Wintris-málið snérist bara um að fella forsætisráðherra

Umfjöllun fjöl­miðla um aflands­fé­laga­eign Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar og eig­in­konu hans snérist bara um að fella hann. Sig­mundur hafði þvælst fyrir kröfu­höfum og lokið stórum málum. Þetta segir Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, eig­in­kona hans, í við­tali.

Frétt á forsíðu Morgunblaðsins í dag, úr viðtali við Önnu Sigurlaugu Pálsdóttur, eiginkonu Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar.
Frétt á for­síðu Morg­un­blaðs­ins í dag, úr við­tali við Önnu Sig­ur­laugu Páls­dóttur, eig­in­konu Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar.

Umfjöllun um aflands­fé­laga­eign Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra, og eig­in­konu hans snérist bara um að fella for­sæt­is­ráð­herr­ann. Margir vildu ná sér niður á honum fyrir að hafa þvælst fyrir kröfu­höfum bank­anna og leyst úr stórum málum sem aðrir stjórn­mála­menn höfðu gef­ist upp á. Þetta segir Anna Sig­ur­laug Páls­dóttir, eig­in­kona Sig­mundar Davíðs, í við­tali við Morg­un­blaðið í dag. Það fyrsta sem hún veitir eftir að Wintris-málið kom upp í mars.

Hún segir að Sig­mundur Davíð hafi hringt strax í sig þegar hið fræga við­tal sem sænskur sjón­varps­maður tók við hann í ráð­herra­bú­staðnum 11. mars síð­ast­lið­inn var lokið. Hann hafi verið miður sín yfir að hafa verið beittur ósvífnum blekk­ingum. Hún hafi í kjöl­farið ákveðið að skrifa stöðu­upp­færsla á Facebook um aflands­fé­laga­eign sína. For­sæt­is­ráð­herra­hjónin fyrr­ver­andi hafi hins vegar gert þau mis­tök að trúa því að fjöl­miðla­menn­irnir sem stóðu að umfjöll­un­inni væru að reyna að kom­ast að kjarna og sann­leika máls­ins. 

Sigmundur vildi vaða í sjónvarpsmennina

Anna Sig­ur­laug gagn­rýnir fjöl­miðla harð­lega í við­tal­inu, segir þá hafa verið óheið­ar­lega og ekki tekið til­lit til svara sem for­sæt­is­ráð­herra­hjónin fyrr­ver­andi hafi sent þeim í aðdrag­anda umfjöll­unar Kast­ljóss og Reykja­vík Media, sem sýnd var sunnu­dag­inn 3. apríl og vakti heims­at­hygli. „Sig­mundur vildi vaða strax í sjó­varps­menn­ina og óheið­ar­lega fram­göngu þeirra en aðrir töldu ekki rétt að veita þeim slíka athygli. Best væri að leggja bara fram öll gögn og sýna að ávirð­ingar sjón­varps­mann­anna hefðu verið rangar. Það var auð­vitað mikið áfall þegar þátt­ur­inn var svo sýndur að sjá að það var ekki minnst á svörin frá okkur.

Þau virt­ust engu máli skipta og það þótti greini­lega engin ástæða til að draga fram hið rétta í mál­inu. Það var fyrst og fremst áfall því það stað­festi það sem okkur var farið að gruna að þetta sner­ist alls ekki um að fá fram hið sanna í mál­inu. Þetta sner­ist bara um það að fella for­sæt­is­ráð­herr­ann. Það sáu auð­vitað margir sem vildu ná sér niður á mann­inum sem hafði þvælst, svo eftir var tekið, fyrir kröfu­höfum bank­anna og leyst úr stórum málum sem aðrir stjórn­mála­menn höfðu gef­ist upp á að fást við. Miðað við það hversu ljótur leikur þetta var og hvernig þetta teygði sig út fyrir land­stein­ana þá kæmi mér ekki á óvart þó ein­hverjir úr hópi kröfu­haf­anna hafi ýtt undir þessa umfjöllun og séð sér veru­legan hag í því að velta for­sæt­is­ráð­herra lands­ins úr sessi.“

Mikilvægt að Framsókn og Sigmundi vegni vel

Anna Sig­ur­laug segir við Morg­un­blaðið að það hafi verið þung­bær ákvörðun þegar Sig­mundur Davíð vék úr emb­ætti for­sæt­is­ráð­herra. Hún hafi brotnað niður þegar það varð nið­ur­staðan. „Mér þótti mjög ósann­gjarnt að mað­ur­inn sem hafði staðið í lapp­irnar fyrir hönd þjóð­ar­innar í gríð­ar­lega stórum málum og erf­iðum og náð árangri sem vakið hefur athygli um allan heim, var lát­inn gjalda fyrir umfjöllun sem ekki stóðst nokkra skoðun.“

Hún ætlar þó að styðja Sigmund Davíð áfram í sinni stjórn­mála­bar­áttu, en hann hefur lýst því yfir að hann ætli sér að leiða Fram­sókn­ar­flokk­inn áfram í kom­andi kosn­ingum. Það sé mik­il­vægt að honum og Fram­sókn­ar­flokknum vegni vel í kosn­ing­unum og að Sig­mundur Davíð hafi áhyggjur af því að stór og mik­il­væg mál verði ekki til lykta leidd nema að haldið verði rétt á þeim. „Í mínum huga verður hann að halda bar­átt­unni áfram og ég er sann­færð um að margir eru mér sam­mála um það.“

Hættumerki í samfélagsmiðlum og netinu

Anna Sig­ur­laug seg­ist sjá ákveðin hættu­merki í íslensku sam­fé­lagi sem taka þurfi alvar­lega.Það sé ofboðs­leg harka og grimmd hlaupin í sam­fé­lagið á mörgum sviðum, sér­stak­lega í tengslum við sam­fé­lags­miðla og netið. „Bak við tölvu­skjá­ina er hægt að láta margt flakka en þetta teygir sig einnig inn í þingið og á fleiri staði. Þar ræðst sam­starfs­fólk til dæmis mjög harka­lega og per­sónu­lega á hvert annað og þetta á sér birt­ing­ar­myndir víðar. Það er eins og að það sé gefið skot­leyfi á það fólk sem býður sig fram og nán­ast gengið út frá því að þeir sem bjóði fram krafta sína í stjórn­málum hafi ein­hverjar ann­ar­legar hvatir að baki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

wintris

Erlent

Guardian segir engan smán­aðan þjóð­ar­leið­toga jafn óhepp­inn og Sigmund

„Af öllum þjóð­ar­leið­tog­unum sem urðu sér til skammar vegna fal­ins auðs á aflandseyjum, þá var eng­inn jafn óhepp­inn og Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son. Örvænt­inga­full til­raun hins óheppna for­sæt­is­ráð­herra Íslands við að útskýra und­ir­skrift sína á skjölum Wintris Inc., félags á Bresku Jóm­frú­areyj­unum sem hélt á hlut í einum af föllnu bönkum þjóð­ar­innar, var fest á filmu.“ Svona hefst umfjöllun á vef...
Fréttir

Vill ekki svara því hvort Ólafur Ragnar hafi ætlað að mynda utan­þings­stjórn

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, fyrr­ver­andi for­sæt­is­ráð­herra og for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, vill ekki svara spurn­ingum um hverjar hann telur áætl­anir Ólafs Ragnars Gríms­sonar, þáver­andi for­seta Íslands, hafa verið þann 5. apríl síð­ast­lið­inn þegar Sig­mundur Davíð fór skyndi­lega til fundar við hann. Sig­mundur Davíð sagði af sér sem for­sæt­is­ráð­herra síðar þann dag. Í við­tali á Útvarpi Sögu í gær var hann spurður hvort hann...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár