Guðni Th.: Það gæti reynst snúið að mynda ríkisstjórn

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, segir að það gæti reynst snúið að mynda nýja rík­is­stjórn eftir næstu þing­kosn­ingar. For­set­inn ákveði hver skuli fyrst spreyta sig á myndun slíkrar að loknum kosn­ingum og það þurfi ekki endi­lega að vera leið­togi stærsta flokks­ins á þingi eða þess stjórn­mála­afls sem unnið hafi mest á. „Það þarf ein­fald­lega að vera byggt á mati for­set­ans.“ Þetta kemur fram í við­tali við Guðna Th. í Frétta­blað­inu í dag.

Þar segir Guðni Th. að miðað við skoð­ana­kann­anir bendi allt til þess að sitj­andi rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sókn­ar­flokks missi sinn meiri­hluta og verði að biðj­ast lausnar. Þá þurfi að mynda nýja rík­is­stjórn og teikn séu á lofti um það að fylgið muni skipt­ast jafnt og dreifast víða. „Og þá liggur í hlut­ar­ins eðli að það gæti reynst snúið að mynda nýja rík­is­stjórn.“

Píratar eru stærstir - Stjórnarflokkarnir með undir 35 prósent

Samkvæmt nýj­ustu kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar stærð­fræð­ings eru Píratar sem stendur stærsti flokkur lands­ins með 28,3 pró­sent fylgi. Flokk­ur­inn hefur mælst stærstur nokkuð óslitið frá byrjun árs 2015. Nýtt stjórn­mála­afl, Viðreisn, hefur sótt tölu­vert fylgi á und­an­förnum vikum og mælist nú með 8,2 pró­sent. Þá hefur fylgi Vinstri grænna auk­ist umtals­vert í eft­ir­leik Wintris-máls­ins og flokk­ur­inn mælist með 16,5 pró­sent fylgi. Stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir, og ný fram­boð, hafa að jafn­aði verið að mæl­ast með 60-65 pró­senta sam­eig­in­legt fylgi um nokkuð langt skeið.

Stjórn­ar­flokk­arnir tveir mæl­ast hins vegar báðir tölu­vert undir kjör­fylgi sínu. Um 24 pró­sent kjós­enda segj­ast fylgja Sjálf­stæð­is­flokknum og hefur fylgi við flokk­inn minnkað í und­an­förnum könn­unum eftir að hafa tekið kipp upp á við snemm­sum­ars. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, sem fékk 24,4 pró­sent atkvæða í kosn­ing­unum 2013, mælist nú með tíu pró­sent fylgi og hefur verið á þeim slóðum ansi langi. Því er fylgi stjórn­ar­flokk­anna sam­tals ein­ungis 34 pró­sent, en þeir fengu 51,1 pró­sent í kosn­ing­unum 2013. Sú nið­ur­staða tryggði þeim 38 af 63 þing­mönnum.

Gæti skapað sér óvinsældir á fyrstu metrunum

Guðni Th. segir að hann geri sér grein fyrir því að hann gæti skapað sér óvin­sældir strax á fyrstu metrum for­seta­tíðar sinnar - Guðni Th. tekur við emb­ætt­inu í ágúst en þing­kosn­ingar eru fyr­ir­hug­aðar í októ­ber - ef hann veitir ekki stærsta flokknum stjórn­ar­mynd­un­ar­um­boð. „Ég geri mér líka grein fyrir því að ég þarf að læra. Allir for­setar hafa þurft tíma til að fóta sig, læra inn á emb­ættið og það gerir verkið kannski ekki auð­veld­ara að hefja leik­inn á því sem gæti reynst snúið stjórn­ar­mynd­un­ar­þref. En kannski fer það svo að flokk­arnir nái fljótt og örugg­lega að koma sér saman um ein­hvers konar rík­is­stjórn. Þannig að ég geng bjart­sýnn og glaður til þess leiks, geri mér grein fyrir því að það gæti reynt á mig, en á hinn bóg­inn gæti líka farið svo að ég verði að mestu leyti áhorf­andi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár