Krefjast tafarlausrar afturköllunar á ákvörðun kjararáðs

Samtök atvinnu­lífs­ins og Við­skipta­ráð mót­mæla ákvörðun kjara­ráðs um hækkun á launum ráða­manna um tugi pró­senta.

„Í lögum um kjara­ráð er skýrt kveðið á um að ráðið skuli ætíð taka til­lit til almennrar þró­unar kjara­mála á vinnu­mark­aði. Þetta ákvæði hefur ráðið að engu haft í úrskurði um þing­far­ar­kaup og í úrskurðum um laun emb­ætt­is­manna und­an­farið ár,“ segir í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins og Við­skipta­ráði, vegna ákvörð­unar kjara­ráðs um að hækka laun þing­manna, ráð­herra og for­seta Íslands um tugi pró­senta, en ákvörð­unin var tekin á kjör­dag, 29. októ­ber. Í ráð­inu sitja Jónas Þór Guð­munds­son, Óskar Bergsson, Svan­hildur Kaaber, Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son og Hulda Árna­dóttir.

Hags­muna­sam­tök á vinnu­mark­aði, bæði innan verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar og hjá hinu opin­bera og atvinnu­rek­endum, hafa mót­mælt ákvörð­un­inni harð­lega, og hefur Dagur B. Egg­erts­son borg­ar­stjóri kraf­ist þess að hún verði aft­ur­kölluð.

Í til­kynn­ingu frá Samtökum atvinnu­lífs­ins segir að ákvörð­unin kjara­ráðs sé ekki í sam­ræmi við launa­þróun á vinnu­mark­aði. „Ákvörðun kjara­ráðs um launa­hækk­anir þing­manna og ráð­herra er í engu sam­hengi við almenna þróun á vinnu­mark­aði, hvort sem horft er til skemmri eða lengri tíma. Standi ákvörð­unin er vinnu­mark­að­ur­inn settur í full­komið upp­nám með til­heyr­andi tjóni fyrir almenn­ing og atvinnu­líf,“ segir í til­kynn­ing­unni. 

Þá er ítrekuð áskorun til Alþingis um að hafa ákvörð­unum kjara­ráðs.

„Samtök atvinnu­lífs­ins og Við­skipta­ráð Íslands skora á nýtt Alþingi að hafna nýlegum ákvörð­unum kjara­ráðs og leggja málið í sátta­ferli. Með því er bæði átt við úrskurði um þing­far­ar­kaup og laun ráð­herra sem og nýlega úrskurði um ríf­legar hækk­anir á launum emb­ætt­is­manna. Að öðrum kosti er borin von að aðilar vinnu­mark­að­ar­ins geti haldið áfram veg­ferð sinni um bætt vinnu­brögð við kjara­samn­inga­gerð, ferli sem kennt hefur verið við Salek,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Stór verkefni í uppnámi

Umbætur á vinnu­mark­aði eru í til­kynn­ing­unni sagðar stærsta verk­efni nýrrar rík­is­stjórnar. Takist stjórn­völdum ekki að upp­fylla for­sendur Salek-sam­komu­lags­ins munu kjara­deilur raska efna­hags­legu jafn­vægi og standa í vegi fyrir öðrum mik­il­vægum upp­bygg­ing­ar­verk­efnum. „Lífs­kjara­bati síð­ustu ára á sér fá for­dæmi. Kaup­máttur launa hefur auk­ist um 20% á síð­ustu þremur árum. Á sama tíma hafa skuldir heim­ila, fyr­ir­tækja og hins opin­bera hafa lækkað hratt. Sterkur hag­vöxtur og hag­felldar ytri aðstæður hafa gert þessa þróun mögu­lega án nei­kvæðra áhrifa á verð­lag. Til að unnt verði að varð­veita þennan árangur þurfa launa­hækk­anir næstu ára að þró­ast í sam­ræmi við getu hag­kerf­is­ins til að standa undir þeim Á und­an­förnum árum hafa aðilar vinnu­mark­að­ar­ins lagt í mikla vinnu við end­ur­skipu­lagn­ingu á fyr­ir­komu­lagi kjara­samn­inga­gerðar. Grund­völlur þeirrar vinnu eru mark­mið um auk­inn stöð­ug­leika, lækkun vaxta og stöðugt verð­lag. Þannig má bæta kjör heim­il­anna og styrkja rekstr­ar­grund­völl íslenskra fyr­ir­tækja með heild­ar­hags­muni að leið­ar­ljósi. Nýlegar ákvarð­anir kjara­ráðs eru í full­kominni and­stöðu við þessa stefnu­mörkun,“ segir enn fremur.

Sam­kvæmt úrskurði kjara­ráðs verða laun for­seta Íslands 2.985.000 krónur á mán­uði, þing­far­ar­kaup alþing­is­manna verður 1.101.194 krónur á mán­uði, laun for­sæt­is­ráð­herra að með­töldu þing­far­ar­kaupi verða 2.021.825 krónur á mán­uði og laun ann­arra ráð­herra að með­töldu þing­far­ar­kaupi verða 1.826.273 krónur á mán­uði. Laun for­sæt­is­ráð­herra voru áður tæp­lega 1,5 millj­ónir en laun for­seta voru tæpar 2,5 millj­ón­ir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár