Nettó ábati sæstrengs um 190 milljarðar – „Ræðið“

Lagning sæstrengs milli Íslands og Bret­lands er háð miklum nývirkj­unum á Íslandi. Óvissa er um póli­tíska fram­vindu máls­ins, meðal ann­ars vegna Brexit-kosn­ing­anna.

„Nú eru gögnin komin á borðið, og ég segi; ræðið“ sagði Ragn­heiður Elín Árna­dóttir, iðn­aðar- og við­skipta­ráð­herra, að loknum ítar­legum kynn­ing­ar­fundi á skýrslum um skoðun á lagn­ingu sæstrengs milli Íslands og Evrópu, einkum Bret­lands. Á fund­inum kynnti Sigurður Atli Jónsson, for­stjóri Kviku, einnig skýrslu um kostn­aðar- og ábata­grein­ingu á lagn­ingu sæstrengs milli Íslands og Bret­lands.

Mikil áhrif á hagvöxt

Samkvæmt henni, þá eru vís­bend­ingar um að lagn­ing 800 til 1.200 km. sæstrengs kunni að reyn­ast bæði Íslands og Bret­landi þjóð­hags­leg og við­skipta­lega arð­söm. „Forsenda þess virð­ist þó vera að bresk stjórn­völd séu reiðu­búin að styðja við verk­efnið líkt og þau styðja í dag þar­lenda nýja end­ur­nýj­an­lega raf­orku­vinnslu. Fyrir Ísland er nettó ábat­inn um 1,4 millj­arðar evra og árleg jákvæð áhrif á lands­fram­leiðslu á bil­inu 1,2 til 1,6 pró­sent sem eru umtals­verð var­an­leg jákvæð áhrif,“ segir almennum nið­ur­stöðukafla skýrslu Kviku, sem unnin var í sam­starfi við ráð­gjafa­fyr­ir­tækið PÖYRY.

Heild­ar­kostn­aður við lagn­ingu sæstrengs er metin á milli 3 til 3,5 millj­arðar evra, eða sem nemur um allt að 476 millj­örðum króna miðað við núver­andi gengi krónu gagn­vart evru (136 ISK = 1 evra). Þá er áætlað að kostn­aður við styrk­ingu flutn­ings­kerfis á Íslands, til þess að gera sæstreng­inn mögu­legan, sé 30 til 75 millj­arðar króna. Til við­bótar komi svo fleiri virkj­anir.

Miklar virkjanir þarf til

Sæstrengur kallar á fjár­fest­ingar í raf­orku­vinnslu upp á 1.459 MW af nýju upp­setti afli, sam­kvæmt því sem nefnt er mið-sviðs­mynd í skýrslu Kviku. Það afl sem nemur meiru en tvö­faldi afli Kára­hnjúka­virkj­unar, sem lang­sam­lega stærsta virkun á Íslandi.

Er ráð­gert að sú raf­orka komi að hluta úr þeim virkj­ana­kostum sem eru í nýt­ing­ar­flokki ramma­á­ætl­unar, meðal ann­ars frá smá­virkj­unum, vind­orku, lágjarða­varma og aflaukn­ingu í núver­andi virkj­unum. Sé horft til reynslu Noregs er áætlað að hæg sé að reisa um 150 MW af nýjum smá­virkj­unum, sem eru undir 10 MW, með til­komu sæstrengs.

Ljóst er að ramma­á­ætl­unin, og hvernig hún mun taka á því hvar má virkja og hvar ekki, mun ráða miklu um hvort sæstreng­ur­inn verður yfir höfuð raun­hæft verk­efni.

Þá er tekið fram í sam­an­tekt um málið, að hefð­bundin við­skipta­líkön og reglu­verk fyrir sæstrengi ná ekki yfir þetta til­tekna verk­efni. Sérsníða þarf við­skipta­líkan, reglu­verk og stuðn­ings­kerfi fyrir verk­efni og fá fyrir því sam­þykki eft­ir­lits­að­ila. Þá kom fram á fund­inum í dag, að í við­ræðum milli starfs­hópa Íslands og Bret­lands hefði tölu­vert verið rætt um almenn­ings­áltið gagn­vart sæstreng, bæði á Íslandi og í Bret­landi.

Óvissa og ekkert ákveðið í bráð

Ragn­heiður Elín sagði að ljóst væri að engar ákvarð­anir yrðu teknar um sæstreng­inn á þessu kjör­tíma­bili, en mark­miðið með vinn­unni sem hefði farið fram, væri að draga fram allar upp­lýs­ingar og meta verk­efni heild­stætt, ekki síst í ljósi þess að það hefði mikil áhrif til langs tíma.

Þá nefndi Ragn­heiður Elín að nið­ur­staða Brexit kosn­ing­anna gæti haft áhrif á sæstrengs­verk­efnið, meðal ann­ars vegna þess að Bretland gæti misst mögu­leik­anna á nið­ur­greiðslu­kerfi Evr­ópu­sam­bands­ins þegar kemur að upp­bygg­ingu orku­mann­virkja. „Þá er reiknað með því að streng­ur­inn sé tengdur við Skotland, og í ljósi stöð­unnar nú er erfitt að segja til um hvernig málin þró­ast,“ sagði Ragn­heiður Elín. Hún nefndi einnig að geng­is­þróun gæti haft mikil áhrif á verk­efnið.

Kjarninn mun fjalla ítar­lega um sæstrengs­skýrsl­urnar, sem gerðar voru opin­berar í dag, á næstu vikum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár