Guðni Th. benti á tvískinnunginn í Afríkuveiðum Samherja

Guðni Th. Jóhann­es­son, núver­andi for­seti og sagn­fræð­ingur, ræddi Afr­íku­veiðar Íslend­inga, meðal ann­ars Samherja, og setti þær í sögu­legt sam­hengi í við­tali við DV árið 2012. Hann benti á tví­skinn­ung­inn í því að Íslend­ingar væru nú orðnir úthafsveiði­þjóð.

Guðni Th. benti á tvískinnunginn í Afríkuveiðum Samherja
Þor­steinn Már boð­aði for­föll Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja, boð­aði for­föll á sjáv­ar­út­vegs­ráð­stefn­unni sem haldin var í Hörpu nokkrum dögum fyrir birt­ingu Sam­herj­a­skjal­anna. Guðni Th. Jóhann­es­son hélt opn­unará­varp á ráð­stefn­unni og átti Þor­steinn að stíga í pontu á eftir for­set­anum. Mynd: Heiða Helgadóttir

Guðni Th. Jóhann­es­son, þáver­andi starf­andi sagn­fræð­ingur og núver­andi for­seti Íslands, ræddi um fisk­veiðar Íslend­inga í Afríku í við­tali við DV árið 2012. Blaðið hafði þá fjallað um veiðar íslenskra útgerða, aðal­lega Samherja, í Marokkó og Márit­aníu um nokk­urt skeið sem og notkun Samherja á Kýpur til að stunda við­skipti í Afríku. Guðni Th. er einn helsti sér­fræð­ingur þjóð­ar­innar í sagn­fræði þorska­stríð­anna og skrif­aði hann dokt­ors­rit­gerð um efnið árið 2003 sem kall­að­ist Troubled Waters. Cod War, Fishing Disputes, and Britain‘s Fight for the Freedom of the High Seas, 1948‒1964.

Stundin end­ur­birtir hér grein­ina og við­talið við Guðna Th. úr DV í ljósi umfjall­ana Wikileaks, Kveiks, Stund­ar­innar og Al Jazeera um Sam­herj­a­skjölin og stór­felldar mútu­greiðslur Samherja til áhrifa­manna í Namibíu í skiptum fyrir fiski­veiði­kvóta. Núver­andi blaða­maður Stund­ar­innar, Ingi F. Vil­hjáms­son, skrif­aði grein­ina.

Viðtalið er ekki lengur aðgengi­legt á heima­síðu DV vegna þess að við breyt­ingar á vef­síðu dv.is var fjar­lægt allt efni sem birt­ist á DV á löngu ára­bili. Viðtalið við Guðna Th. má einnig lesa á tima­rit.is.

Tekið skal fram að gerðar hafa verið ítrek­aðar til­raunir til að fá Guðna Th. í við­tal um Sam­herj­a­málið í Namibíu en án árang­urs. Guðni Th. tjáði sig hins vegar um Sam­herj­a­málið með óbeinum hætti fyrir nokkru.

Forsíða DV 18. apríl 2012

Grein um Afríkuveiðar Íslendinga og viðtal við Guðna T. Jóhannesson

„Hinu unga lýð­veldi var þröngur stakkur skor­inn, erlendur tog­ara­floti drottn­aði á heima­miðum, útgerðir í Hull og Grimsby og hafn­ar­borgum meg­in­lands­ins hirtu arð­inn af Íslend­ingum.“ Þetta sagði Ólafur Ragnar Grímsson, for­seti Íslands, í ávarpi sínu í sér­blaði um þorska­stríðin sem almanna­tengsla­fyr­ir­tækið Athygli gaf út árið 2008. Blaðið hét Stríðið um miðin. 

Segja má að þessi sögu­skoðun Ólafs Ragnars á mik­il­vægi þorska­stríð­anna þriggja og útfærslu fisk­veiði­lög­sög­unnar sé nokkuð útbreidd og almenn í þjóð­arsál­inni. Flestir lands­menn telja að það hafi verið til góðs fyrir sjálf­stæði íslands og þjóð­ar­búið þegar fisk­veiði­lög­sagan var á nærri 30 ára tíma­bili, 1948 til 1976, færð út í 200 sjó­mílur. 

Fáir atburðir í sögu íslands á tutt­ug­ustu öld eru þjóð­inni eins mikið hjart­ans mál og þorska­stríðin. Íslend­ingar líta svo á að þeir hafi brugð­ist við órétt­læti frá hendi stærri og valda­meiri þjóða sem bjuggu yfir öfl­ugri skipa­kosti og arð­rændu hana með fisk­veiðum á mið­unum við landið. 

Að eiga kök­una og éta hana líkaEitt af því sem bent var á í grein DV var hversu sér­stakt það væri að Samherja fjár­festi í Morg­un­blað­inu til að berj­ast gegn aðild Íslands að Evr­ópu­sam­band­inu á sama tíma og fyr­ir­tækið fengi kvóta í Afríku í gegnum Evr­ópu­sam­bandið. Þor­steinn Már Bald­vins­son er for­stjóri Samherja í leyfi.

Samanburðurinn vid Afríku 

DV hefur að und­an­förnu fjallað um fisk­veiðar íslenskra útgerð­ar­fyr­ir­tækja úti fyrir ströndum Vestur-Afríku. Að minnsta kosti fimm íslensk útgerð­ar­fyr­ir­tæki hafa veitt fisk úti fyrir ströndum Vestur-Afríku á liðnum árum. Meðal ann­ars er um að ræða stór­út­gerð­ina Samherja, Sjóla­skip, Úthafs­skip, Sæblóm og útgerð­ina sem gerir út togar­ann Blue Wave, sem meðal ann­ars er í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða. Veiði­tækin sem not­ast er við eru stór; tog­arar og verk­smiðju­tog­arar: 120 metra skip, með meira en 50 manna áhöfn, sem taka á milli tvö og þrjú þús­und tonn af frystum fiski í lestar sínar. 

Veið­arnar fara fram á grund­velli samn­inga sem Evr­ópu­sam­bandið hefur gert við rík­is­stjórnir í Marokkó og Márit­aníu en einnig semja útgerð­irnar beint við yfir­völd í þessum löndum í ein­hverjum til­fellum. Samherji hefur til að mynda bæði fengið veiði­heim­ildir vegna samn­inga Evr­ópu­sam­bands­ins og eins vegna þess að fyr­ir­tækið hefur sjalft samið við yfir­völd í ríkj­unum. Tekjur íslenskra útgerða af þessum veiðum eru miklar. Til að af þessum mynda eru tekjur Samherja af þessum veiðum á milli 30 og 40 pró­sent af tekjum Samherja til­komnar vegna þess­ara veiða, á þriðja tug millj­arða króna. Samherji á og rekur 9 skip sem stunda veið­arnar við vest­ur­strönd Afríku.

Arður hirtur af fátækum þjóðum

Hagn­að­ur­inn af veiðum Íslend­inga við strendur Vestur-Afríku verður hins vegar ekki eftir í þeim löndum þar sem veið­arnar fara fram nema að litlu leyti. Greidd eru veiði­gjöld til land­anna, annað hvort frá Evr­ópu­sam­band­inu eða beint frá útgerð­unum en þau eru lág miðað við þær tekjur sem útgerð­irnar geta haft upp úr veið­unum. Til að mynda hefur Evr­ópu­sam­bandið greitt rík­is­stjórn Marokkó 36 millj­ónir evra fyrir veiði­rétt­indi fyrir um 120 skip úti fyrir ströndum lands­ins en bara tekjur Samherja af Afr­íku­veið­unum við Marokkó, Vestur-Sahara og Márit­aníu nema um 140 millj­ónum evra. Líkt og Ólafur Ragnar nefndi í til­felli þorska­stríð­anna er það því „erlendur tog­ara­floti á heima­miðum“ þess­ara Afr­íku­þjóða sem hirðir arð­inn sem af þeim. 

Íslend­ingar sem eru í sext­ánda sæti yfir rík­ustu þjóðir heims miðað við verga þjóð­ar­fram­leiðslu eru því að taka arð út úr sem eru miklu fátæk­ari á auð­lindum en þeir. Marokkó er í 117. sæti yfir rík­ustu þjóðir heims og Márit­anía í því 148.  Að hluta til er þetta gert í skjóli Evr­ópu­sam­bands­ins. 

Líkt og fyrir þorska­stríðin á mið­unum við Ísland þegar erlendar stór­þjóðir  komu til veiða við Ísland fara íslenskar útgerðir nú til fátæk­ari og van­þró­aðri landa og veiða fisk­inn í lög­sögu þeirra. Þetta ger­ist án þess að við­kom­andi þjóðir hagn­ist á því í réttum mæli við arð íslenskra útgerða af veið­unum. Munurinn er þó auð­vitað sá að Íslend­ingar gera þetta í ljósi samn­inga við þessar þjóðir eða í gegnum Evr­ópu­sam­bandið á meðan Bret­arnir stund­uðu veiðar sínar að Íslend­ingum for­spurðum, í ljósi sögu­legs réttar. 

Nýja sjálf­stæð­is­bar­áttaÓlafur Ragnar Grímsson, fyrr­ver­andi for­seti Íslands, sagði að bar­átta Íslend­inga yfir eigin fiski­miðum hafi verið hin „nýja sjáf­stæð­is­bar­átta“.

Hart á móti hörðu

Ísland hafði ein­ungis verið sjálf­stæð þjóð í fjögur ár þegar tekin verið var sjálf­stæð ákvörðun um að færa fisk­veiði­lög­sög­una út í fjórar sjó­mílur árið 1948. Sjálf­stæðið fra Dana­veldi var sótt í skjóli heims­styrj­aldar og erlends her­náms, fyrst Breta og svo Banda­ríkja­manna sem hjálp­uðu Íslend­ingum að koma undir sig fót­unum, bæði með atvinnu og erlendu fé og síðar Marshall-aðstoð­inni. Fram að seinni heims­styrj­öld hafði Ísland verið fátæk þjóð í alþjóð­legu sam­hengi; það var ekki fyrr en eftir síð­ara stríð sem hagur lands­ins tók að vænkast. Fisk­veiðar, og aukin stór­virkni í afla­brögðum útgerð­ar­fyr­ir­tækja, átti ekki lít­inn þátt í því.

Bretar, sem veitt höfðu fisk við Íslands­strendur um aldir, mót­mæltu útfæslu Íslend­inga á land­helg­inni í fjórar mílur harð­lega og sett var lönd­un­ar­bann á íslenskan fisk þar í landi auk þess sem aðrar fisk­veiði­þjóðir í Evrópu gagn­rýndu aðgerð­ina. Meðal þeirra raka sem bresk stjórn­völd beittu fyrir sig var að Bretar hefðu öðl­ast sögu­legan veiði­rétt við Íslands­strendur vegna þess að þeir hefðu veitt þar til langs­tíma - Lúðvík Jós­eps­son sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra átti síðar eftir að gagn­rýna þau rök með þeim orðum að slíkur veiði­réttur væri ekki til. Aukin harka færð­ist í deil­urnar um útfærslu fisk­veiði­lög­sögu Íslands á næstu ára­tugum eftir því sem Ísend­ingar færðu lög­sög­una lengra frá land­inu. 

Íslensk varð­skip klipptu á troll breskra tog­ara sem veiddu innan lög­sög­unnar og Bretar beittu her­skipum til ásigl­inga á íslensk varð­skip til að tryggja hags­muni sína. Hart mætti hörðu enda var mik­il­vægt fyrir íslend­inga að standa fast á sínu til að hið unga fátæka lýð­veldi gæti séð sér far­borða. Þannig má líta á að þorska­stríðin hafi verið bar­átta upp á líf og dauða fyrir hafi Íslend­inga - sem betur fer fyrir þá höfðu þeir betur.

„ Þá hófst veg­ferð sem með réttu má nefna hina nýju sjálf­stæð­is­bar­áttu íslend­inga - leið­angur til að treysta lýð­veldið í sessi, koma í veg fyrir að það brotn­aði saman vegna arð­ráns útlend­inga á íslenskum miðum.“

Hin nýja sjálf stæðisbarátta 

Ólafur Ragnar for­seti Íslend­inga setti þessa bar­áttu og mik­il­vægi hennar í sögu­legt sam­hengi í ávarpi sínu í Stríð­unum um miðin þegar hann und­ir­strik­aði efna­hags­legt mik­il­vægt þorska­stríð­anna. Benti Ólafur Ragnar á að veiðar erlendra fiski­skipa við Íslands­mið hefðu getað veikt und­ir­stöður hins unga lýð­veldis. Ólafur Ragnar kall­aði bar­átt­una um miðin „hina nýju sjálf­stæð­is­bar­áttu“. „Það var óvissu háð hvort lýð­veldið gæti fram­fleytt sér, hvort und­ir­stöður efna­hags­ins reynd­ust traustar, hvort sjálf­stæðið yrði raun­veru­legt eða inn­an­tómt. Þá hófst veg­ferð sem með réttu má nefna hina nýju sjálf­stæð­is­bar­áttu íslend­inga - leið­angur til að treysta lýð­veldið í sessi, koma í veg fyrir að það brotn­aði saman vegna arð­ráns útlend­inga á íslenskum miðum.“ Þorska­stríðin stöðv­uðu á end­anum arðránið. 

Á sams konar hátt má segja að margar af þjóðum Afríku séu í sams konar stöðu og Ísland var í á fyrri hluta tutt­ug­ustu aldar. Þær remb­ast við að reyna að koma undir sig fót­unum, reyna að iðn­væð­ast almenni­lega, taka upp stór­virk­ari tækni sem geri þeim kleift að nýta auð­lindir sínar betur, margar þeirra til­tölu­lega nýsjálf­stæðar undan valdi þró­aðri og sterk­ari þjóða - Marokkó og Márit­anía fengu sjálf­stæði frá Frökkum 1956 og 1960. Þessar þjóðir búa ekki yfir sömu þekk­ingu, reynslu og tækni í sjáv­ar­út­vegi og við íslend­ingar og aðrar iðn­væddar þjóðir sem veiða fisk með stór­virkum tog­urum við strendur þeirra. Hin „nýja sjálf­stæð­is­bar­átta" þess­ara Afr­íku­þjóða gæti þá meðal ann­ars falist í því að þær nýti sjálfar til fulls eigin auð­lindir en selji ekki afnot af þeim fyrir lítið til ann­arra þjóða. 

„Í allri okkar bar­áttu fyrir verndun fisk­mið­anna var rauði þráð­ur­inn sá að strand­ríkið skyldi hafa fullan rétt á auð­lind­unum undan ströndum þess.“

Strandríkið njóti ávaxtanna 

Guðni Th. Jóhann­es­son, sagn­fræð­ingur og einn af helstu sér­fræð­ingum lands­ins um þorska­stríðin, segir að veiðar Íslend­inga við strendur Vestur-Afríku séu „hámark tví­skinn­ungs­ins“. „Í allri okkar bar­áttu fyrir verndun fisk­mið­anna var rauði þráð­ur­inn sá að strand­ríkið skyldi hafa fullan rétt á auð­lind­unum undan ströndum þess. Auðvitað flækir það aðeins mynd­ina að Evr­ópu­sam­bandið er að semja við yfir­völd í ákveðnum Afr­íku­ríkjum um afnota­rétt á þessum auð­lindum.“

Guðni segir að í þorska­stríð­unum hafi bar­áttan snú­ist um það að úthafsveiði­þjóðir eins og Þjóð­verjar, Bretar, Japanir og Sov­ét­menn gætu ekki bara haldið á fjar­læg mið, sótt þann afla sem þeim sýnd­ist og horfið svo a braut. „Þorska­stríðið sner­ist um það að strand­ríkið fengi að njóta ávaxt­anna [...] Þessi umræða um tvö­feldni kom líka upp í Smugu­deil­unni þar sem Norðmenn sök­uðu okkur um hræsni; að við værum allt í einu orðin þessi mikla úthafsveiði­þjóð sem sækti á fjar­læg mið og hirti ekk­ert um ofveiði í Norð­ur­höfum og annað slíkt. Þá not­uðum við einnig hug­mynd­ina um að værum að öðl­ast sögu­legan veiði­rétt í Smugunni, líkt og Bretar höfðu gert hér við land. Lúðvík Jós­eps­son myndi lík­lega snúa sér við í gröf­inni ef hann vissi að reyndum að rétt­læta það að sækja afla hvar sem er undan ströndum ann­arra ríkja.“ 

Afr­íku­veiðar Íslend­inga þýða því einnig að Íslend­ingar eru farnir að haga sér eins og úthafsveiði­þjóð, útrás­ar­fisk­veiði­þjóð sem lætur sér ekki nægja sitt heima­brúk. 

Þáttur Evrópusambandsins 

Guðni segir hins vegar að ekki megi saka íslensk stjórn­völd um tvö­feldni þegar kemur að Afr­íku­veið­unum, um sé að ræða ákvörðun ein­stakra útgerða að stunda þessar veiðar. „Sér- hags­mun­irnir koma í ljós á ýmsum sviðum [...] Þetta eru ekki bara Samherji og ESB. Það á frekar að saka ESB um skamm­sýni," segir Guðni. 

Íslenskar útgerðir taka auð­vitað ákvarð­anir um þessar veiðar út frá sínum eigin hags­munum með arð­semi að leið­ar­ljósi í ljósi þeirra laga og reglna sem eru í gildi ef þær telja sig geta grætt á því. Hér hefur aldrei verið sagt að veiðar íslend­inga við Afr­íku­strend- ur séu í eðli sínu ólög­legar. En veiðar Breta og ann­arra úthafsveiði­þjóða hér við land á síð­ustu öld voru það ekki heldur þegar þorska­stríðin hófust. Umræðan snýst um sið­lega þætti og lög­legt arð­rán á auð­lindum ann­arra þjóða. 

Annar angi af þess­ari umræðu er sá að íslensku útgerð­irnar veiða í sumum til­fellum við Vestur-Afríku vegna samn­inga sem Evr­ópu­sam­bandið hefur gert við ein­stök ríki í skiptum fyrir fjár­muni. Þetta á til dæmis við um Samherja sem veiðir þar vegna þess­ara samn­inga. 

Tvenns konar tvöfeldni 

Á sama tíma og Samherji veiðir við strendur Afríku vegna samn­inga Evr­ópu­sam­bands­ins hefur for­stjóri félags­ins, Þor­steinn Már Bald­vins­son, lýst því yfir að hann sé ekki hlynntur inn­göngu Íslands í Evr­ópu­sam­bandið vegna þess að slíkt myndi fela í sér aukna samnýt­ingu íslensku fiski­mið­anna með öðrum löndum Evr­ópu­sam­bands­ins. Auk þess að veiða við Afr­íku­strendur í skjóli Evr­ópu­sam­bands­ins heldur Samherji einnig á miklum afla­heim­ildum í löndum innan sam­bands­ins, til dæmis í Þýska­landi. 

Orðrétt hefur Þor­steinn Már sagt um þetta atriði: „Sumir halda því fram að við munum hafa áhrif í sjáv­ar­út­vegs­málum því íslend­ingar séu svo stórir. Þetta er alrangt. Hvorki Þjóð­verjar, Pól­verjar, Eng­lend­ingar né aðrir ætla að láta okkur hafa sér­stök áhrif í sjáv­ar­út­vegs­málum umfram það sem segir í reglum Evr­ópu­sam­bands­ins." 

Þetta er algengt við­horf í sam­fé­lag­inu og það atriði sem einna oft­ast er nefnt sem ástæða til að vera andsnú­inn aðild íslands að Evr­ópu­sam­band­inu. Hér að ofan má til dæmis sjá þessi rök í máli, Einars K. Guð­finns­sonar, fyrr­ver­andi sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra. „Það er ekki síst með skírskotun til þessa sem ég og margir aðrir eru mjög á varð­bergi þegar menn fara að ræða um sam­eig­in­lega nýt­ingu auð­lind­ar­innar innan vébanda stórra ríkja­sam­banda eins og ESB.“ 

Morg­un­blaðið, sem að hluta til er í eigu Samherja og ann­arra útgerð­ar­risa, hefur verið dug­legt við að halda þessu sjón­ar­miði á lofti enda rétti­lega eitt af þeim atriðum sem taka þarf afstöðu til þegar kostir og gallar aðildar að sam­band­inu eru metnir. 

Tví­skinn­ung­ur­inn að þessu leyt­inu til er þá sá að á sama tíma og íslenskar útgerðir vilja nýta sér það sem Evr­ópu­sam­bandið getur veitt þeim í öðrum löndum þá vilja þær ekki gefa eftir notk­un­ar­rétt á fisk­veiði­lög­sögu Íslend­inga til ríkja í Evr­ópu­sam­band­inu, líkt og aðild að því fæli í sér. Á ensku er slíkur hugs­un­ar­háttur orð­aður með þeim frasa að menn vilji eiga kök­una og éta hana líka. Útgerðir vilja nýta sér kosti þess að vera ekki í Evr­ópu­sam­band­inu en einnig það sem þeir geta nýtt sér í skjóli sam­bands­ins, án þess þó að ganga í það. Þetta er því lík­lega tvenns konar teg­und af tvö­feldni.

Greinin var fyrst birt í DV 11. maí 2012 en er ekki aðgengi­leg á vef blaðs­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórnvöld axli siðferðislega ábyrgð á Samherja“
FréttirSamherjaskjölin

„Tími á að íslensk stjórn­völd axli sið­ferð­is­lega ábyrgð á Samherja“

Leiðtogi namibísku stjón­ar­and­stöð­unnar segir landa sína undr­ast þögn íslenskra stjórn­valda um þá stað­reynd að stærsta spill­ing­ar­mál í sögu Namibíu hafi orðið til fyrir til­stilli íslensks fyr­ir­tækis. Spyr hvort hund­rað millj­óna styrkur Orku­sjóðs sé rík­is­styrkt spill­ing og sendir for­sæt­is­ráð­herra opið bréf og óskar lið­sinnis hennar við að fá Samherja til að greiða bætur og svara til saka.
Samherji sakaður um stórfelld skattalaga- og gjaldeyrisbrot í Namibíu og framsalskrafa væntanleg
RannsóknirSamherjaskjölin

Samherji sak­aður um stór­felld skatta­laga- og gjald­eyr­is­brot í Namibíu og fram­sal­skrafa vænt­an­leg

Rík­is­sak­sókn­ari Namibíu er enn ákveð­inn í því að óska eftir fram­sali þriggja stjórn­enda Sam­herj­a­fé­laga í Namibíu og segir brot á skatta- og gjald­eyr­is­lögum muni mögu­lega bæt­ast við sak­ar­efnin á hendur þeim. Stór­felld skatta­laga­brot Sam­herj­a­fé­laga sögð til rann­sóknar. Sam­herj­a­maður segir íslensk yfir­völd þegar hafa neitað að fram­selja sig.
Íslandsvinkona svo gott sem orðin forseti Namibíu
FréttirSamherjaskjölin

Íslands­vin­kona svo gott sem orðin for­seti Namibíu

Netumbo Nandi-Ndaitwah, utan­rík­is­ráð­herra Namibíu, sem kom hingað til lands í júní og ræddi Sam­herj­a­málið við íslenska ráð­herra og aðstoð­ar­mann eins þeirra, er nú svo gott sem búin að tryggja sér for­seta­emb­ættið í Namibíu. Hún var í morgun kjörin arf­taki for­manns flokks­ins, sitj­andi for­seta sem hyggst setj­ast í helgan stein. Flokk­ur­inn nýtur slíks yfir­burð­ar­fylgis að inn­an­flokks­kosn­ingin er sögð raun­veru­legt for­seta­kjör.
„Þetta eru glæpamenn og hegða sér eftir því“
ViðtalSamherjaskjölin

„Þetta eru glæpa­menn og hegða sér eftir því“

Jóhannes Stef­áns­son, upp­ljóstr­ari í Sam­herj­a­mál­inu, er sáttur við gang rann­sókn­ar­innar hér á landi og segir að fátt geti komið í veg fyrir að málið endi með dómi. Hann gagn­rýnir þó aðgerð­ar­leysi yfir­valda við því þegar Sam­herj­a­menn hafa áreitt, njósnað um eða reynt að hræða hann frá því að bera vitni. Fátt í við­brögðum Sam­herj­a­fólks hafi þó komið honum á óvart, enda fái þau að ganga mun lengra en öðrum lið­ist.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár