Áforma að skrá Arion banka á markað í Svíþjóð

Kaupþing áformar að selja stóran eign­ar­hlut í Arion banka í gegnum hluta­fjár­út­boð í Svíþjóð. Bankinn yrði þá tvö­falt skráður, í Kaup­höll­ina í Stokk­hólmi og í Kauphöll Íslands. Samkvæmt tíma­á­ætlun er gert ráð fyrir því að skrán­ingin fari fram á fyrri hluta næsta árs. Frá þessu er greint í DV í dag.

Ekki liggur fyrir hversu stór hluti í Arion banka verður seldur þegar skrán­ingin mun eiga sér stað. Ef króna fæst fyrir krónu af eigin fé Arion banka er verð­mæti hlutar Kaup­þings í bank­anum - en Kaupþing á 87 pró­sent og íslenska ríkið 13 pró­sent - um 168 millj­arðar króna.

Í DV segir einnig að að stefnt sé að því að selja hlut í bank­anum í lok­uðu útboði til hóps íslenskra líf­eyr­is­sjóða og hlut­hafa Kaup­þingis - sem eru fyrrum kröfu­hafar bank­ans - fyrir árs­lok 2016. Blaðið greinir frá því að Paul Copley, for­stjóri Kaup­þings, og John P. Madden, fram­kvæmda­stjóri hjá félag­inu, hafi átt síma­fund með hlut­höfum félags­ins á föstu­dag þar sem þeir hafi greint frá þessu.

Viðræður runnu út í sandinn

Hópur stórra íslenskra líf­eyr­is­sjóða hafa lengi haft áhuga á að kaupa Arion banka og hafa ráðoð sér­staka ráð­gjafa til að vinna að því mark­miði fyrir sig. Í lok ágúst var greint frá því að við­ræður um kaup þeirra á 87 pró­sent hlut Arion banka hafa runnið út í sand­inn. Þetta gerð­ist sam­hliða því að nýir stjórn­endur hafa tekið við hjá Kaup­þingi í kjöl­far þess að nauða­samn­ingur bank­ans var klár­aður um síð­ustu ára­mót og eign­ar­halds­fé­lagið Kaup­þing tók við eft­ir­stand­andi eignum hans. Engar við­ræður voru sagðar í far­vatn­inu.

Kaup­þing þarf að selja hlut sinn í Arion banka fyrir árs­lok 2018. Tak­ist það ekki mun rík­is­sjóður leysa bank­ann til sín. Þetta var hluti af því sam­komu­lagi sem kröfu­hafar Kaup­þings gerðu við ríkið þegar samið var um upp­gjör á slita­búi bank­ans á síð­asta ári.

DV greindi frá því í byrjun sept­em­ber að Benedikt Gíslason, sem var einn helsti ráð­gjafi íslenskra stjórn­valda við vinnu að áætlun um losun fjár­magns­hafta, hafi verið ráð­inn ráð­gjafi Kaup­þings vegna sölu á Arion banka. Hann er því far­inn að vinna fyrir fyrr­ver­andi mót­að­ila sína við samn­ings­borðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár