Sigmundur Davíð fékk senda tölvuveiru - Rannsókn á tölvuinnbroti hætt

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, hefur birt bréf frá Rík­is­lög­reglu­stjóra vegna skoð­unar á meintu inn­broti í tölvu hans þegar Sig­mundur Davíð gengi starfi for­sæt­is­ráð­herra. Þar kemur fram að hann hafi fengið senda þekkta tölvu­veiru í tölvu­pósti og að rík­is­lög­reglu­stjóri hafi kallað eftir gögnum um málið í kjöl­far umfjöll­unar fjöl­miðla. Rannsókn emb­ættis hafi hins vegar, að höfðu sam­ráði við rík­is­sak­sókn­ara, verið hætt nokkrum dögum eftir að hún hófst. Það var gert eftir að upp­lýs­ingar bár­ust frá rekstr­ar­fé­lagi Stjórn­ar­ráðs Íslands sem hafði þegar skoðað hvort að tölva Sig­mundar Davíðs hefði orðið fyrir tölvu­inn­broti kom­ist að því að engin stað­fest merki væru um slíkt í tölvu for­sæt­is­ráð­herr­ans fyrr­ver­andi.

Í stöðu­upp­færslu á Facebook vegna þessa segir Sig­mundur Davíð að frá því að hann „hóf þátt­töku í stjórn­málum hefur hópur fólks talið það hlut­verk sitt að reyna að gera flest það sem ég segi ótrú­verð­ugt, allt frá stórum til­lögum í efna­hags­málum að frá­sögn um hvers­dags­lega atburði.

Á mið­stjórn­ar­fundi um dag­inn gerði ég grín að því að menn hefðu meira að segja talið það til marks um „para­noju“ að telja að menn myndu gera ýmis­legt til að verja hags­muni sem voru álíka miklir og verð­mæti allra mann­virkja í Reykja­vík og hring­inn í kringum landið. Það var því skondin kald­hæðni að fréttir af fund­inum næstu daga á eftir snér­ust aðal­lega um atriði sem ég hafði nefnt í fram­hjá­hlaupi, þ.e. að brot­ist hefði verið inn í tölv­una mína, og leit­ast við að gera það ótrú­verð­ugt. Einn fjöl­mið­ill fékk mann til að halda því fram að það að brot­ist hefði verið inn í tölv­una líkt­ist vís­inda­skáld­sögu.“

Í krafti upp­lýs­inga­laga fékk Sig­mundur Davíð afhent gögn sem varða málið frá Rík­is­lög­reglu­stjóra. „Þar birt­ast sam­skipti rík­is­lög­reglu­stjóra (RLS) og rekstr­ar­fé­lags Stjórn­ar­ráðs­ins (RFS) auk þess sem afrit voru í sumum til­vikum send til for­sæt­is­ráðu­neyt­is­ins og rík­is­sak­sókn­ara. 
Fram kemur að tölvu­póstur sem sendur var á mig og lát­inn líta út fyrir að hann hefði komið frá öðrum en þeim sem sendi hann hefði lík­lega inni­haldið þekkta tölvu­veiru að nafni „Poison Ivy backdoor“. Um þá veiru segir í bréfi frá RFS: „Einkenni hennar eru þær að hún opnar bak­dyr inn á tölvu við­kom­andi fyrir aðgengi árás­ar­að­ila að tölv­unni“. Þótt veiran hafi ekki fund­ist í tölv­unni er tekið fram að „Algengt er með slíka veirur að árás­ar­að­il­inn hreinsar til eftir sjálfan sig að lok­inni aðgerð“. Atvikið var skráð sem örygg­is­at­vik hjá RFS.
Embætti rík­is­lög­reglu­stjóra fylgdi mál­inu svo eftir og hafði sam­ráð um það við rík­is­sak­sókn­ara. Ástæða er til að taka fram að ekki er annað að sjá en að RLS hafi staðið mjög fag­lega að með­ferð þessa máls og það er í sam­ræmi við reynslu mína af emb­ætt­inu sem for­sætis- og dóms­mála­ráð­herra. “

Engin staðfest ummerki um tölvuinnbrot

Kjarninn greindi frá því 12. sept­em­ber síð­ast­lið­inn að engin stað­fest ummerki hefðu fund­ist um það að inn­brot hafi átt sér stað í tölvu Sig­mundar Dav­íðs við ítar­lega skoðun rekstr­ar­fé­lags stjórn­ar­ráðs­ins.

Þetta kom fram í svari rekstr­ar­fé­lags­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans, en Sig­mundur Davíð hélt því fram í ræðu á mið­stjórn­ar­fundi Fram­sókn­ar­flokks­ins helg­ina áður að brot­ist hafi verið inn í tölv­una hans. „Ég veit að það var brot­ist inn í tölv­una hjá mér,“ sagði Sig­­mundur Davíð í ræð­unni. Hann hafi látið yfir­­fara hana hjá örygg­is­­full­­trúa í stjórn­­­ar­ráð­inu og þar hafi fund­ist merki um að reynt hafi verið að brjót­­ast inn. Við eft­ir­grennslan Kjarn­ans um helg­ina stað­­festi Sig­­mundur Davíð það sem hann full­yrti í ræðu sinni um að reynt hafi verið að brjót­­ast inn í tölv­una hans.

Sig­mundur Davíð óskaði eftir því við rekstr­ar­fé­lag stjórn­ar­ráðs­ins þann 1. apríl síð­ast­lið­inn að tölvan hans yrði skoðuð vegna „rök­studds gruns hans um mögu­legt inn­brot“ í tölv­una. Þetta kemur fram í svari rekstr­ar­fé­lags­ins við fyr­ir­spurn Kjarn­ans. Það er nokkrum dögum áður en hann sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra, en það gerði hann þann 5. apr­íl.

„Rekstr­ar­fé­lag Stjórn­ar­ráðs­ins sér um rekstur stað­ar­nets Stjórn­ar­ráðs­ins og þjón­ustar þær útstöðvar sem tengj­ast því, tölva for­sæt­is­ráð­herra er þar á með­al. Rekstr­ar­fé­lagið sér einnig um tölvu­ör­ygg­is­mál Stjórn­ar­ráðs­ins. Þann 1.apríl 2016 barst félag­inu beiðni frá for­sæt­is­ráð­herra um að skoða tölvu ráð­herra vegna rök­studds gruns hans um mögu­legt inn­brot. Við ítar­lega leit fund­ust ekki stað­fest ummerki að inn­brot hafi átt sér stað,“ segir í svari Guð­mundar Hall­dórs Kjærne­sted, fram­kvæmda­stjóra rekstr­ar­fé­lags­ins, við fyr­ir­spurn Kjarn­ans.

Fyrr sama dag greindi Vísir frá því að inn­brot í tölvu for­sæt­is­ráð­herra hefði ekki verið til­kynnt til rík­is­lög­reglu­stjóra, sem fer með brot gegn stjórn­­­skipan rík­­is­ins og æðstu stjórn­­völdum þess. Rík­is­lög­reglu­stjóri tók hins vegar málið upp eftir umfjöllun fjöl­miðla, sam­kvæmt bréf­inu sem Sig­mundur Davíð birtir á Facebook síðu sinni. Í bréf­inu, sem er dag­sett 16. sept­em­ber, kemur einnig fram að rík­is­lög­reglu­stjóri hafi hætt rann­sókn á mál­inu eftir sam­ráð við rík­is­sak­sókn­ara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Erlent

Guardian segir engan smán­aðan þjóð­ar­leið­toga jafn óhepp­inn og Sigmund

„Af öllum þjóð­ar­leið­tog­unum sem urðu sér til skammar vegna fal­ins auðs á aflandseyjum, þá var eng­inn jafn óhepp­inn og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Örvænt­inga­full til­raun hins óheppna for­sæt­is­ráð­herra Íslands við að útskýra und­ir­skrift sína á skjölum Wintris Inc., félags á Bresku Jóm­frú­areyj­unum sem hélt á hlut í einum af föllnu bönkum þjóð­ar­innar, var fest á filmu.“ Svona hefst umfjöllun á vef...
Fréttir

Vill ekki svara því hvort Ólafur Ragnar hafi ætlað að mynda utan­þings­stjórn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill ekki svara spurn­ingum um hverjar hann telur áætl­anir Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þáver­andi for­seta Íslands, hafa verið þann 5. apríl síð­ast­lið­inn þegar Sig­mundur Davíð fór skyndi­lega til fundar við hann. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra síðar þann dag. Í við­tali á Útvarpi Sögu í gær var hann spurður hvort hann...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár