda skipu­lags­mark­mið um fjöl­breytt mann­líf og menn­ingu, meðal ann­ars til að vernda það sem helst dregur ferða­menn að borg­unum, til lengdar litið. Þarf að grípa til rót­tæk­ari aðgerða til að draga úr nei­kvæðum áhrifum af útleigu íbúða til ferða­manna?

5. Fjölga „hliðunum“ og meiri dreifing

Rúmlega 90 pró­sent ferða­manna sem koma til Íslands fara í gegnum Kefla­vík­ur­flug­völl. Þegar umfangið er orðið svona mikið, eins og nú, þá felst í þessu nokkur áhætta í því að hafa eitt „hlið“ svo stórt, líkt og bent er á í skýrslu grein­ingar Íslands­banka. Gestum með skemmti­ferða­skipum hefur fjölgað mikið, en ef vöxt­ur­inn verður jafn­mik­ill og hann hefur verið árlega und­an­farin sex ár þá er ekki víst að þau miklu upp­bygg­ing­ar­á­form sem þegar eru komin í gang á Kefla­vík­ur­flug­velli, dugi til að anna eft­ir­spurn. Mikil tæki­færi liggja víða á lands­byggð­inni og hugs­an­lega að meiri tæki­færi geti skap­ast til milli­landa­flugs. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Atvinnulíf

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár