Uppfæra rýmingaráætlanir vegna mögulegs Kötlugoss

Áætlanir um rým­ingu vegna mögu­legs Kötlu­goss eru nú í end­ur­skoðun. Ferða­manna­straumur gerir rým­ing­una erf­ið­ari.

Vegna vax­andi fjölda erlendra ferða­manna þarf að upp­færa ýmsar við­bragðs­á­ætl­anir vegna hugs­an­legra nátt­úru­ham­fara, og við­búið er að rým­ingar í næsta nágrenni myndu ná til tug­þús­unda. Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag.

Mikil fjölgun í umferð ferða­manna um Suð­ur­land á stuttum tíma er það sem gerir fyrri rým­ing­ar­á­ætl­anir úreltar. Þetta er meðal nið­ur­staðna fundar und­ir­bún­ings­hóps við­bragðs­að­ila, þar á meðal Almanna­varna, sem kom saman á fimmtu­dag. „Ef Katla gysi á þessu ári gæti þurft að koma þús­undum ferða­manna burt af hættu­svæðum en ekki þarf að fara mörg ár aftur í tím­ann til að finna við­bragðs­á­ætl­anir sem gerðu ráð fyrir rým­ingu til­tölu­lega fámenns hóps íbúa og að erlendir ferða­menn heim­sóttu Suð­ur­land aðeins á sumrin,“ segir í til­kynn­ingu und­ir­bún­ings­hóps­ins.

Víðir Reyn­is­son, verk­efn­is­stjóri Almanna­varna á Suð­ur­landi, segir við Frétta­blaðið að mik­il­vægt sé að kort­leggja vel öll atriði sem þarf að huga að ef til rým­ingar þarf að koma, og umfangið sé mikið, enda séu um þrjú þús­und manns búsettir á rým­ing­ar­svæðum Kötlu en á góðum sum­ar­degi fjór- til fimm­fald­ist sú tala vegna umferðar ferða­manna.

[adspot]

Til eru sam­tíma­heim­ildir um ein níu Kötlugos, frá 1580 að telja, sum stór eins og það síð­asta sem kom upp úr jökli árið 1918, eða 99 árum.

Jök­ul­hlaupin eru gríð­ar­stór, um 100-falt vatns­meiri en úr Eyja­fjalla­jökli 2010 og að minnsta kosti fjórum til fimm sinnum öfl­ugri en vatns­flóðin á Skeið­ar­ár­sandi 1996, eftir eld­gosið í Gjálp, að því er segir í Frétta­blað­inu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

náttúruhamfarir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár