Samfylkingin tapar en meirihlutinn í Reykjavík heldur

Dagur B. Eggertsson er borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Egg­erts­son er borg­ar­stjóri í Reykja­vík. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Fylgi Sam­fylk­ing­ar­innar í Reykja­vík mælist rúm­lega 17 pró­sent í nýrri skoð­ana­könnun. Flokk­ur­inn fékk 31,9 pró­sent í sveita­stjórn­ar­kosn­ing­unum 2014 og leiðir meiri­hluta­stjórn í borg­inni sem stendur undir for­ystu Dags B. Egg­erts­sonar borg­ar­stjóra. Borg­ar­full­trúum verður fjölgað úr 15 í 23 næst þegar kosið verður. Þetta er nið­ur­staða nýrrar skoð­ana­könn­unar sem frétta­stofa Frétta­blaðs­ins og Stöðvar 2 lét gera. Sam­fylk­ingin myndi samt sem áður tapa einum borg­ar­full­trúa ef kosið yrði í dag, er með fimm en fengi fjóra. Sam­fylk­ingin hefur beðið afhroð í síð­ustu tveimur þing­kosn­ingum, fékk 12,9 pró­sent árið 2013 og ein­ungis 5,7 pró­sent í lok októ­ber síð­ast­lið­ins. Því er staða flokks­ins í Reykja­vík enn mun sterk­ari en í þjóð­mál­unum þrátt fyrir að fylgið mælist mun lægra en í síð­ustu kosn­ingum.

Meiri­hluti Sam­fylk­ingar, Pírata, Bjartrar fram­tíðar og Vinstri grænna myndi halda velli ef kosið yrði í dag. Hann fengi 14 borg­ar­full­trúa en minni­hluti Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar níu tals­ins. Í dag er meiri­hlut­inn með níu borg­ar­full­trúa en minni­hlut­inn með sex.

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn yrði stærsti flokk­ur­inn í borg­inni og myndi bæta við sig fylgi. Hann fékk 25,7 pró­sent 2014 en mælist nú með 32 pró­sent. Vinstri græn mæl­ast með 15,4 pró­sent fylgi, Píratar með 14,6 pró­sent og Björt fram­tíð með 13 pró­sent fylgi. Saman myndu þessir þrír flokkar fá tíu borg­ar­full­trúa. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn mælist minnstur allra þeirra flokka sem í dag eiga full­trúa í borg­ar­stjórn. Fylgi flokks­ins mælist fjögur pró­sent og hann myndi rétt ná inn manni ef kosið yrði í dag.

Könnun frétta­stofu Frétta­blaðs­ins og Stöðvar 2 var gerð dag­ana 12.-14. des­em­ber. Hringt var í 1.016 ein­stak­linga. 617 svör­uðu og tóku tæp 60 pró­sent afstöðu til spurn­ingar um hvaða flokkur í borg­inni yrði fyrir val­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

sveitarfélag

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár