Trúnaðarbrot lykilmanns í Seðlabankanum var fyrnt

Sturla Pálsson við­ur­kenndi við yfir­heyrslur árið 2012 að hann hefði brotið trúnað. Samkvæmt lögum fyrn­ast slík brot á tveimur árum. Brot Sturlu var framið 2008 og fyrnd­ist því árið 2010.

Trún­að­ar­brot Sturlu Páls­sonar, fram­kvæmda­stjóra mark­aðsvið­skipta og fjár­stýr­ingar hjá Seðla­banka Íslands, sem hann ját­aði við skýrslu­töku hjá emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara árið 2012, var fyrnt. Sturla, sem hafði stöðu vitnis í mál­inu sem hann var yfir­heyrður út af, við­ur­kenndi brot á trún­aði þegar hann upp­lýsti eig­in­konu sína, sem þá var lög­maður sam­taka fjár­mála­fyr­ir­tækja, um aðgerðir Seðla­bank­ans í aðdrag­anda setn­ingu neyð­ar­lag­anna haustið 2008.

Samkvæmt 136. grein almennra hegn­ing­ar­laga skal opin­ber starfs­maður, sem „segir frá nokkru, er leynt á að fara og hann hefur fengið vit­neskju um í starfi sínu eða varðar emb­ætti hans eða sýslan[...]sæta varð­haldi eða fang­elsi allt að einu ári. Hafi hann gert það til þess að afla sér eða öðrum órétt­mæts ávinn­ings, eða noti hann slíka vit­neskju í því skyni, má beita fang­elsi allt að 3 árum.“

Heim­ildir Kjarnans herma að bæði Fjár­mála­eft­ir­litið (FME) og emb­ætti sér­staks sak­sókn­ara hafi rann­sakað ítar­lega hvort þeir sem skráðir voru á inn­herj­a­lista hafi átt við­skipti með fjár­mála­gjörn­inga í kringum hrunið. Á meðal þeirra sem voru á þeim listum var lyk­il­starfs­fólk Seðla­banka Íslands, meðal ann­ars Sturla. Þær rann­sóknir sýndu ekki fram á að nein óvenju­leg við­skipti hefðu átt sér stað í kringum hann. Þar af leið­andi hafi Sturla ekki brotið trúnað til að afla sér eða öðrum órétt­mæts ávinn­ings og refsiramm­inn í máli hans því eitt ár. Í 81. grein almennra hegn­ing­ar­laga segir að sök fyrn­ist á tveimur árum „þegar ekki liggur þyngri refs­ing við broti en 1 árs fang­elsi“. Þar sem Sturla við­ur­kenndi að hafa brotið trúnað árið 2012 í sím­tali sem átti sér stað 2008 var brotið fyrnt árið 2010.

Þá flækti það málið að Sturla var kall­aður inn sem vitni í mjög stóru máli sem sner­ist um rann­sókn á meintum tug millj­arða króna skila­svikum. Hann var því ekki með stöðu sak­born­ings við yfir­heyrsl­una og það sem hann sagði við yfir­heyrsl­una og var til þess fallið að fella á hann sök, gat því ekki verið notað gegn Sturlu.

Rannsókn á meintum tug milljarða skilasvikum

Málið sem sér­stakur sak­sókn­ari var að rann­saka snérist um greiðslur sem taldar voru hafa átt sér stað neyð­ar­laga­dag­inn 6. októ­ber. Fimm fyrr­ver­andi stjórn­endur hjá Lands­banka Íslands voru grun­aðir um skila­svik vegna milli­færslu á um 20 millj­arða króna af reikn­ingi Lands­bank­ans í Seðla­bank­anum yfir til MP banka og Straums vegna end­ur­hverfra við­skipta við Seðla­bank­ann og kaupa bank­ans á verð­bréfum í sjóðum Landsvaka eftir lokun sjóð­anna. Daginn eftir milli­færsl­urnar tók skila­nefnd yfir Lands­bank­ann.

Sér­stakur sak­sókn­ari sendi frá sér frétta­til­kynn­ingu í jan­úar 2011 þar sem greint var frá hús­leitum vegna rann­sóknar máls­ins. Þar kom meðal ann­ars fram að emb­ættið hefði nálg­ast gögn í Seðla­bank­anum í tengslum við rann­sókn­ina. Málið var síðan rann­sakað að fullu hjá sér­stökum sak­sókn­ara áður en ákvörðun var tekin um að fella það niður í nóv­em­ber 2013 þar sem nið­ur­staða rann­sókn­ar­innar, ásamt gögnum og fram­burðum í mál­inu, var ekki talin lík­leg til að leiða til sak­fell­ingar.

Hefði átt að blessa Ísland á sunnudegi

Í vitna­skýrslu Sturlu kemur fram að hann hafi verið mjög mikið spurður út í sam­skipti sín við stjórn­endur Lands­banka Íslands um hrun­helg­ina. Þar var­aði hann meðal ann­ars sjálfur við því að inn­herjar gætu nýtt sér það hversu seint neyð­ar­lögin voru sett.

Í vitna­skýrsl­unni seg­ir:„Sturla kvað að Geir H. Haarde hefði átt að stöðva einum sól­ar­hring fyrr (Guð blessi Ísland ávarp­ið). Hann [Sturla] kvaðst hafa verið áhyggju­fullur yfir því að bank­arnir skyldu opn­aðir á mánu­deg­in­um. Neyð­ar­lögin hefðu átt að koma sól­ar­hring fyrr. Reiknar með að í bönk­unum sé að finna hreyf­ingar sem áttu upp­runa sinn í því að menn töldu góðar líkur á því að þeir færu á haus­inn. Það hefði átt að sam­þykkja neyð­ar­lögin og „Blessa Ísland" á sunnu­dags­kvöld­ið."

Sagði að einn bank­inn væri búinn að kasta inn hand­klæð­inu

Í vitna­skýrsl­unni er efni sím­tals sem Sturla átti við eig­in­konu sína tveimur dögum fyrir setn­ingu neyð­ar­laga rak­ið. Efni sím­tals­ins er svona: „Á bls 1 kemur fram að hugs­an­legt sé að einum banka verði bjarg­að. Á bls 3 kemur að SÞÁ (Sig­ur­jón Þ. Árna­son banka­stjóri Lands­bank­ans) sé hættur að hringja og hann sé búinn að kasta inn hand­klæð­inu, hann sé búinn að gef­ast upp. Einnig kemur fram að það séu bara Kaup­þings­menn núna Lands­bank­inn sé far­inn og ECB (Evr­ópski Seðla­bank­inn) muni trig­gera það."

Heim­ildir Kjarnans herma að rann­sóknir hafi síðar leitt í ljós að málið hafi ekki verið svona klippt og skorið. Stjórn­endur Lands­bank­ans hafi haldið áfram að reyna að bjarga bank­anum alveg fram að setn­ingu neyð­ar­lag­anna og jafn­vel eftir að þau tóku gildi.

Ekki kannað sér­stak­lega af hálfu Seðla­bank­ans

Eig­in­kona Sturlu var á þessum tíma lög­fræð­ingur Sam­taka fjár­mála­fyr­ir­tækja, hags­muna­sam­taka allra banka og spari­sjóða á Íslandi, sem hvort tveggja Lands­bank­inn og Kaup­þing áttu aðild að.

Sturlu var kynnt efni sím­tals­ins við skýrslu­tök­una hjá sér­stökum sak­sókn­ara. Í vitna­skýrsl­unni seg­ir:„St­urla kvaðst nátt­úru­lega vera að brjóta trúnað með því að ræða þetta við kon­una sína.“

Í svari Seðla­banka Íslands við fyr­ir­spurn Kast­ljóss vegna máls­ins segir að Sturla hafi grein Má Guð­munds­syni seðla­banka­stjóra frá umræddu sím­tali í lok síð­ustu viku. „Það hefur ekki verið kannað sér­stak­lega af hálfu Seðla­bank­ans.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár