Fleiri Íslendingar flytja burt en koma heim

290 fleiri Íslend­ingar fluttu burt frá Íslandi en flutt­ust til lands­ins á þriðja árs­fjórð­ungi þessa árs, sam­kvæmt nýjum tölum frá Hag­stof­unni. 1.120 manns fluttu til lands­ins á þessum árs­fjórð­ungi, en 1.410 fluttu burt.

Alls hafa því 250 fleiri Íslend­ingar flutt í burtu frá land­inu en hafa flutt aftur til lands­ins á fyrstu níu mán­uðum árs­ins. Á fyrsta árs­fjórð­ungi fluttu 110 fleiri burt en fluttu til lands­ins og á öðrum árs­fjórð­ungi voru aðfluttir umfram brott­flutta hins vegar 150.

Flestir hafa flutt til Norð­ur­land­anna, en 1.830 Íslend­ingar hafa flutt til Dan­merkur, Sví­þjóðar og Noregs á fyrstu níu mán­uðum árs­ins.

Eitt mesta brottflutningsár í fyrra

Í fyrra fluttu 1.265 fleiri íslenskir rík­is­borg­arar úr landi en fluttu til lands­ins. Árið var eitt mesta brott­flutn­ingsár frá því að mæl­ingar á þessu hófust, og aðeins fimm sinnum frá árinu 1961 höfðu mark­tækt fleiri brott­fluttir verið umfram aðflutta, sam­kvæmt gagna­grunni Hag­stof­unn­ar. Það var alltaf í kjöl­far kreppu­ára, eða árin 107, 1995, 2009, 2010 og 2011, en árið 2015 skar sig því tölu­vert úr af því að ekki ríkti kreppa hér á land­i.

Hag­stofan spáir áfram­haldi næstu 50 árin

Og sam­kvæmt Hag­stof­unni er ekki neitt útlit fyrir að þessi þróun muni breyt­ast. Því er þvert á móti spáð í mann­fjölda­spá Hag­stof­unnar fyrir árin 2016 til 2065 að „ís­lenskir rík­is­borg­arar sem flytja frá land­inu munu halda áfram að vera fleiri en þeir sem flytja til lands­ins.“ Því er spáð að að með­al­tali verði um 850 íslenskir rík­is­borg­arar brott­fluttir en aðfluttir á hverju ári.

Fjöldi aðfluttra umfram brott­flutta verður hins vegar meiri áfram, en það er fyrst og fremst vegna erlendra inn­flytj­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

mannfjöldi

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár