Veltan eykst og ríkissjóður bólgnar út

Vaxandi velta í hag­kerf­inu skilar sér í meiri tekjum rík­is­sjóðs. Flestir hag­vísar vísa nú í rétta átt, en helsta hættan er álitin vera ofþensla og of mikil styrk­ing krón­unnar.

Tekjur rík­is­sjóðs af virð­is­auka­skatti (VSK) juk­ust um 15,8 pró­sent á fyrstu sex mán­uðum árs­ins og námu 90,2 millj­örðum króna. Í fyrra námu VSK-tekjur rík­is­sjóðs á sama tíma­bili (jan­úar-júní) 77,8 millj­örðum króna, og á sama tíma­bili árið 2014 ríf­lega 72 millj­örðum. Aukn­ingin nemur því ríf­lega 20 pró­sentum á tveimur árum.

Stærsti tekjuliðurinn

Það er óhætt að segja að það muni um minna hjá rík­is­sjóði, þegar VSK er ann­ars vegar, enda er hann stærsti ein­staki tekju­liður rík­is­sjóðs í skatt­kerf­inu. Tekju­skattur ein­stak­linga skil­aði ríf­lega 79 millj­örðum króna á fyrstu sex mán­uðum árs­ins, sam­an­borið við 65 millj­arða á sama tíma­bili í fyrra.

Batnandi staða

Handbært fé frá rekstri batn­aði veru­lega á milli ára og var jákvætt um 37,9 millj­örðum króna sam­an­borið við nei­kvætt hand­bært fé upp á 30,3 millj­arða króna 2015, að því er fram kemur í sam­an­tekt um tekju­af­komu rík­is­sjóðs.

Þetta skýrist að stærstum hluta með tekjum af stöðu­leika­fram­lögum, vegna upp­gjöra slita­búa föllnu bank­anna, á árinu 2016 sem námu 68 millj­örðum króna á fyrri helm­ingi árs­ins. Handbært fé lækkar um 79,5 ma.kr. sam­an­borið við lækkun um 37,1 millj­örðum króna á árinu 2015 sem skýrist að stærstum hluta af afborg­unum lána sem námu 124,9 millj­örðum króna á tíma­bil­inu.

Skulda­staða rík­is­sjóðs hefur batnað veru­lega á skömmum tíma en á fimm árum hafa skuldir rík­is­ins lækkað um 500 millj­arða króna, en þær nema nú ríf­lega 1.200 millj­örðum króna. Til sam­an­burðar er árleg land­fram­leiðsla Íslands metin á meira en 2.000 millj­arða króna.

Hvað ef VSK færi að hluta til sveitarfélaga?

Líklegt má telja að mik­ill upp­gangur í ferða­þjón­ustu muni skila rík­inu tölu­verði aukn­ingu í VSK-tekjum, enda er sá skattur næmur fyrir veltu­aukn­ingu í hag­kerf­inu, þar sem hann leggst á vöru- og þjón­ustu­við­skipti. Gert er ráð fyrir að 1,7 millj­ónir erlendra ferða­manna komi til lands­ins á þessu ári en spár gera ráð fyrir að fjöld­inn fari yfir 2,2 millj­ónir á næsta ári. Til sam­an­burðar má nefna þá komu 454 þús­und ferða­manna til lands­ins árið 2010 og hefur vöxt­ur­inn verið hraður og mik­ill í ýmsum ferða­þjón­ustu­tengdum fyr­ir­tækjum.

Sveit­ar­fé­lög hafa sum hver kvartað undan því að fá ekki nægi­lega miklar tekjur af vax­andi umsvifum í ferða­þjón­ustu, og hefur Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík, oftar en einu sinni rætt um nauð­syn þess að tryggja sveit­ar­fé­lögum hlut­deild í vax­andi tekjum af ferða­þjón­ust­unni.

Sé sér­stak­lega horft til VSK í þessu sam­hengi, gætu sveit­ar­fé­lög fengið til sín umtals­vert miklar tekjur, en allt fer það þó eftir því hversu mikil hlut­deildin yrði, ef til þess kæmi, og hvernig útfærslan yrði.

Sé miðað við tölur frá því í fyrra, þá myndi fimm pró­sent hlut­deild sveit­ar­fé­laga í heild­ar­tekjum af VSK skila þeim ríf­lega átta millj­örðum króna.

Góðar ytri aðstæður

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hefur talað fyrir því að allar for­sendur séu núna fyrir kröft­ugu hag­vaxt­ar­skeiði og batn­andi stöðu efna­hags­mála. Atvinnu­leysi mæld­ist 2,3 pró­sent í júní og hag­vöxtur í fyrra var fjögur pró­sent. Þá hefur verð­bólga hald­ist í meira en tvö ár undir 2,5 pró­sent verð­bólgu­mark­miði, en hún mælist nú 1,1 pró­sent. Það eina sem heldur lífi í verð­bólg­unni er mikil og hröð hækkun fast­eigna­verðs, einkum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Meg­in­vextir Seðla­banka Íslands eru þó ennþá í hæstu hæðum, í alþjóð­legum sam­an­burði, og eru nú 5,75 pró­sent. Raun­vextir eru því tæp­lega fimm pró­sent.

Þessi miss­erin er helsta hættan í hag­kerf­inu talin vera ofris krón­unnar, og ofþensla. Krónan hefur styrkst umtals­vert gagn­vart helstu við­skipta­myntum að und­an­förnu, eða um tæp­lega 10 pró­sent gagn­vart evru, 25 pró­sent gagn­vart pund­inu og rúm­lega 9 pró­sent gagn­vart Banda­ríkja­dal.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár