Sérstakur saksóknari fellir niður Samherjamál

Sér­stakur sak­sókn­ari hefur fellt niður saka­mál á hendur Þor­steini Má Bald­vins­syni for­stjóra Samherja og þriggja lyk­il­starfs­manna fyr­ir­tæk­is­ins þar sem grunur lék á að þeir hefðu brotið gegn lögum og reglum um gjald­eyr­is­mál. Þetta kemur fram á vef Vísis.

Þor­steinn segir, í sam­tali við Vísi, málið hafa haft gríð­ar­legt tjón í för með sér fyrir fyr­ir­tækið en rann­sóknin stóð yfir í á fjórða ár, eða frá því mars 2012.

Málið hófst með hús­leitum sem starfs­menn seðla­bank­ans fram­kvæmdu í höf­uð­stöðvum Samherja bæði á Akureyri og í Reykja­vík. Hús­leit­irnir voru fram­kvæmdar á grund­velli grun­semda um brot á lögum um gjald­eyr­is­mál.

Í fram­haldi af rann­sókn kærði Seðla­bank­inn Samherja og tengd fyr­ir­tæki fyrir brot gegn gjald­eyr­is­lögum til sér­staks sak­sókn­ara, en svo kom í ljós að ekki var heim­ilt sam­kvæmt lag­anna bók­staf að kæra fyr­ir­tækin fyrir brot á lög­unum sem um ræddi.

Í fram­hald­inu kærði bank­inn ein­stak­linga innan fyr­ir­tæk­is­ins, það er Þorstein Má Bald­vins­son for­stjóra fyr­ir­tæk­is­ins og þrjá aðra lyk­il­starfs­menn fyrir að brjóta gegn gjald­eyr­is­höft­unum, að því er segir í frétt Vísis.

Meint brot vörð­uðu sektum eða allt að tveggja ára afang­elsi. Við tók rann­sókn á mál­inu sem sem lauk ekki fyrr en á vor­mán­uðum á þessu ári.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár