Ríflega 20 prósent eigna lífeyrissjóða erlendis

Um 40 pró­sent af eignum íslenskra líf­eyr­is­sjóða liggur í verð­tryggðum inn­lendum skulda­bréfum. Sjóð­irnir eiga ríf­lega 140 millj­arða eignir í gegnum hlut­deild­ar­skír­teini í fjár­fest­inga­sjóðum hér á landi.

Heild­ar­eignir íslenskra líf­eyr­is­sjóða námu 3.325 millj­örðum króna í byrjun októ­ber mán­aðar en það er minnkun frá mán­uð­inum á undan upp á 0,3 pró­sent. Um 21 pró­sent af eignum sjóð­anna eru í erlendum verð­bréfum, eða sem nemur um 724 millj­örðum króna.

Íslensku líf­eyr­is­sjóð­irnir eru nú 24 tals­ins en þeim hefur fækkað nokkuð á und­an­förnum árum. Í dag tekur Birta líf­eyr­is­sjóður til starfa, en hann varð til við sam­ein­ingu Sam­ein­aða líf­eyr­is­sjóðs­ins og Stafa líf­eyr­is­sjóðs­ins. Heild­ar­eignir sjóðs­ins nema ríf­lega 310 millj­örðum króna, eða sem nemur tæp­lega tíu pró­sent af íslenska líf­eyr­is­sjóða­kerf­inu. Virkir sjóð­fé­lagar eru um átján þús­und.

Inn­lendar eignir líf­eyr­is­sjóð­anna nema um 2.607 millj­örðum króna, sam­kvæmt hag­tölum Seðla­banka Íslands. Innlán sjóð­anna námu 119 millj­örðum í lok sept­em­ber á þessu ári en um ára­mótin voru þau rúm­lega 150 millj­arðar. Þau hafa því dreg­ist saman um ríf­lega 30 millj­arða á fyrstu níu mán­uðum þessa árs.

Um 1.300 millj­arðar í eigna­safni líf­eyr­is­sjóð­anna liggur í verð­tryggðum skulda­bréfum og 545 millj­arðar í inn­lendum hluta­bréfum. Þar af eru ríf­lega 140 millj­arðar í gegnum hluta­deild­ar­skír­teini í fjár­fest­inga­sjóðum.

Útlán og eigna­leigu­samn­ingar líf­eyr­is­sjóð­anna námu sam­tals 223 millj­örðum króna í lok sept­em­ber en um síð­ustu ára­mót var upp­hæðin fyrir þennan eigna­flokk 179 millj­arðar. Aukn­ingin er því umtals­verð, eða sem nemur 44 millj­örðum króna.

Erlendu eign­irnar eru að lang­mestu leyti í hlut­deild­ar­skír­teinum í hluta­bréfa­sjóðum og síðan í beinni hluta­bréfa­eign. Samtals voru ríf­lega 100 millj­arðar í hluta­bréfum í lok sept­em­ber á þessu ár, en 596 millj­arðar í hlut­deild­ar­skír­teinum í sjóðum. Frá því um ára­mót hafa eignir í erlendri mynt dreg­ist saman um tíu millj­arða króna, og má gera ráð fyrir að geng­is­styrk­ing krón­unnar gagn­vart helstu erlendu við­skipta­myntum spila þar inn í.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár