Sigmundur átti Wintris og Tortóla er skattaskjól

Stað­reynda­vakt Kjarnans skoðar full­yrð­ingar Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar um Wintris-málið, kosn­ingar og það hvort Tortóla er skatta­skjól.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins og fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, fór mik­inn í upp­hafi umræðu­þáttar á RÚV á fimmtu­dag­inn, eftir að sýnd hafði verið sam­an­tekt á kjör­tíma­bil­inu og sagt að það væri vegna hans og Wintris-máls­ins sem væri verið að kjósa snemma. Sig­mundur kann­að­ist ekki við það, og sagði svo að hann hafi aldrei átt aflands­fé­lag og að aflands­fé­lag konu hans hafi ekki verið í skatta­skjóli.

„Í fyrsta lagi verð ég nú að gera athuga­semd við að það sé verið að kjósa snemma vegna þessa máls sem þú rekur. [...] Ég á ekki, hef aldrei átt aflands­fé­lag. [...] Ég hef aldrei átt hlut í þessum eignum. [...] En það er hins vegar til­fellið að eig­in­kona mín átti eignir í ákveðnu landi sem hefur aldrei verið í skatta­skjóli. Þetta er land sem er með tví­skött­un­ar­samn­inga við Ísland, upp­lýs­inga­skipta­samn­inga við Ísland.“

Kjarninn ákvað að kanna hvort þessar þrjár full­yrð­ingar Sig­mundar Davíðs eigi við rök að styðj­ast.

1. Er verið að kjósa snemma vegna Wintris-málsins?

3. apríl síð­ast­lið­inn var sýndur sér­stakur Kast­ljóss­þáttur þar sem greint var frá tengslum Sig­mundar Davíðs, Bjarna Bene­dikts­sonar og Ólafar Nordal við aflands­fé­lög í skatta­skjólum. Daginn eftir, þann 4. apríl, voru haldin mót­mæli sem lög­regla og kann­anir segja að séu stærstu mót­mæli Íslands­sög­unnar. Yfir­skrift mót­mæl­anna var krafan um að flýta kosn­ingum. Flestir sem mættu sögð­ust vera að mót­mæla spill­ingu stjórn­mála og hags­muna­tengslum ráð­herra, til þess að knýja á um kosn­ingar strax og til þess að Sig­mundur Davíð segði af sér.

Degi síðar fór af stað ótrú­leg atburða­rás. Þá var það Sig­mundur Davíð sjálfur, sem greindi frá því á Facebook-síðu sinni, að hann hefði á fundi með Bjarna Bene­dikts­syni sagt að ef þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks­ins „treystu sér ekki til að styðja rík­is­stjórn­ina við að ljúka sam­eig­in­legum verk­efnum okkar myndi ég rjúfa þing og boða til kosn­inga hið fyrsta.“ Að þessu búnu fór hann á Bessa­staði, þar sem honum og Ólafi Ragnari Gríms­syni, þáver­andi for­seta, ber ekki saman um hvort Sig­mundur hafi form­lega óskað eftir þing­rofi eða ekki. Að minnsta kosti sagði Ólafur Ragnar að hann hefði hafnað beiðni um þing­rof. Þegar deg­inum lauk hafði verið til­kynnt að Sig­mundur Davíð myndi stíga til hliðar sem for­sæt­is­ráð­herra og Sigurður Ingi tæki við. Þeir Bjarni Bene­dikts­son kynntu málið fyrir frétta­mönnum degi síðar.

„Í þess­ari viku hefur með stóru skrefi, sögu­legu, verið brugð­ist við þeim aðstæðum sem skap­ast hafa í íslensku sam­fé­lagi með því að for­sæt­is­ráð­herra hefur stigið til hliðar og í hans stól mun þá setj­ast Sigurður Ingi, aftur í sam­ræmi við þá verka­skipt­ingu sem verið hefur milli flokk­anna. En við ætlum að stíga við­bót­ar­skref til þess að mæta kröfum um að virkja lýð­ræðið í land­inu, til þess að koma til móts við þá stöðu sem hefur mynd­ast og hyggj­umst stefna að því að halda kosn­ingar í haust, stytta kjör­tíma­bilið um eitt lög­gjaf­ar­þing.“ Þetta sagði Bjarni þegar hann og Sigurður Ingi kynntu um áfram­hald­andi sam­starf flokk­anna tveggja eftir að Sig­mundur Davíð sagði af sér emb­ætt­inu.

Áður en þetta gerð­ist hafði stjórn­ar­and­staðan boðað að hún myndi leggja fram van­traust­s­til­lögu og óska eftir þing­rofi um leið og þing kæmi saman aftur. Það var svo gert seinna sömu vik­una.

2. Átti Sigmundur aldrei aflandsfélag?

Félagið Wintris Inc. var stofnað utan um arf Önnu Sig­ur­laugar Páls­dóttur, eig­in­konu Sig­mundar Davíðs, af Mossack Fonseca fyrir Lands­bank­ann í Lúx­em­borg árið 2007. Félagið var skráð á Bresku Jóm­frúreyj­unum, á Tortóla. Sig­mundur Davíð og Anna Sig­ur­laug voru bæði skráð eig­endur félags­ins frá upp­hafi, eins og sjá má í skjal­inu hér að neðan.

Þau voru ekki gift á þeim tíma sem félagið var stofnað, en hafa gefið þær skýr­ingar að þau hafi verið með sam­eig­in­legan fjár­hag og ekki hugsað út í það að þau hafi bæði verið skráð fyrir félag­inu. Það hafi alltaf verið ljóst að eign­irnar væru Önnu. Það hafi svo verið þegar þau ákváðu að gifta sig sem þau hafi þurft að fara yfir ýmis mál og á sama tíma hafi þau skipt um umsýslu­fyr­ir­tæki. Hið nýja hafi bent þeim á að þau væru bæði eig­endur félags­ins. Þetta var árið 2009, og á gaml­árs­dag, dag­inn áður en ný lög­gjöf tók gildi á Íslandi, seldi Sig­mundur Davíð Önnu Sig­ur­laugu sinn hlut á einn dal, eins og sjá má hér að neðan.

3. Er Tortóla skattaskjól?

Lág­skatta­svæði sam­kvæmt fjár­mála­ráðu­neyt­inu er: „Ríki eða lög­sagn­ar­um­dæmi telst vera lág­skatta­ríki þegar tekju­skattur af hagn­aði félags, sjóðs eða stofn­unar, sem um ræðir, er lægri en tveir þriðju hlutar af þeim tekju­skatti sem hefði verið lagður á félagið, sjóð­inn eða stofn­un­ina hefði hún verið heim­il­is­föst á Íslandi.“

Bresku Jóm­frúr­eyj­arnar eru lág­skatta­svæði sam­kvæmt lista ráðu­neyt­is­ins, og sá listi byggir á lista OECD. 

Helstu ein­kenni skatta­skjóla sam­kvæmt OECD eru:

  1. Enginn eða mjög lágur tekju­skattur
  2. Skortur á skil­virkum upp­lýs­inga­skiptum
  3. Skortur á gagn­sæi
  4. Engin raun­veru­leg starf­semi fer þar fram

Skatta­skjól gegna þrí­þættu hlut­verki,

sam­kvæmt OECD

: í fyrsta lagi eru þau aðsetur fyrir svokölluð skúffu­fyr­ir­tæki, það er engin raun­veru­leg starf­semi fer þar fram heldur er þar ein­göngu póst­fang, í öðru lagi útvega þau mögu­leika á að skrá og færa bók­hald eftir smekk við­kom­andi, en ekki við­ur­kenndum bók­halds­reglum, og síð­ast en ekki síst koma þau í veg fyrir að skatt­yf­ir­völd geti rann­sakað banka­reikn­inga við­kom­andi.

Upp­lýs­inga­skipta­samn­ingur á milli Íslands og Bresku Jóm­frúreyj­anna, var gerður þann 18. maí árið 2009, en sam­kvæmt þessum lista utan­rík­is­ráðu­neyt­is­ins hefur hann ekki verið full­giltur. Hann tók þó gildi sam­kvæmt Stjórn­ar­tíð­indum árið 2011. Tví­skött­un­ar­samn­ingur við Bresku Jóm­frúr­eyjar er líka í gildi, en hann er með tak­mörk­uðu umfangi. Meðal þeirra sem hafa tjáð sig um Bresku Jóm­frúr­eyj­arnar er Bryndís Krist­jáns­dóttir skatt­rann­sókn­ar­stjóri, sem sagði til að mynda fyrir tveimur árum að erfitt væri að fá upp­lýs­ingar um skatta­skjól því ýmsar banka- og fjár­hags­upp­lýs­ingar lægju ekki fyrir. Hún nefndi sér­stak­lega Bresku Jóm­frúr­eyj­arnar í því sam­hengi. Upp­lýs­ing­arnar séu ekki aðeins erfitt að sækja eða nálg­ast, þær séu ein­fald­lega ekki til staðar.

Niðurstaða Staðreyndavaktarinnar

Ástæða þess að verið er að kjósa snemma eru Panama­skjölin, og stærsta málið þar er Wintris-mál Sig­mundar Davíðs. Skjöl sýna fram á að Sig­mundur Davíð átti Wintris og seldi sinn hlut í lok árs 2009, og Tortóla er skil­greint sem skatta­skjól, hvað sem líður skatt­greiðslum. Það er því nið­ur­staða Stað­reynda­vakt­ar­innar að sam­an­dregið séu þessar þrjár full­yrð­ingar hauga­lygi.

Ertu með ábend­ingu fyrir Stað­­reynda­vakt Kjarn­ans? Sendu hana á sta­d­reynda­vakt­in@kjarn­inn.­­is.

*Þessi stað­reynda­vakt hefur verið upp­færð með upp­lýs­ingum um að upp­lýs­inga­skipta­samn­ingur við Bresku Jóm­frúr­eyjar tók gildi árið 2011 sam­kvæmt Stjórn­ar­tíð­indum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár