Íslendingar ætla sér þriðjung í Nova

Frá undirritun kaupsamnings á Nova í síðustu viku.
Frá und­ir­ritun kaup­samn­ings á Nova í síð­ustu viku. Mynd: Haraldur Gudjonsson/hag

Fjár­mála­fyr­ir­tækið Íslensk verð­bréf (ÍV) vinnur nú að því að ljúka samn­ingum við inn­lenda fjár­festa sem ætla sér að kaupa um þriðj­ungs­hlut í fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Nova. Þeir ætla sér að leggja til um 2,5 millj­arða króna í kaupin en stór hluti þeirrar fjár­mögn­unar verður í gegnum fram­taks­sjóð á vegum ÍV. Frá þessu er greint í DV í dag.

Tilkynnt var um það síð­ast­lið­inn föstu­dag að Novator, fjár­fest­inga­fé­lag Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­son­ar, hefði náð sam­komu­lagi við banda­ríska eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið Pt Capi­tal Advis­ors, um kaup á öllu hlutafé Nova. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var kaup­verðið nálægt 16 millj­örðum króna.

Pt Capi­tal Advis­ors er dótt­ur­fé­lag Pt Capital, og er með aðsetur í Anchorage í Alaska. Félagið leggur meg­in­á­herslu á fjár­fest­ingar á norð­ur­slóð­um, en Nova er fyrsta fjár­fest­ing félags­ins hér á landi. Í til­kynn­ingu vegna kaupa þeirra var ekki greint frá því að til stæði að selja þriðj­ung áfram til inn­lendra fjár­festa.

Sett í sölu í vor

Greint var frá því í vor að Novator hefði sett fyr­ir­tækið í sölu­ferli með hjálp fyr­ir­tækja­ráð­gjafar Kviku banka. Þá sagði Ragn­hildur Sverr­is­dótt­ir, upp­lýs­inga­full­trúi Novator, að heild­ar­virði fyr­ir­tæk­is­ins væri ekki undir 15 millj­örðum króna. Sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans var kaup­verðið hærra en 15 millj­arðar króna og nær 16 millj­örðum króna.

Novator átti 94% hlut í Nova en stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins, meðal ann­ars Liv Berg­þórs­dóttir for­stjóri, sex pró­senta hlut.

Nova er orðið það fjar­­­skipta­­­fyr­ir­tæki sem er með mest­a ­mark­aðs­hlut­­­deild á far­síma­­­mark­aði á Ísland­i. Þetta kemur fram í töl­fræð­i­­­skýrslu ­Póst- og fjar­­­skipta­­­stofn­unar um stöð­una á fjar­­­skipta­­­mark­að­i í lok árs 2015. Alls eru 34 pró­­­sent allra áskrifta á far­síma­­­neti hjá Nova en 33,8 pró­­­sent hjá Sím­an­­­um. Voda­­­fone er í þriðja sæti með­ 28,1 pró­­­sent og 365, sem boðið hefur upp á fjar­­­skipta­­­þjón­­­ustu með síma og inter­­­neti frá haustinu 2013, er með 3,4 pró­­­sent hlut­­­deild.

Staðan á þessum mark­aði hefur breyst hratt á und­an­­­förn­um ár­­­um. Um mitt ár 2008, hálfu ári eftir að Nova hóf starf­­semi, var Sím­inn með 56,6 pró­­­sent mark­aðs­hlut­­­deild á far­síma­­­mark­aði og Voda­­­fone með 36,4 pró­­­sent. Sam­an­lögð mark­aðs­hlut­­­deild ­fyr­ir­tækj­anna tveggja var því 93 pró­­­sent. Nú er hún um 62 pró­­­sent.

Með sterk­­ustu stöð­una í notkun gagna­­magns

Nova er með lang­­­sterk­­­ustu stöð­una þegar kemur að notkun gagna­­­magns á far­síma­­­net­i. ­Mark­aðs­hlut­­­deild fyr­ir­tæk­is­ins á þeim mark­aði er 64,6 pró­­­sent á meðan að Sím­inn er með 18,3 pró­­­sent og Voda­­­fone með 12,8 pró­­­sent. Ein­ungis 4,1 pró­­­sent af ­gagna­­­magns­­­notkun á far­síma­­­neti í fyrra var á meðal við­­­skipta­vina 365.

Þessi ­notkun segir þó ekki alla sög­una. Upp­­i­­­­staðan af gagna­­­magns­­­notkun Íslend­inga á sér­ ­stað á fasta­­­net­inu. Þ.e. Íslend­ingar reyna frekar að vera með snjall­tækin sín tengd fasta­­­neti heima hjá sér og á vinn­u­­­stöðum frekar en að not­­­ast við 3G eða 4G kerfin til að ná sér í gögn. Á fasta­­­net­inu er Sím­inn með mjög sterka stöð­u. Alls eru 48,8 pró­­­sent allra inter­­­netteng­inga á Íslandi hjá Sím­an­­­um.

Nova hefur ekki selt inter­­­net­­­þjón­­­ustu með öðrum hætti en í gegnum far­síma­­­kerfi á und­an­­­förnum árum. Á því varð breyt­ing í síð­­­asta mán­uði þegar að fyr­ir­tæk­ið til­­­kynnti að það ætl­­­aði að hefja ljós­­­leið­­­ara­­­þjón­ust­u. Því mun sam­keppnin þar aukast til muna á næst­unni.

Aftur orð­inn á meðal rík­­­ustu manna heims

Björgólfur Thor er aftur orð­inn á meðal rík­­­­­­­ustu manna heims­, sam­­­­kvæmt lista For­bes, en auð­æfi hans eru metin á 1,6 millj­­­­arða Banda­­­­ríkja­dala, eða sem nemur 208 millj­­­­örðum króna. Björgólfur Thor er núm­er 1.121 á lista For­bes yfir rík­­­­asta fólk heims­ins. Hann fór hæst í 249. sæti árið 2007. Eignir Björg­­­­ólfs Thors eru meðal ann­­­­ars í fjar­­­­skipta­­­­fé­lög­unum Play í Pól­landi og WOM í Chile, auk þess að eiga eign­­­­ar­hluti í félög­unum Xantis Pharma og All­erg­an líkt og áður sagði. Björgólfur Thor var á barmi gjald­­­­þrots eftir hrun fjár­­­­­­­mála­­­­kerf­is­ins, og í per­­­­són­u­­­­legum ábyrgðum fyrir tug­millj­­­­arða­skuld­um, en tókst að semja við kröf­u­hafa sína, halda eign­­­­ar­hlutum í stórum fyr­ir­tækj­um, meðal ann­­­­ars Act­­­­a­vis, sem síðan hefur sam­ein­­­­ast öðrum félögum og stækk­­­­að, og þannig ná vopnum sínum á nýjan leik.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár