Þúsund ný sumarhús á þriggja ára fresti

Fjöldi sum­ar­húsa hefur auk­ist um tæp 75 pró­sent á síð­ustu tutt­ugu árum. Lang­flest húsin eru á Suð­ur­landi. Dýrustu bústað­irnir eru á Norður- og Suð­ur­landi.

TIL SÖLU: Mikill fjöldi sumarhúsa er til sölu um þessar mundir. Á bilinu 550 til 580 sumarhús eru skráð á fasteignasöluvefi MBL og Vísis.
TIL SÖLU: Mikill fjöldi sum­ar­húsa er til sölu um þessar mundir. Á bil­inu 550 til 580 sum­ar­hús eru skráð á fast­eigna­sölu­vefi MBL og Vísis.

Um eitt þús­und ný sum­ar­hús eru byggð hér á landi á hverjum þremur árum. Fjöldi sum­ar­húsa auk­ist um 70 pró­sent á síð­ustu 20 árum. Árið 1997 voru skráð rúm­lega 7.500 sum­ar­hús á land­inu en í árs­lok 2014 voru þau orðin rúm­lega 12.700. Samkvæmt tölum Fast­eigna­skrár Þjóð­skrár Íslands eru lang­flest sum­ar­hús á Suð­ur­landi og hefur fjöld­inn þar nær tvö­fald­ast á síð­ustu tveimur ára­tugum.

Árið 1997 voru tæp­lega 4.000 hús á Suð­ur­landi, sem var meira en helm­ingur fjöld­ans á land­inu öllu. Hlut­fallið hefur hald­ist svipað í gegn um árin, en í lok árs 2014 voru sum­ar­hús á Suð­ur­landi orðin um 6.500 tals­ins, af 12.700 húsum á land­inu öllu.

Með­al­kaup­verð sum­ar­húsa hefur hækkað um allt að 75 pró­sent frá hruni, er fram kemur í tölum Þjóð­skrár um verð á sum­ar­húsum. Með­al­fer­metra­verð er nú það sama, og sums staðar meira, en það var fyrir hrun. Verðið er þó mjög mis­jafnt eftir lands­hlutum. 

Sumarhús virð­ast vera dýr­ust á Norð­ur­landi og ódýr­ust á Vest­fjörðum, sam­kvæmt töl­unum. Hafa ber í huga að úrtakið á Vest­fjörðum og í Reykja­vík og á Reykja­nesi, er afar lítið; ein­ungis þrjú og fjögur. Það gæti því skekkt mynd­ina.

Sumarhús á Norð­ur­landi kost­uðu að með­al­tali um 16,3 millj­ónir króna í árs­lok 2015. Sumarhús á Suð­ur­landi voru örlítið ódýr­ari og kost­uðu rúmar 16 millj­ónir að með­al­tali. Húsin á Vest­fjörðum kost­uðu tæpar fimm og hálfa milljón að með­al­tali og á Aust­ur­landi kost­uðu þau rúmar sex og hálfa milljón.

Einn bústaður á hverjar sex fjölskyldur

Fjöldi sum­ar­húsa til sölu þre­fald­að­ist á fyrsta árinu eftir hrun. Árið 2009 voru um fimm til sex pró­sent heild­ar­fjöld­ans á sölu, en á því hægð­ist eftir því sem á leið. Í dag eru tæp­lega 4,5 pró­sent bústaða á land­inu á sölu­skrá. Á fastegna­vef Vísis er að finna um 550 sum­ar­hús á skrá og hjá MBL eru þau um 580. Eins og áður segir eru skráð sum­ar­hús um 12.700 tals­ins. Sé litið til fjölda fjöl­skyldna á hvern bústað að með­al­tali má segja að einn bústaður sé á hverjar sex fjöl­skyldur, en um 80.000 kjarna­fjöl­skyldur eru skráðar á land­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fasteignamarkaður

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár