Ferðamenn eyða 200 þúsund að meðaltali

Ekki er annað að sjá en að mik­ill vöxtur ferða­þjón­ust­unnar í land­inu muni halda áfram á þessu ári. Greining Íslands­banka spáir því að fjöldi ferða­manna fari yfir 2,3 millj­ónir á þessu ári.

Greining Íslands­banka var að gefa út nýja skýrslu um stöðu mála í ferða­þjón­ust­unni hér á landi og birt­ist spá í henni sem sýnir mik­inn áfram­hald­andi vöxt innan grein­ar­innar. Í henni er að finna mikið magn gagna um þennan stærsta atvinnu­veg hag­kerf­is­ins.

Hér eru tíu atriði sem vöktu athygli blaða­manns við lestur skýrsl­unnar.

1. Ferða­þjón­usta er nú farin að skipta veru­legu máli sé litið til efna­hags­reikn­ings Íslands­banka. Af heild­ar­fyr­ir­tækja­lána­safni bank­ans þá eru lán til ferða­þjón­ustu nú 22 pró­sent af heild­inni. Sjá­v­út­vegur er um 20 pró­sent og fast­eigna­fé­lög 20 pró­sent. Aðrir geirar hafa minna hlut­fall af kök­unni.

2. Spáin sem birt­ist í skýrsl­unni gerir ráð fyrir því að 2,3 millj­ónir ferða­manna muni heim­sækja landið á þessu ári og að gjald­eyr­is­tekjur þjóð­ar­búss­ins vegna ferða­þjón­ustu verði 560 millj­arðar króna, eða sem nemur um 45 pró­sentum af gjald­eyr­is­tekjum þjóð­ar­innar. Til sam­an­burðar er gert ráð fyrir því í skýrsl­unni að gjald­eyr­is­tekj­urnar hafi numið 466 millj­örðum í fyrra eða um 39 pró­sent af heild­inni. Vöxt­ur­inn verður því mik­ill á þessu ári.

3. Áhrif íbúð­ar­leigu vefs­ins Airbnb hafa verið mikil, og var vöxt­ur­inn milli áranna 2015 og 2016 sér­stak­lega mik­ill. Að með­al­tali voru um 300 íbúðir í útleigu öllum stundum á Airbnb á árinu 2015 og um 809 á árinu 2016. Er þetta aukn­ing um 509 íbúðir en til sam­an­burðar voru 399 full­gerðar nýjar íbúðir í Reykja­vík á árinu 2016. „Fjölgun íbúða í heils­ársút­leigu á Airbnb hefur því verið tals­vert umfram fjölgun nýrra íbúða í Reykja­vík yfir sama tíma­bil og þannig átt stóran þátt í mik­illi hækkun íbúða­verðs á svæð­inu. Heild­ar­tekjur vegna útleigu gisti­rýma á Airbnb nam um 6,76 mö.kr. á árinu 2016 og um 2,51 ma.kr. á árinu 2015. Heild­ar­tekjur juk­ust því um 4,25 ma.kr. á milli ára eða um 169%,“ segir í skýrsl­unni. Ruðn­ings­á­hrifin á fast­eigna­verð, vegna Airbnb, eru veru­leg, og einkum mið­svæðis í Reykja­vík.

4. Vöxt­ur­inn í ferða­þjón­ust­unni eftir hrun fjár­mála­kerf­is­ins hefur komið eins og himna­send­ing inn í hag­kerfið. Árið 2009 voru gjald­eyr­is­tekjur vegna ferða­manna áætl­aðar 156 millj­arðar króna, en gert er ráð fyrir því að tekj­urnar hafi verið 466 millj­arðar í fyrra.

5. Að með­al­tali eyddi hver ferða­maður 202 þús­und krónum í ferð sinni til lands­ins. Stór hluti af því, eða 43 pró­sent, fór í flug og gist­ingu. Þá fer um 12 pró­sent af því til ferða­skrif­stofa og 16 pró­sent í verslun og þjón­ustu.

6. Vöxtur ferða­þjón­ust­unnar hefur haft gíf­ur­lega mikil áhrif á bíla­mark­að­inn á Íslandi. Þannig er talið að 1 af hverjum 10 bílum í umferð­inni séu bíla­leigu­bílar. Á árinu 2016 voru 20.847 bíla­leigu­bílar skráðir í bif­reiða­skrá þegar mest lét og var flot­inn þá að rjúfa 20.000 bíla múr­inn í fyrsta skipti, en þetta var aukn­ing um 35% frá árinu 2015 þegar bíl­arnir voru um 15.400 tals­ins, að því er segir í skýrsl­unni.

7. Hagnaður fyr­ir­tækja í ferða­þjón­ustu, og arð­semi almennt, hefur verið að aukast og batna á síð­ustu árum. Þannig segir í skýrsl­unni að fram­leiðni á hvern starfs­kraft sé að aukast hratt, og hagn­aður fyr­ir­tækja fyrir fjár­magnsliði hafi auk­ist um 52 pró­sent frá árinu 2010. Styrking krón­unnar hefur unnið á móti og má gera ráð fyrir að hagn­að­ur­inn hefði verið umtals­vert meiri með veik­ara gengi krón­unnar.

8. Óhætt er að segja að útlend­ingar gegni afar mik­il­vægu hlut­verki í ferða­þjón­ust­unni hér á landi. Um 22 pró­sent af starfs­kröftum innan hennar komar frá útlöndum, eða um 4.500 starfs­menn, sé mið tekið af tölum frá Starfs­stöð ferða­mála fyrir árið 2015. Gera má ráð fyrir að sú tala hafi farið í sex þús­und á síð­asta ári, og muni vaxa enn frekar á þessu ári.

9. Gengi krón­unnar er áhættu­þáttur fyrir ferða­þjón­ust­una, eins og ætla má. Mest hefur styrk­ing krón­unnar verið gagn­vart pundi (38%) en mun minni gagn­vart doll­ara (15%) og evru (19%). Bretar voru tæp­lega 18% af heild­ar­fjölda ferða­manna hér á landi í fyrra, hlut­deild Banda­ríkja­manna nær 24% en yfir fimmt­ungur ferða­manna kom frá þjóðum innan evru­svæð­is­ins.

10. Síðast en ekki síst, í þess­ari upp­taln­ingu, er áhuga­vert að sjá hvernig fjallað er um Kefla­vík­ur­flug­völl. Það eru ekki allir sem gera sér grein fyrir miklum fram­kvæmdum sem þar fara nú fram. Af ferða­mönnum sem hingað komu á síð­asta ári fóru rúm­lega 90% um Kefla­vík­ur­flug­völl. Flug­völl­ur­inn gegnir þannig mik­il­vægu hlut­verki fyrir Ísland og felur í sér mikil tæki­færi fyrir bæði íslensk og erlend flug­fé­lög til að nota Ísland sem tengi­höfn. „Í því felst hins vegar einnig áhætta fyrir íslenska hag­kerfið þ.e. að stór hluti gjald­eyr­is­tekna komi í gegnum einn flug­völl. Flug­völl­ur­inn hefur stækkað veru­lega síð­ustu ár. Frá byrjun ald­ar­innar hefur völl­ur­inn tæp­lega tvö­fald­ast að stærð og stæðum á flug­vell­inum hefur fjölgað hratt. Á árinu 2016 voru 29 stæði á vell­inum en gert er ráð fyrir að þeim fjölgi um 7 á næstu tveim árum,“ segir í skýrsl­unni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár