Rekstrarfélag stjórnarráðsins fann ekki staðfest ummerki um innbrot í tölvu Sigmundar Davíðs

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son sagð­ist um helg­ina vita að brot­ist hafi verið inn í tölvu hans, og það hafi verið stað­fest af örygg­is­full­trúa í Stjórn­ar­ráð­inu. Rekstr­ar­fé­lag stjórn­ar­ráðs­ins seg­ist hins vegar ekki hafa fundið nein stað­fest ummerki um inn­brot.

Engin stað­fest ummerki fund­ust um það að inn­brot hafi átt sér stað í tölvu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, við ítar­lega skoðun rekstr­ar­fé­lags stjórn­ar­ráðs­ins.

Þetta kemur fram í svari rekstr­ar­fé­lags­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans, en Sig­mundur Davíð hélt því fram í ræðu á mið­stjórn­ar­fundi Fram­sókn­ar­flokks­ins um helg­ina að brot­ist hafi verið inn í tölv­una hans. „Ég veit að það var brot­ist inn í tölv­una hjá mér,“ sagði Sig­mundur Davíð í ræð­unni. Hann hafi látið yfir­fara hana hjá örygg­is­full­trúa í stjórn­ar­ráð­inu og þar hafi fund­ist merki um að reynt hafi verið að brjót­ast inn. Við eft­ir­grennslan Kjarn­ans um helg­ina stað­festi Sig­mundur Davíð það sem hann full­yrti í ræðu sinni um að reynt hafi verið að brjót­ast inn í tölv­una hans.

Sig­mundur Davíð óskaði eftir því við rekstr­ar­fé­lag stjórn­ar­ráðs­ins þann 1. apríl síð­ast­lið­inn að tölvan hans yrði skoðuð vegna „rök­studds gruns hans um mögu­legt inn­brot“ í tölv­una. Þetta kemur fram í svari rekstr­ar­fé­lags­ins við fyr­ir­spurn Kjarnans. Það er nokkrum dögum áður en hann sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra, en það gerði hann þann 5. apríl.

„Rekstr­ar­fé­lag Stjórn­ar­ráðs­ins sér um rekstur stað­ar­nets Stjórn­ar­ráðs­ins og þjón­ustar þær útstöðvar sem tengj­ast því, tölva for­sæt­is­ráð­herra er þar á meðal. Rekstr­ar­fé­lagið sér einnig um tölvu­ör­ygg­is­mál Stjórn­ar­ráðs­ins. Þann 1.apríl 2016 barst félag­inu beiðni frá for­sæt­is­ráð­herra um að skoða tölvu ráð­herra vegna rök­studds gruns hans um mögu­legt inn­brot. Við ítar­lega leit fund­ust ekki stað­fest ummerki að inn­brot hafi átt sér stað,“ segir í svari Guð­mundar Halldórs Kjærne­sted, fram­kvæmda­stjóra rekstr­ar­fé­lags­ins, við fyr­ir­spurn Kjarnans.

Fyrr í dag greindi Vísir frá því að inn­brot í tölvu for­sæt­is­ráð­herra hefði ekki verið til­kynnt til rík­is­lög­reglu­stjóra, sem fer með brot gegn stjórn­skipan rík­is­ins og æðstu stjórn­völdum þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár