Segir starfsmenn vogunarsjóða hafa opnað kampavínsflösku þegar hann hætti

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son hefur birt grein á ensku þar sem hann end­ur­tekur þá skoðun sína að hann sé fórn­ar­lamb vand­lega skipu­lagðrar póli­tískrar árásar. Hann segir stað­fest að ásak­anir á hendur honum séu ósannar.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, segir að veislu hafi verið slegið upp á nokkrum stöðum í Reykja­vík þegar hann steig til hliðar í apríl og að hann hafi fengið fréttir af því að „hópur manna í New York hefði opnað kampa­víns­flösku af til­tek­inni teg­und (sem ég man ekki hver var), en flaskan, sem geymd hafði verið uppi á hillu, var kölluð Íslands­flaskan.“ Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu sem hann birti á Facebook-síðu sinni í dag.

Þeir erlendu aðilar sem Sig­mundur Davíð skrifar um eru vog­un­ar­sjóðir sem voru á meðal stærstu kröfu­hafa í bú föllnu bank­anna. Í stöðu­upp­færsl­unni segir hann að þótt “Íslands­flaskan“ hafi verið opnuð sé afskiptum þess­ara aðila að málum hér­lendis ekki lokið. Nú séu vog­un­ar­sjóð­irnir og tals­menn þeirra „farnir að láta aftur á sér kræla meðal ann­ars með aug­lýs­ingum í blöðum hér á landi og erlendis. Erlendir fjöl­miðlar virð­ast auk þess sýna kosn­ingum á Íslandi tals­verðan áhuga.

Á sama tíma veldur þró­unin í stjórn­málum hér á landi og víðar mér tals­verðum áhyggjum.“

Birtir grein á ensku

Þess vegna hafi hann ákveðið að birta grein á ensku sem hann hafi skrifað á sínum tíma og hann hafi ætlað að birta „þegar ég væri kom­inn aftur á fullt í stjórn­mála­bar­átt­unni og óvissu­á­standi í Fram­sókn­ar­flokknum væri lokið. Þau mál þró­uð­ust eins og þau gerðu og standa eins og þau standa.“

Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra í apríl eftir að Wintris-málið kom upp. Í kjöl­far þess áttu sér stað fjöl­menn­ustu mót­mæli Íslands­sög­unnar þar sem á þriðja tug þús­und Íslend­inga mót­mæltu honum og öðrum stjórn­mála­mönnum sem var að finna í Panama­skjöl­unum svoköll­uðu. Sig­mundur Davíð snéri síðan aftur úr leyfi í lok júlí og ætl­aði sér að hefja fulla þátt­töku í stjórn­málum að nýju. Hann vildi að það yrði dregið til baka að kosn­ingar yrðu haldnar fyrr og koma í veg fyrir að flokks­þing Fram­sókn­ar­flokks­ins yrði haldið nú í haust. Hvorugt gekk eftir, Sig­mundur Davíð átti ekki end­ur­kvæmt í rík­is­stjórn og í byrjun októ­ber tap­aði hann í for­manns­kosn­ingum fyrir Sigurði Inga Jóhanns­syni.

Segir staðfest að allar ásakanir á hendur honum séu ósannar

Í grein­inni sem Sig­mundur Davíð birtir á ensku á heima­síðu sinni fer hann meðal ann­ars yfir það sem hann telur vera gríð­ar­legan árangur Íslands undir sinni stjórn. Þar rekur Sig­mundur Davíð Wintris-málið á þann hátt sem hann hefur nokkrum sinnum gert á und­an­förnum mán­uðum. Þ.e. að nú sé stað­fest að allar ásak­anir á hendur honum vegna Wintris-máls­ins hafi verið ósannar en að fjöl­miðlar og aðrir óvil­hallir aðilar hafi notað þær til að fram­kvæma póli­tískar árásir á sig sem hefðu verið vand­lega und­ir­búnar í sjö mán­uði. Þar hafi til­gang­ur­inn helgað með­alið og stað­reyndir verið látnar vera.

Kjarninn skoð­aði full­yrð­ingar Sig­mundar Davíðs um Wintris-málið, kosn­ingar og hvort Tortóla væri skatta­skjól í Stað­reynda­vakt sem birt var í lok sept­em­ber. Nið­ur­staða hennar var sú að ástæða þess að verið sé að kjósa snemma séu Panama­skjöl­in, og stærsta málið þar er Wintris-­mál Sig­mundar Dav­íðs. Skjöl sýna einnig fram á að Sig­mundur Davíð átti Wintris og seldi sinn hlut í lok árs 2009, og Tortóla er skil­greint sem skatta­skjól, hvað sem líður skatt­greiðsl­um. Það var því nið­ur­staða Stað­reynda­vakt­ar­innar að sam­an­dregið séu þessar þrjár full­yrð­ingar hauga­lyg­i.

Sig­mundur Davíð end­ur­tekur síðan gagn­rýni sína á fjöl­miðla sem hann segir enn spila stóra rullu í hinu lýð­ræð­is­lega ferli. Til þess að standa undir þessu hlut­verki vill Sig­mundur Davíð hins vegar að fjöl­miðlar sýni aðhald og skuld­bind­ingu gagn­vart stað­reyndum. Það séu rætur rök­studdrar rök­ræðu. Þegar rök­ræða hjálpi rót­tækum lausnum að sigr­ast á kreddum þurfi að vera vilji til að inn­leiða þær lausnir. „Það sem við þurfum er rót­tæk skyn­sem­is­hyggja.“

Hægt er að lesa grein Sig­mundar Davíðs hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Erlent

Guardian segir engan smán­aðan þjóð­ar­leið­toga jafn óhepp­inn og Sigmund

„Af öllum þjóð­ar­leið­tog­unum sem urðu sér til skammar vegna fal­ins auðs á aflandseyjum, þá var eng­inn jafn óhepp­inn og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Örvænt­inga­full til­raun hins óheppna for­sæt­is­ráð­herra Íslands við að útskýra und­ir­skrift sína á skjölum Wintris Inc., félags á Bresku Jóm­frú­areyj­unum sem hélt á hlut í einum af föllnu bönkum þjóð­ar­innar, var fest á filmu.“ Svona hefst umfjöllun á vef...
Fréttir

Vill ekki svara því hvort Ólafur Ragnar hafi ætlað að mynda utan­þings­stjórn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill ekki svara spurn­ingum um hverjar hann telur áætl­anir Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þáver­andi for­seta Íslands, hafa verið þann 5. apríl síð­ast­lið­inn þegar Sig­mundur Davíð fór skyndi­lega til fundar við hann. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra síðar þann dag. Í við­tali á Útvarpi Sögu í gær var hann spurður hvort hann...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár