Kosningaþátttaka var minnst hjá ungu fólki en mest hjá þeim elstu

Eldri Íslend­ingar skila sér mun betur á kjör­stað en þeir yngri. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nýtur mestrar hylli hjá Íslend­ingum á eft­ir­launa­aldri en Píratar hjá þeim sem skila sér síst á kjör­stað.

Ungt fólk skil­aði sér síst á kjör­stað í þing­kosn­ing­unum sem fram fóru 29. októ­ber síð­ast­lið­inn. Minnst var kosn­inga­þátt­takan í ald­urs­hópnum 20-24 ára þar sem 65,7 pró­sent þeirra sem voru á kjör­skrá skil­uðu sér í kjör­klef­ann. Mest var þátt­takan hjá ald­urs­hópnum 65-69 ára þar sem 90,2 pró­sent greiddu atkvæði. Þetta kemur fram í nýjum tölum sem Hagstofa Íslands hefur birt.

Alls greiddu 79,2 pró­sent kjós­enda atkvæði í kosn­ing­unum. Mjög mis­mun­andi er eftir aldri hvort að kjós­endur ákváðu að nýta kosn­inga­rétt sinn eða ekki. Þannig mættu ein­ungis 67,7 pró­sent kjós­enda á aldr­inum 18-29 ára á kjör­stað, 74,2 pró­sent þeirra kjós­enda sem voru á fer­tugs­aldri en 84,8 pró­sent kjós­enda sem voru yfir fer­tugt. Kosn­inga­þátt­taka var lang­mest hjá Íslend­ingum yfir fimm­tugt og var í kringum 90 pró­sent hjá þeim sem eru á aldr­inum 60-75 ára.

Af þessum tölum er ljóst að eldri Íslend­ingar eru að hafa hlut­falls­lega mun meiri áhrif á mótun íslensks stjórn­mála­lands­lags en þeir yngri.

Eldri kjósa Sjálfstæðisflokk, yngri Pírata

Nið­ur­stöður kosn­ing­anna 29. októ­ber voru tölu­vert á skjön við það sem flestar skoð­ana­kann­anir höfðu sagt til um. Helsta skekkjan var fólgin í því að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk meira fylgi en búist var við en Píratar, sem höfðu mælst með mjög hátt fylgi um margra mán­aða skeið í aðdrag­anda kosn­inga, mun minna. Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk 29 pró­sent greiddra atkvæða en Píratar 14,5 pró­sent.

Í könnun sem MMR birti dag­inn fyrir kosn­ing­arnar kom fram að fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins var minnst hjá yngsta ald­urs­hópnum en fór svo hækk­andi eftir því sem fólk eld­ist.

Flokk­ur­inn mæld­ist með 18 pró­sent fylgi meðal 18 til 29 ára, 24 pró­sent meðal 30 til 49 ára, 28 pró­sent meðal 50 til 67 ára og 34 pró­sent meðal 68 ára og eldri.

Þró­unin var öfug hjá Pírötum og Bjartri fram­tíð, þótt hún væri mun meira áber­andi hjá Píröt­um. Þeir voru með 33 pró­sent fylgi í yngsta ald­urs­hópn­um og 26 pró­sent í þeim næstyngsta, 30 til 49 ára. Meðal 50 til 67 ára var fylgið komið niður í níu pró­sent og er svo sjö pró­sent meðal 68 ára og eldri. 

Betri kosn­inga­þátt­taka eldri Íslend­inga hefur því leitt til þess að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fékk meira upp úr kjör­köss­unum en búist hafði verið við, en Píratar mun minna.

Betri þátttaka á landsbyggðinni

Kosn­inga­þátt­taka var líka meiri á lands­byggð­inni en á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Hún var mest í Norð­vest­ur­kjör­dæmi þar sem 81,2 pró­sent kjós­enda greiddi atkvæði en minnst í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður, eða 77,9 pró­sent. Í ein­stökum sveit­ar­fé­lögum var kosn­inga- þátt­takan hæst í Eyja- og Mikla­holts­hreppi (90,2 pró­sent) en lægst í Sand­gerði (73,2 pró­sent). Kosn­inga­þátt­taka á höf­uð­borg­ar­svæð­inu öllu var 78,9 pró­sent á móti 79,7 pró­sent á lands­byggð­inni. Konur skil­uðu sér frekar á kjör­stað en karlar.

Í áður­nefndri könnun MMR kom einnig fram að mik­ill munur væri á því hvaða flokka kjós­endur væru lík­legir til að kjósa eftir því hvort þeir byggju á lands­byggð­inni eða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Þetta átti einkum við hjá Fram­sókn­ar­flokknum og Við­reisn. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mæld­ist þannig með 24 pró­sent fylgi á lands­byggð­inni en aðeins 5 pró­sent á höf­uð­borg­ar­svæð­inu dag­inn fyrir kosn­ingar. Hjá Við­reisn var þessu öfugt far­ið, flokk­ur­inn var með 12 pró­sent fylgi á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en aðeins þrjú pró­sent á lands­byggð­inn­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2016

Fréttirkosningar2016

Ekki ein­hugur um ráð­herra­val innan Sjálf­stæð­is­flokks­ins

Ein­hverjir þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins studdu ekki til­lögu Bjarna Bene­dikts­sonar, for­manns flokks­ins, um ráð­herra­skipan í nýrri rík­is­stjórn. Birgir Ármanns­son, sem tók við sem þing­flokks­for­maður af Guðlaugi Þór Þórð­ar­syni í gær, segir að til­laga Bjarna hafi þó verið sam­þykkt með afger­andi hætti. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu. Þar er rætt við Harald Bene­dikts­son, odd­vita Sjálf­stæð­is­manna í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Hann seg­ist sjálfur sáttur við að...
Fréttirkosningar2016

Stjórn­ar­sátt­máli: Evr­ópu­mál fara til þings­ins undir lok kjör­tíma­bils

Í drögum að stjórn­ar­sátt­mála rík­iss­stjórnar Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar kemur fram að hún muni ekki leggja fram til­lögu á Alþingi varð­andi umsókn Íslands um aðild að Evr­ópu­sam­band­inu á þessu kjör­tíma­bili. Þar segir hins vegar að þing­menn stjórn­ar­meiri­hlut­ans geti stutt þing­mál varð­andi umsókn­ar­ferli að Evr­ópu­sam­band­inu komi slíkt mál fram undir lok kjör­tíma­bils­ins. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu. Þetta er...
Fréttirkosningar2016

Þingmenn innan Sjálf­stæð­is­flokks efast um sam­starf við miðju­flokka

Fullyrt er í Morg­un­blað­inu í dag að hluti þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks efist um ágæti þess að mynda rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. Þeir meti það hins vegar sem svo að Bjarni Bene­dikts­son, for­maður flokks­ins, hafi óskorað umboð til þess að mynda slíka rík­is­stjórn. Form­legar stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður flokk­anna þriggja hafa staðið yfir alla þessa viku eftir að Bjarni fékk stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð frá for­seta...
Fréttirkosningar2016

Katrín stað­festir við­ræður við Framsókn og Sam­fylk­ingu

Katrín Jak­obs­dóttir, for­maður Vinstri grænna, stað­festir að flokkur hennar hafi átt í óform­legum við­ræðum við Fram­sókn­ar­flokk og Sam­fylk­ingu um félags­legar áherslur sem flokk­arnir þrír geti sam­ein­ast um hvort sem er við stjórn­ar­myndun eða í stjórn­ar­and­stöðu. Hún segir ótíma­bært og ekki við hæfi að svara spurn­ingum um hvort þessir flokkar stefndu á stjórn­ar­mynd­ar­við­ræður við Sjálf­stæð­is­flokk­inn. Frá þessu er greint á mbl.is....
Fréttirkosningar2016

Segir að mis­tök við einka­væð­ingu hafi breytt bönkum í spila­víti

Benedikt Jóhann­es­son, for­maður Við­reisnar, segir að í síð­ustu einka­væð­ingu banka­kerf­is­ins upp úr alda­mót­unum hafi íslenskum bönkum verið breytt í spila­víti, í þeim spilað djarft og Ísland var lagt að veði. Síðasta spilið tap­að­ist og þjóðin sat eftir í rúst­unum. Sú saga megi ekki end­ur­taka sig nú þegar ríkið hugar á ný að sölu á eign­ar­hlutum sínum í bönkum. Þetta kemur...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár