Sigmundur með forskot hjá Framsóknarmönnum - Allir aðrir vilja Sigurð Inga

Tvær kann­anir um stöð­una innan Fram­sókn­ar­flokks­ins sýna að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son nýtur meira fylgis á meðal flokks­manna en Sigurður Ingi Jóhanns­son. Aðrir kjós­endur eru hins vegar mun lík­legri til að kjósa Framsókn með Sigurð Inga í brúnni.

52 pró­sent Fram­sókn­ar­manna vill hafa Sigmund Davíð Gunn­laugs­son áfram sem for­mann flokks­ins en 37 pró­sent þeirra vill fá Sigurð Inga Jóhanns­son, for­sæt­is­ráð­herra, í það emb­ætti. 11 pró­sent vilja að Lilja Alfreðs­dóttir verði næsti for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þegar svör stuðn­ings­manna allra flokka eru skoðuð þá nýtur Sigurður Ingi hins vegar yfir­burð­ar­stuðn­ings og 47 pró­sent segj­ast vilja hann sem for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins. Þar er Lilja í öðru sæti með 25 pró­sent en ein­ungis tíu pró­sent vilja Sigmund Davíð sem for­mann. Athygli vekur að stuðn­ings­menn Sjálf­stæð­is­flokks, sem situr í rík­is­stjórn, eru ekk­ert sér­stak­lega hrifnir af Sigmundi Davíð. 42 pró­sent þeirra vilja Sigurð Inga sem næsta for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, 30 pró­sent vilja Lilju í það emb­ætti en ein­ungis 23 pró­sent Sigmund Davíð.

Þetta kemur fram í könnun sem Gallup gerði fyrir Við­skipta­blaðið og sagt er frá í blaði dags­ins. Könnunin gerð dag­ana 21. til 28. sept­em­ber og hófst því tveimur dögum áður en Sigurður Ingi til­kynnti í beinni í útsend­ingu í kvöld­fréttum RÚV á föstu­dag að hann ætl­aði að bjóða sig fram gegn Sigmundi Davíð.

Mun fleiri myndu kjósa Framsókn með Sigurð Inga í brúnni

Frétta­blaðið birtir einnig nið­ur­stöðu ann­arrar könn­unar Gallup sem gerð var um stöðu mála innan Fram­sókn­ar­flokks­ins að und­ir­lagi stuðn­ings­manna Sigurðar Inga. Athygli vekur að könn­unin er gerð dag­anna 15. til 26. sept­em­ber en Sigurður Ingi lýsti ekki yfir for­manns­fram­boði fyrr en föstu­dag­inn 23. sept­em­ber. Því voru stuðn­ings­menn hans sem stóðu að könn­un­inni farnir af stað með hana mörgum dögum áður en að sú yfir­lýs­ing var gefin út.

[adspot]

Samkvæmt nið­ur­stöðu hennar er mun lík­legra að fólk kjósi Fram­sókn­ar­flokk­inn ef Sigurður Ingi verður for­maður hans en ef Sig­mundur Davíð verður það áfram. Þar segj­ast rúm­lega 40 pró­sent aðspurðra að þeir væru lík­legri til að kjósa Framsókn ef Sigurður Ingi væri for­maður en ein­ungis 8,6 pró­sent ef Sig­mundur Davíð hefur áfram sem slíkur. Sig­mundur Davíð nýtur þó einnig meiri stuðn­ings á meðal almennra Fram­sókn­ar­manna í þess­ari könnun en Sigurður Ingi, þó afar mjótt sé á munum. 49 pró­sent þeirra segja að þeir styðji hann en 45 pró­sent Sigurð Inga og sjö pró­sent segj­ast óákveðnir. Úrtakið í könnun stuðn­ings­manna Sigurðar Inga var 1.436 manns. 800 svör­uðu en 636 vildu ekki svara.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Erlent

Guardian segir engan smán­aðan þjóð­ar­leið­toga jafn óhepp­inn og Sigmund

„Af öllum þjóð­ar­leið­tog­unum sem urðu sér til skammar vegna fal­ins auðs á aflandseyjum, þá var eng­inn jafn óhepp­inn og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Örvænt­inga­full til­raun hins óheppna for­sæt­is­ráð­herra Íslands við að útskýra und­ir­skrift sína á skjölum Wintris Inc., félags á Bresku Jóm­frú­areyj­unum sem hélt á hlut í einum af föllnu bönkum þjóð­ar­innar, var fest á filmu.“ Svona hefst umfjöllun á vef...
Fréttir

Vill ekki svara því hvort Ólafur Ragnar hafi ætlað að mynda utan­þings­stjórn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill ekki svara spurn­ingum um hverjar hann telur áætl­anir Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þáver­andi for­seta Íslands, hafa verið þann 5. apríl síð­ast­lið­inn þegar Sig­mundur Davíð fór skyndi­lega til fundar við hann. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra síðar þann dag. Í við­tali á Útvarpi Sögu í gær var hann spurður hvort hann...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár