Aserta-menn kæra – Vilja láta rannsaka Má og fleiri toppa í Seðlabankanum

Arnór Sighvatsson, aðstoðarseðlabankastjóri, og Már Guðmundsson seðlabankastjóri eru tilgreindir í kærum sem lagðar hafa verið fram gegn stjórnendum Seðlabanka Íslands.
Arnór Sig­hvats­son, aðstoð­ar­seðla­banka­stjóri, og Már Guð­munds­son seðla­banka­stjóri eru til­greindir í kærum sem lagðar hafa verið fram gegn stjórn­endum Seðla­banka Íslands. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Tveir þeirra manna sem ákærðir voru fyrir brot gegn gjald­eyr­is­lögum í Aserta-mál­inu svo­kall­aða, Gísli Reyn­is­son og Markús Máni Mika­els­son Maute, hafa lagt fram kæru á hendur æðstu stjórn­endum Seðla­banka Íslands fyrir að bera tví­menn­ing­ana röngum sökum. Þetta kemur fram í nýrri bók eftir sagn­fræð­ing­inn Björn Jón Bragason, Gjald­eyr­is­eft­ir­litið - Vald án eft­ir­lits?. Greint er frá mál­inu í Morg­un­blað­inu í dag.

Þar segir að í kærunni sé einkum kallað eftir rann­sókn á fram­göngu Más Guð­munds­sonar seðla­banka­stjóra, Sigríðar Loga­dóttur, aðal­lög­fræð­ings bank­ans, og Ingi­bjargar Guð­bjarts­dóttur, for­stöðu­manns gjald­eyr­is­eft­ir­lits stofn­un­ar­innar. Í blað­inu segir að fleiri ein­stak­lingar sem hafi sætt rann­sókn og kærum af hálfu Seðla­bank­ans séu að kanna hvort að þeir ætli að kæra bank­ann. Gjald­eyr­is­eft­ir­lit Seðla­banka Íslands hefur skráð 471 rann­sókn­ar­mál vegna brota á gjald­eyr­is­lögum frá því að það var sett á fót. Enginn hefur verið sak­felldur á grund­velli lag­anna en á þriðja tug mála hefur lokið með sátt eða álagn­ingu stjórn­valds­sektar.

Aserta-­málið vakti athygli á sínum tíma og boðað var til sér­staks blaða­manna­fundar í höf­uð­stöðvum Rík­is­lög­reglu­stjóra í jan­úar 2010 þar sem málið var kynnt. Menn­irnir höfðu þá verið kærðir og eignir þeirra fryst­ar.

Ingi­björg Guð­bjarts­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands, Gunnar And­er­sen, þáver­andi for­stjóri Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, og Helgi Magnús Gunn­ars­son, þáver­andi sak­sókn­ari efna­hags­brota og nú aðstoð­ar­rík­is­sak­sókn­ari, voru á fund­inum og var málið sagt for­dæma­laust að umfang­i.

Voru meint ólög­leg við­skipti þeirra sögð hafa numið um þrettán millj­örðum króna, og átt þátt í því að grafa undan gengi krón­unn­ar.

Þegar fjór­menn­ing­arnir voru upp­haf­lega ákærðir af sér­stökum sak­sókn­ara í mars 2013 var ákært fyrir stór­fellt brot á gjald­eyr­is­reglum Seðla­banka Íslands en síðar var fallið frá stórum hluta máls­ins.

Eftir stóð þá ákæra vegna meintra brota á 8. grein laga um gjald­eyr­is­mál þar sem segir að leyfi Seðla­bank­ans þurfi til að eiga milli­göngu um gjald­eyr­is­við­skipti hér á landi. Í des­em­ber 2014 voru þeir sýkn­aðir af þeim hluta máls­ins sem eftir stóð og 18. febr­úar síð­ast­lið­inn, rúmu ári síðar, var mönn­unum til­kynnt að rík­is­sak­sókn­ari ætl­aði sér ekki að áfrýja mál­inu til Hæsta­réttar.

Þorsteinn Már hefur einnig kært

Þetta eru ekki einu kær­urnar vegna fram­ferðis gjald­eyr­is­eft­ir­lits Seðla­banka Íslands. Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, kærði þau Arnór Sig­hvats­son aðstoð­ar­seðla­banka­stjóra og Ingi­björgu Guð­bjarts­dóttur fyrir rangar sak­ar­giftir í síð­ustu viku.

Í kærunni segir að þau hafi ekki aðeins komið „rang­færsl­um, vill­andi mála­til­bún­aði og ófull­nægj­andi upp­lýs­ing­um“ til leiðar heldur einnig kom­ist undan því að koma „full­nægj­andi upp­lýs­ingum til emb­ættis sér­staks sak­sókn­ara við rann­sókn í saka­máli emb­ætt­is­ins“.

Málið snýst um kæru Seðla­bank­ans á hendur Þor­steini Má til sér­staks sak­sókn­ara 9. sept­em­ber 2009 þar sem honum var gefið að sök að hafa brotið gegn gjald­eyr­is­lögum með því að van­rækja skil á erlendum gjald­eyri sem Sam­herji eign­að­ist á tíma­bil­inu 28. nóv­em­ber 2008 til 27. mars 2012. Arnór og Ingi­björg und­ir­rit­uðu kæruna fyrir hönd Seðla­banka Íslands.

Málið á hendur Þor­steini Má og þremur öðrum starfs­mönnum Sam­herja var fellt niður í sept­em­ber í fyrra. Þá hafði Þor­steinn Már marg­ít­rekað sak­leysi sitt og Sam­herja í mál­inu og sagt gögnin sem hann hefði séð frá Seðla­bank­anum vera á mis­skiln­ingi og van­kunn­áttu byggð.

Þor­­steinn sagði í fyrra í sam­tali við Vísi að mál­ið hefði haft gríð­­ar­­legt tjón í ­för með­ ­sér fyrir fyr­ir­tæk­ið en rann­­sóknin stóð ­yf­­ir­ í á fjórða ár, eða frá því mars 2012.

Málið hófst með hús­­leitum sem starfs­­menn Seðla­­bank­ans fram­­kvæmdu í höf­uð­­stöðvum Sam­herja bæð­i á Ak­­ur­eyri og í Reykja­vík. Hús­­leit­irnir voru fram­­kvæmdar á grund­velli grun­­semda um brot á lögum um gjald­eyr­is­­mál.

Í kærunni er bent á að meint brot starfs­manna bank­ans varði allt að tíu ára fang­elsi og refsi­auka um að minnsta kosti tvö ár ef sannað er að þeir hafi ætlað vel­ferð­ar­missi fyrir þol­anda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár