Samráð sem beindist gegn almenningi

Dómur Hæsta­réttar í verð­sam­ráðs­máli bygg­inga­vörurisa dregur nýja línu í sand­inn í sam­keppn­is­málum.

Sex starfs­menn bygg­inga­vöru­versl­ana voru í gær dæmdir til fang­els­is­vistar í Hæsta­rétti fyrir stór­felld brot gegn sam­keppn­is­lögum, en dóm­arnir eru þó skil­orðs­bundnir að mestu leyti. Með dómnum snéri Hæsti­réttur nið­ur­stöðu Hér­aðs­dóms Reykja­víkur, en í apríl í fyrra voru ell­efu af tólf starfs­mönnum Byko, Húsa­smiðj­unnar og Úlfsins, sem málið beind­ist að, sýkn­aðir.

Þyngsta refs­ingin er átján mán­aða fang­elsi en hún fellur að mestu niður hald­ist skil­orð í þrjú ár, en hún beind­ist að þeim eina sem var fund­inn sekur í hér­aði. Þrír mán­uðir eru þó óskil­orðs­bundnir.

Í dómi Hæsta­réttar segir að brotin hafi beinst gegn almenn­ingi í land­inu.

Slagur við Múrbúðina

Málið hófst í kjöl­far þess að Múrbúðin hóf að veita Byko og Húsa­smiðj­unni aukna sam­keppni með sölu á svo­nefndum gróf­vörum (grófar bygg­inga­vörur eins og t.d. timbur, plötur, steypu­stál, stein­ull o.fl.) haustið 2010. Sneri Múrbúðin sér til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins og upp­lýsti um til­raunir Byko og Húsa­smiðj­unnar til að fá Múr­búð­ina til þess að taka þátt í ólög­mætu sam­ráði. Auk þess upp­lýsti Múrbúðin um verð­sam­ráð milli Byko og Húsa­smiðj­unnar.

Að und­an­gengnu mati á þessum upp­lýs­ingum ákvað Sam­keppn­is­eft­ir­litið að kæra nokkra ein­stak­linga, starfs­menn Byko og Húsa­smiðj­unnar, til lög­reglu vegna gruns um brot gegn sam­keppn­is­lögum. Í kjöl­farið var fram­kvæmd hús­leit hjá Byko og Húsa­smiðj­unni þann 8. mars 2011. Í sam­ræmi við ákvæði sam­keppn­islaga hefur Sam­keppn­is­eft­ir­litið rann­sakað þátt fyr­ir­tækj­anna og lög­regla þátt starfs­manna þeirra.

Samkeppniseftirlitið greip til aðgerða

Hinn 15. Maí í fyrra komst Sam­keppn­is­eft­ir­litið að því að Byko hefði brotið gegn sam­keppn­is­lögum og EES-samn­ing­unum „með umfangs­miklu ólög­mætu sam­ráði við gömlu Húsa­smiðj­una á því tíma­bili sem rann­sóknin tók til, þ.e. til mars 2011 þegar rann­sóknin hófst,“ eins og segir í ákvörðun Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Var Norvik, móð­ur­fé­lag Byko, sektað um 650 millj­ónir króna vegna þessa.

Í því sam­ráðs­broti Byko fólst m.a.:

  • Reglu­bundin, yfir­leitt viku­leg, sam­skipti við gömlu Húsa­smiðj­una um verð, birgða­stöðu o.fl. í því skyni að hækka verð/vinna gegn verð­lækk­unum á svo­nefndum gróf­vörum (gróf­vörur eru t.d. timbur, stein­ull og stál).

  • Samráð við gömlu Húsa­smiðj­una um að hækka verð í öllum til­boðum á gróf­vöru í áföngum.

  • Samráð við gömlu Húsa­smiðj­una um að vinna gegn verð­sam­keppni í sölu á gagn­vörðu timbri (palla­efni) á aðal­sölu­tíma þeirrar vöru og reyna þess í stað að hækka verð.

  • Samráð við gömlu Húsa­smiðj­una um að hækka verð á mið­stöðv­arofnum.

  • Að hafa gert sam­eig­in­lega til­raun með gömlu Húsa­smiðj­unni til að fá Múr­búð­ina til að taka þátt í sam­ráði um verð á gróf­vöru og með því að hafa ákveðið með Byko að fylgj­ast með aðgerðum Múr­búð­ar­innar á mark­aðnum.

Dómur Hæsta­réttar frá því í gær snýr að þessum brotum.

Sér­stakur sak­sókn­ari höfð­aði málið gegn starfs­mönn­unum vegna sam­ráðs um verð á gróf­vörum. Menn­irnir voru hand­teknir í mars 2011 og hefur málið því verið til með­ferðar í rétt­ar­vörslu- og dóms­kerf­inu í fimm á hálft ár.

Rík­is­sak­sókn­ari skaut mál­inu til Hæsta­réttar.

Umfangsmikil brot

Í dómi Hæsta­réttar segir að brotin hafi verið alvar­leg og beinst að almenn­ingi í land­inu. „Brot ákærðu sam­kvæmt I. og II. köflum ákæru stóðu lengi yfir og voru umfangs­mikil, en önnur hátt­semi, sem sak­fellt hefur verið fyrir, fól í sér gróf­ari brot, einkum sú sem IV. kafli ákæru fjallar um. Sökum þess að Byko ehf. og Húsa­smiðjan ehf. voru nán­ast ein­ráð á mark­aðnum á ákæru­tíma­bil­inu telj­ast brotin, sem framin voru í þeim til­gangi að styrkja mark­aðs­stöðu fyr­ir­tækj­anna tveggja, enn alvar­legri en ella hefði verið.Vegna stærðar fyr­ir­tækj­anna og fjölda vöru­teg­unda, sem verð­sam­ráðið náði til, var með því ekki ein­asta brotið gegn mik­il­vægum hags­munum við­skipta­vina þeirra, heldur alls almenn­ings,“ segir í dómnum.

Í til­kynn­ingu frá Byko, sem Gunnar Steinn Pásson almanna­teng­ill sendi, segir að dóm­ur­inn sé „óskilj­an­legur“ og að ekki sé „ósenni­legt að hann verði til þess að auka enn frekar umræður í sam­fé­lag­inu um vinnu­brögð og nið­ur­stöður í Hæsta­rétti á und­an­förnum miss­erum og árum.“ Þessi orð eru ekki frekar skýrð í til­kynn­ing­unni.

Dómarar í mál­inu voru Eiríkur Tómasson, Benedikt Bogason, Greta Bald­urs­dóttir, Þorgeir Örlygs­son og Ingi­björg Bene­dikts­dóttir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár