Nova selt til bandarísks fyrirtækis

Novator hefur selt allt hlutafé sitt í Nova til banda­rísks eigna­stýr­inga­fé­lags. Kaup­verðið nemur yfir 15 millj­örðum króna, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Björgólfur Thor Björgólfsson, stofnandi Nova, Liv Bergþórsdóttir forstjóri Nova og Hugh S. Short, stofnandi og stjórnarformaður Pt Capital.
Björgólfur Thor Björg­ólfs­son, stofn­andi Nova, Liv Berg­þórs­dóttir for­stjóri Nova og Hugh S. Short, stofn­andi og stjórn­ar­for­maður Pt Capital. Mynd: Haraldur Gudjonsson/hag

Novator, fjár­fest­inga­fé­lag Björg­ólfs Thors Björg­ólfs­sonar, hefur náð sam­komu­lagi við banda­ríska eigna­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið Pt Capital Advisors, um kaup á íslenska fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Nova. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu.

Pt Capital Advisors er dótt­ur­fé­lag Pt Capital, og er með aðsetur í Anchorage í Alaska. Félagið leggur meg­in­á­herslu á fjár­fest­ingar á norð­ur­slóðum, en Nova er fyrsta fjár­fest­ing félags­ins hér á landi. Kaup­verðið á Nova er trún­að­ar­mál.

Í til­kynn­ing­unni er haft eftir Björgólfi Thor að það sé sér­stak­lega ánægju­legt að erlendir fjár­festar með reynslu af far­síma­mark­aði telji það góðan kost að taka þátt í íslensku við­skipta­lífi. „Slík inn­spýt­ing í íslenskan efna­hag er afar mik­il­væg.“ Liv Berg­þórs­dóttir, for­stjóri fyr­ir­tæk­is­ins, seg­ist stolt af því að hafa byggt upp fyr­ir­tæki sem hafi náð góðum árangri á íslenskum fjar­skipta­mark­aði, og fjár­fest­ing Pt sé við­ur­kenn­ing á þeim árangri.

Nova er með mesta mark­aðs­hlut­deild á far­síma­mark­aði á Íslandi og yfir­burða­stöðu í gagna­magns­notkun á far­síma­neti. Greint var frá því í vor að Novator hefði sett fyr­ir­tækið í sölu­ferli með hjálp fyr­ir­tækja­ráð­gjafar Kviku banka. Þá sagði Ragn­hildur Sverr­is­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi Novator, að heild­ar­virði fyr­ir­tæk­is­ins væri ekki undir 15 millj­örðum króna. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans var kaup­verðið hærra en 15 millj­arðar króna.

Novator átti 94% hlut í Nova en stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins, meðal ann­ars Liv Berg­þórs­dóttir for­stjóri, sex pró­senta hlut.

Nova er orðið það fjar­­skipta­­fyr­ir­tæki sem er með mest­a ­mark­aðs­hlut­­deild á far­síma­­mark­aði á Ísland­i. Þetta kemur fram í töl­fræð­i­­skýrslu ­Póst- og fjar­­skipta­­stofn­unar um stöð­una á fjar­­skipta­­mark­að­i í lok árs 2015 sem birt var á þriðju­dag. Alls eru 34 pró­­sent allra áskrifta á far­síma­­neti hjá Nova en 33,8 pró­­sent hjá Sím­an­­um. Voda­­fone er í þriðja sæti með­ 28,1 pró­­sent og 365, sem boðið hefur upp á fjar­­skipta­­þjón­­ustu með síma og inter­­neti frá haustinu 2013, er með 3,4 pró­­sent hlut­­deild.

Staðan á þessum mark­aði hefur breyst hratt á und­an­­förn­um ár­­um. Um mitt ár 2008, hálfu ári eftir að Nova hóf starf­semi, var Sím­inn með 56,6 pró­­sent mark­aðs­hlut­­deild á far­síma­­mark­aði og Voda­­fone með 36,4 pró­­sent. Sam­an­lögð mark­aðs­hlut­­deild ­fyr­ir­tækj­anna tveggja var því 93 pró­­sent. Nú er hún um 62 pró­­sent.

Með sterk­ustu stöð­una í notkun gagna­magns

Nova er með lang­­sterk­­ustu stöð­una þegar kemur að notkun gagna­­magns á far­síma­­net­i. ­Mark­aðs­hlut­­deild fyr­ir­tæk­is­ins á þeim mark­aði er 64,6 pró­­sent á meðan að Sím­inn er með 18,3 pró­­sent og Voda­­fone með 12,8 pró­­sent. Ein­ungis 4,1 pró­­sent af ­gagna­­magns­­notkun á far­síma­­neti í fyrra var á meðal við­­skipta­vina 365.

Þessi ­notkun segir þó ekki alla sög­una. Upp­i­­­staðan af gagna­­magns­­notkun Íslend­inga á sér­ ­stað á fasta­­net­inu. Þ.e. Íslend­ingar reyna frekar að vera með snjall­tækin sín tengd fasta­­neti heima hjá sér og á vinn­u­­stöðum frekar en að not­­ast við 3G eða 4G kerfin til að ná sér í gögn. Á fasta­­net­inu er Sím­inn með mjög sterka stöð­u. Alls eru 48,8 pró­­sent allra inter­­netteng­inga á Íslandi hjá Sím­an­­um.

Nova hefur ekki selt inter­­net­­þjón­­ustu með öðrum hætti en í gegnum far­síma­­kerfi á und­an­­förnum árum. Á því varð breyt­ing í síð­­asta mán­uði þegar að fyr­ir­tæk­ið til­­kynnti að það ætl­­aði að hefja ljós­­leið­­ara­­þjón­ust­u. Því mun sam­keppnin þar aukast til muna á næst­unni.

Aftur orð­inn á meðal rík­ustu manna heims

Björgólfur Thor er aftur orð­inn á meðal rík­­­­­ustu manna heims­, sam­­­kvæmt lista For­bes, en auð­æfi hans eru metin á 1,6 millj­­­arða Banda­­­ríkja­dala, eða sem nemur 208 millj­­­örðum króna. Björgólfur Thor er núm­er 1.121 á lista For­bes yfir rík­­­asta fólk heims­ins. Hann fór hæst í 249. sæti árið 2007. Eignir Björg­­­ólfs Thors eru meðal ann­­­ars í fjar­­­skipta­­­fé­lög­unum Play í Pól­landi og WOM í Chile, auk þess að eiga eign­­­ar­hluti í félög­unum Xantis Pharma og All­erg­an líkt og áður sagði.Björgólfur Thor var á barmi gjald­­­þrots eftir hrun fjár­­­­­mála­­­kerf­is­ins, og í per­­­són­u­­­legum ábyrgðum fyrir tug­millj­­­arða­skuld­um, en tókst að semja við kröf­u­hafa sína, halda eign­­­ar­hlutum í stórum fyr­ir­tækj­um, meðal ann­­­ars Act­­­a­vis, sem síðan hefur sam­ein­­­ast öðrum félögum og stækk­­­að, og þannig ná vopnum sínum á nýjan leik.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

fjarskiptamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár