Sjálfstæðismenn sækja í sig veðrið

Kosn­inga­spá sýnir fylgi við Sjálf­stæð­is­flokk­inn aukast á kostnað Pírata.

Bjarni Benediktsson er formaður Sjálfstæðisflokksins.
Bjarni Bene­dikts­son er for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Mynd: Birgir Þór

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn bætir við sig mestu fylgi í nýrri kosn­inga­spá sem gerð var fimmtu­dag­inn 28. júní og er nú með 25,4 pró­sent fylgi. Píratar mæl­ast sem fyrr með mest fylgi og eru með 25,6 pró­sent. Ekki er mark­tækur munur á fylgi þess­ara fram­boða í nýj­ustu kosn­inga­spánni.

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, Sam­fylk­ingin og Viðreisn mæl­ast í þetta sinn öll með 8,7 pró­sent stuðn­ing í kosn­inga­spánni. Það er tölu­vert minna en Vinstri græn sem myndu hljóta 16 pró­sent atkvæða á lands­vísu ef gengið yrði til kosn­inga nú.

[adspot]

Enn hefur ekki verið ákveðið hvenær kjör­dagur verður í fyr­ir­hug­uðum alþing­is­kosn­ingum sem ráða­menn hafa sagt að fari fram í haust. Bæði Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­sæt­is­ráð­herra og vara­for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Bjarni Bene­dikts­son fjár­mála­ráð­herra og for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hafa sagt að kosn­ing­arnar muni fara fram.

Björt fram­tíð mælist enn minnst þeirra fram­boða sem eiga nú þegar full­trúa á Alþingi og er með 3,9 pró­sent í kosn­inga­spánni. Ætla má að fram­boð þurfi um það bil fimm pró­sent fylgi á lands­vísu í alþing­is­kosn­ingum til að ná kjöri. Önnur fram­boð eru sam­an­lagt með stuðn­ing þrjú pró­sent kosn­inga­bærra Íslend­inga.

Nýjasta könn­unin sem vegin er í kosn­inga­spár­lík­an­inu er könnun Gallup sem birt­ist í gær. Hún hlýtur meira en helm­ingsvægi í nýj­ustu kosn­inga­spánni og helg­ast það einkum af tveimur ástæðum; Gallup­könn­unin er gerð yfir langt tíma­bil, frá 30. júní til 29. júlí og var úrtaks­stærðin mun stærri en í örðum könn­unum sem liggja fyrir um fylgi fram­boða til Alþingis.

Um nýj­ustu kosn­inga­spána

Nýjasta kosn­inga­spáin var gerð 28. júlí og er byggð á þremur nýj­ustu könn­unum sem gerðar hafa verið á fylgi fram­boð­anna sem hyggj­ast bjóða fram í kosn­ing­unum í haust. Kann­an­irnar sem liggja til grund­vallar kosn­inga­spánni eru eft­ir­far­and­i:

  • Þjóð­­ar­púls Gallup 30. júní til 29. júlí (vægi 52,0%)
  • Skoð­ana­könnun MMR 15. júlí til 22. júlí (vægi 28,0%)
  • Skoð­ana­könnun MMR 27. júní til 4. júlí (vægi 20,0%)

Kosn­­­­­­inga­­­­­­spálíkan Bald­­­­­­urs Héð­ins­­­­­­sonar miðar að því að setja upp­­­­­­lýs­ing­­­­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­­­­inga­­­­­­spá Bald­­­­­­urs fyrir sveit­­­­­­ar­­­­­­stjórn­­­­­­­­­­­ar­­­­­­kosn­­­­­­ing­­­­­­arnar og reynd­ist sú til­­­­­­raun vel. Á vefnum kosn­­­­­­inga­­­­­­spá.is má lesa nið­­­­­­ur­­­­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­­­­vik kann­ana miðað við kosn­­­­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­­­­­leiki könn­un­­­­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­­­­inga­úr­slit­­­­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­­­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningaspá

Skýringkosningaspá

Sjö flokkar gætu náð inn á þing

Sjö flokkar fá yfir fimm pró­senta fylgi sam­kvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar og myndu því geta náð inn þing­mönnum í kosn­ing­unum þann 29. októ­ber næst­kom­andi. Það stendur þó tæpt hjá Bjartri fram­tíð, sem hefur mælst með 5,1 pró­senta fylgi í tveimur kosn­inga­spám í röð. Einu sinni á lýð­veld­is­tím­anum hefur það gerst að sjö flokkar nái kjöri á Alþingi,...
Skýringkosningaspá

Píratar sökkva en Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn fer á flug

Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn nýtur mest stuðn­ings í Kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar með stuðn­ing 25,3 pró­sent kjós­enda. Píratar hafa tapað nokkru fylgi und­an­farið og mæl­ast nú með aðeins 21,9 pró­sent fylgi í Kosn­inga­spánni sem gerð var 28. sept­em­ber. Til sam­an­burðar má geta þess að fyrir um hálfum mán­uði mæld­ust Píratar með 25,8 pró­sent. Stuðn­ingur við fram­boð Pírata nú er jafn­framt minni en...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár