Hafna ásökunum Önnu Sigurlaugar- Lykilspurningum ekki svarað

Kastljós, Reykja­vik Media og Uppdrag Granskning hafna því að þeim frétta­mönnum sem unnu umfjöllun uppúr Panama­skjöl­unum svoköll­uðu sem birt­ist á RÚV 3. apríl 2016 hafi verið afhentar ítar­legar upp­lýs­ingar um eign­ar­halds­fé­lagið Wintris. Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, eig­in­kona Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og eig­andi Wintris, hélt því fram í við­tali við Morg­un­blaðið í morgun og að ekki hafi verið tekið til­lit til þeirra upp­lýs­inga sem afhentar hafi verið við vinnslu þátt­ar­ins.

Í yfir­lýs­ingu frá þeim sem að umfjöll­un­inni unnu segir að Sigmundi Davíð, þáver­andi for­sæt­is­ráð­herra, hafi verið sendur ítar­legur spurn­inga­listi. „Við þeim spurn­ingum feng­ust ekki svör, þótt þær væru ítrek­aðar. Lyk­il­spurn­ingum sem lúta að Wintris Inc. var því aldrei svarað. Aðstoð­ar­maður Sig­mundar Davíðs vís­aði í blogg­færslu Sig­mundar og yfir­lýs­ingu KPMG. Hann sendi blaða­mönnum Süddeutsche Zeitung einnig skjal sem svar við spurn­inga­lista þeirra, en því miður fólust ekki í því svör við þeim spurn­ingum sem þar höfðu verið lagðar fram.

Í þætt­inum var hins vegar end­ur­tekið vísað í yfir­lýs­ingar þeirra beggja og blogg­færslur, sem birtar voru í aðdrag­anda þátt­ar­ins.
For­sæt­is­ráð­herra var að auki ítrekað boðið í við­tal um aðkomu sína að félag­inu, sem hann þáði ekki. Rétt eins og áður hefur verið bent á í yfir­lýs­ingu und­ir­rit­aðra vegna ummæla Sig­mundar Davíðs frá því í júní síð­ast­liðnum.“

Undir yfir­lýs­ing­una skrifa Jóhannes Kr. Krist­jáns­son, rit­stjóri Reykja­vík Media, Aðal­steinn Kjart­ans­son, blaða­maður, Þóra Arn­órs­dóttir, rit­stjóri Kast­ljóss, Helgi Seljan, frétta­maður Kast­ljóss, Sven Bergman, frétta­maður Uppdrag Granskning hjá SVT og Joachim Dyf­ver­mark, fram­leið­andi, Uppdrag Granskning hjá SVT.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Erlent

Guardian segir engan smán­aðan þjóð­ar­leið­toga jafn óhepp­inn og Sigmund

„Af öllum þjóð­ar­leið­tog­unum sem urðu sér til skammar vegna fal­ins auðs á aflandseyjum, þá var eng­inn jafn óhepp­inn og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Örvænt­inga­full til­raun hins óheppna for­sæt­is­ráð­herra Íslands við að útskýra und­ir­skrift sína á skjölum Wintris Inc., félags á Bresku Jóm­frú­areyj­unum sem hélt á hlut í einum af föllnu bönkum þjóð­ar­innar, var fest á filmu.“ Svona hefst umfjöllun á vef...
Fréttir

Vill ekki svara því hvort Ólafur Ragnar hafi ætlað að mynda utan­þings­stjórn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill ekki svara spurn­ingum um hverjar hann telur áætl­anir Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þáver­andi for­seta Íslands, hafa verið þann 5. apríl síð­ast­lið­inn þegar Sig­mundur Davíð fór skyndi­lega til fundar við hann. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra síðar þann dag. Í við­tali á Útvarpi Sögu í gær var hann spurður hvort hann...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár