Sigmundur Davíð ekki í sérframboð - Leiðir áfram í Norðaustur

Borg­ar­full­trúi Fram­sóknar í Reykja­vík segir að flokks­eig­enda­fé­lag og fjár­magns­öfl hafi tekið völdin í flokknum og orsakað tap Sig­mundar Davíðs. Formaður Fram­sókn­ar­fé­lags­ins í borg­inni segir að svindlað hafi verið í for­manns­kosn­ing­unni.

Sig­mund­ur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, ætlar ekki að hætta í Fram­sókn­ar­flokknum og verður áfram odd­viti flokks­ins í Norð­aust­ur­kjör­dæmi í kom­andi kosn­ingum. Þetta er full­yrt í Morg­un­blað­inu í dag. Þar segir einnig að tal um að Sig­mundur Davíð og hugs­an­lega Gunnar Bragi Sveins­son, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, myndu kljúfa Fram­sókn­ar­flokk­inn eigi ekki við rök að styðj­ast.

Sig­mundur Davíð tap­aði naum­lega fyrir Sigurði Inga Jóhanns­syni í for­manns­kosn­ingu á flokks­þingi Fram­sókn­ar­flokks­ins um helg­ina. Hann gekk út af flokks­þing­inu á meðan að sig­ur­ræða Sigurðar Inga stóð yfir og hefur ekki gefið nein við­töl eftir tapið. Í Frétta­blað­inu í dag segir Sveinn Hjörtur Guð­finns­son, for­maður Fram­sókn­ar­fé­lags­ins í Reykja­vík og yfir­lýstur stuðn­ings­maður Sig­mundar Davíðs, að svindlað hafi verið í for­manns­kjör­inu. Sveinn Hjörtur hélt þessu líka fram á Útvarpi Sögu í gær. Sveinn Hjörtur segir að nokkrir skráðir þing­full­trúar í Reykja­vík hafi ekki verið með kosn­inga­rétt á þing­inu og bætir því við að fjöldi manns hafi sagt sig úr Fram­sókn­ar­flokknum í gær. Hann ætlar að kanna málið betur og kalla í kjöl­farið saman stjórn Fram­sókn­ar­fé­lags­ins í Reykja­vík.

[adspot]

Guðfinna Jóhanna Guð­munds­dóttir, borg­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks og flug­vall­ar­vina, er líka yfir­lýstur stuðn­ings­maður Sig­mundar Davíðs. Hún tekur undir orð Sveins Hjartar og segir við Frétta­blaðið að um helg­ina hafi „flokks­eig­enda­fé­lagið og fjár­magns­öflin“ tekið völdin af gras­rót Fram­sókn­ar­flokks­ins um helg­ina. Guðfinna segir einnig að Sig­mundur Davíð hafi lengi átt sér óvini innan flokks og full­yrðir að hann hefði unnið sigur í alls­herj­ar­kosn­ingu, hefðu allir sem voru á þing­inu fengið að kjósa.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Erlent

Guardian segir engan smán­aðan þjóð­ar­leið­toga jafn óhepp­inn og Sigmund

„Af öllum þjóð­ar­leið­tog­unum sem urðu sér til skammar vegna fal­ins auðs á aflandseyjum, þá var eng­inn jafn óhepp­inn og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Örvænt­inga­full til­raun hins óheppna for­sæt­is­ráð­herra Íslands við að útskýra und­ir­skrift sína á skjölum Wintris Inc., félags á Bresku Jóm­frú­areyj­unum sem hélt á hlut í einum af föllnu bönkum þjóð­ar­innar, var fest á filmu.“ Svona hefst umfjöllun á vef...
Fréttir

Vill ekki svara því hvort Ólafur Ragnar hafi ætlað að mynda utan­þings­stjórn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill ekki svara spurn­ingum um hverjar hann telur áætl­anir Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þáver­andi for­seta Íslands, hafa verið þann 5. apríl síð­ast­lið­inn þegar Sig­mundur Davíð fór skyndi­lega til fundar við hann. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra síðar þann dag. Í við­tali á Útvarpi Sögu í gær var hann spurður hvort hann...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár