Milljarður síma seldur og allir fúlir?

Apple hefur verið mikið í umræð­unni að und­an­förnu. Fyrr í vik­unni var iPhone 7 kynntur til leiks. Kjarninn fékk Þórarinn Stef­áns­son, fram­kvæmda­stjóra Mobilitus, til að rýna í stöðu tækniris­ans.

Apple kynnti í vik­unni nýjan iPhone, iPhone 7 - sem kemur í tveimur stærðum eins og iPhone 6.

iPhone 7 er umtals­vert hrað­virk­ari en fyrri símar Apple og með veru­lega betri mynd­gæði, bæði á skjá og í mynda­vélum. Allt er hrað­virkara og fínna, vinnslu­getan ræður við leikja­spilun á sama stigi og leikja­tölvur og sím­arnir þola meira hnjask og ryk en fyrr. Spurn­ingin „Hefurðu farið í sturtu eftir að þú fékkst sím­ann?“, sem ein vin­kona mín fékk eftir að nýlegur iPhone bil­aði ætti ekki að heyr­ast aftur, því iPhone 7 þolir nú raka og bleytu. Fleiri litir sjást á skjánum og nem­inn í mynda­vél­unum er næm­ari fyrir birtu og litum. Instagram­sjálfur verða fal­legri fyrir vikið og heim­ur­inn betri.

iPhone 7+ er með auka­mynda­vél með 2x zoom-linsu sem gefur betri upp­lausn á aðdrætti allt að 10x, auk þess að vera notuð til að fín­stilla dýpt á venju­legum por­trettum.

Apple kynnti líka þráð­laus heyrn­ar­tól - og fjar­lægði í leið­inni innstung­una fyrir hefð­bundin heyrn­ar­tól. Ef menn vilja nota svo­leiðis þurfa þeir að nota milli­stykki yfir í lightn­ing-tengið, eða nota ný sem tengj­ast lightn­ing teng­inu beint. Og á árinu 2016 kynnir Apple til sög­unnar steríó, en iPhone 7 er nú búinn tveimur hátöl­urum og getur því spilað víð­óma tón­list. Upplagt til að hlusta á Bítlana á Apple Music.

Apple á gríð­ar­lega mikið undir því að þess­ari upp­færslu verði vel tekið enda hefur þeim verið legið á hálsi með að nýsköp­unin hafi ekki verið upp á marga fiska und­an­farið. Að minnsta kosti í tækni­press­unni. Í tekjum og hagn­aði hefur Apple hins vegar gengið betur en nokkrum öðrum síma­fram­leið­anda með 38% fram­legð af seldum símum, sem enn selj­ast í skips­förmum.

Í vest­rænu tækni­press­unni var sussað á iPhone SE, litla bróð­ur­inn í iPhone fjöl­skyld­unni, en hann seld­ist samt eins og heitar lummur á mörgum mörk­uðum, allt frá Kína til Bret­lands, þar sem hann varð vin­sæl­asti far­sím­inn á fyrri hluta árs­ins. Þeir sem keyptu hann voru mikið til nýir Apple not­endur sem margir hverjir völdu þennan síma umfram Android síma. Og konur. Og annað fólk með litlar hendur. Og ég.

En þetta dugir ekki til. Ef maður fylgist með fréttum eru flestar fréttir af Apple nei­kvæðar. Apple frestar skatt­greiðslum í Banda­ríkj­unum með því að flytja ekki fúlgur fjár heim frá erlendum dótt­ur­fyr­ir­tækjum. Evr­ópu­sam­bandið krefst þess nú að Írar hætti að veita Apple umsam­inn skatta­af­slátt og inn­heimti í snatri óeðli­lega fyr­ir­greiðslu fyrri ára. Það mál er sam­bæri­legt fyr­ir­greiðslu sem orku­frekur iðn­aður fær á Íslandi og getur því undið veru­lega upp á sig.

Notkun iPhone eig­enda á öppum, vefjum og öðrum gagna­þjón­ustum, tón­list­ar­veitum, víd­eó­þjón­ustum og versl­unum er enn mark­tækt meiri en not­endum Android síma, sem er merki­legt miðað við að miklu fleiri Android símar eru í umferð. Það skýrist að hluta til með tekjumun á milli not­end­anna, en stór hluti Android síma í umferð fæst frítt með grunn­á­skrift­inni. Það eru því enn meiri tekjur að hafa af því að búa til öpp og þjón­ustur fyrir iPhone not­endur, sem heldur áfram að styrkja tekju­streymi Apple.

Það var athygl­is­vert að fylgj­ast með kynn­ing­unni á iPhone 7 og Apple Watch upp­færsl­unni. Sér­stak­lega að fylgj­ast með mynd­mál­inu og fólk­inu sem sýnt var nota iPhone og úrið við leik og störf. Þar var mikil fjöl­breytni kyn­þátta og stór hluti þeirra sem sýndir voru voru asíu­búar. Það sýnir glögg­lega hvert augu mark­aðs­deildar Apple bein­ast. Eins og önnur stór­fyr­ir­tæki beinir Apple nú helst sjónum að vax­andi mörk­uðum í Asíu og Suður Ameríku ásamt örfáum Evr­ópu­löndum og Banda­ríkj­unum. Sem er svo sem skilj­an­legt þegar litið er til þess að þangað er hægt að sækja nýja not­endur á meðan Banda­ríkin og Norður Evrópa eru mett­aðir mark­aðir, amk hvað nýja not­endur varðar. Millj­arður iPhone síma hefur verið seldur, mikið til inn á þessa mark­aði.

Það má því búast við því að vöru­þró­unin fari að taka meira mið af vænt­ingum og þörfum ann­arra mark­aða en „okkar“. Apple er ekki eina fyr­ir­tækið sem stefnir í þessa átt, Netflix hefur sagt efn­is­kaup sín taka mið af eft­ir­spurn utan Banda­ríkj­anna í sífellt meiri mæli og að gagna­söfnun um áhorf og notkun hafi þar mikil sjálf­krafa áhrif.

Ef það er rétt þá má búast við að sam­keppni Apple og Samsung herð­ist veru­lega þar sem Samsung er á heima­velli í sumum mörk­uðum Asíu. En ekki í þessum árs­fjórð­ungi. Meist­ara­heppnin er með Apple því það er erfitt að keppa við nýja iPhone útgáfu með inn­köll­uðum símum vegna sprengi­hættu. Þó að lík­urnar séu litlar á því að nýr Samsung sími springi í höndum not­enda er erfitt að ná sér á strik eftir þannig frétta­flutn­ing.

Þetta gæti því orðið mjög góður vetur fyrir Apple. Sama hvað þeir segja.

Höfundur er fram­kvæmda­stjori Mobilitus.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fjarskipti

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár