Guðni Th. sjötti forseti Íslands - Hildur setti met í óvinsældum

Guðni Th. með tveimur af börnum sínum og eiginkonu á kjörstað í gær.
Guðni Th. með tveimur af börnum sínum og eig­in­konu á kjör­stað í gær. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Guðni Th. Jóhann­es­son hefur verið kjör­inn sjötti for­seti Íslands. Hann hlaut 39,1 pró­sent atkvæða í for­seta­kosn­ing­unum sem lauk í gær. Það er eilítið minna en Ólafur Ragnar Grímsson hlaut í kosn­ing­un­unum 1996 þegar hann var fyrst kjör­inn for­seti. Ólafur Ragnar hlaut þá um 41 pró­sent atkvæða. Guðni Th. hlaut þó hlut­falls­lega fleiri atkvæði en Vigdís Finn­boga­dóttir fékk árið 1980 þegar hún var kjörin for­seti með um 34 pró­sent atkvæða.

Stærstu tíð­indi kosn­ing­anna, utan þess hver bar sigur úr býtum, var fylgi Höllu Tóm­as­dóttur, sem reynd­ist mun meira en kann­anir höfðu gefið til kynna. Alls fékk Halla 27,9 pró­sent atkvæða en hún mæld­ist með um tvö pró­sent fylgi í skoð­ana­könn­unum í upp­hafi kosn­inga­bar­átt­unnar. Andri Snær Magnason lenti í þriðja sæti og fékk 14,3 pró­sent atkvæða. Davíð Oddsson, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri, for­sæt­is­ráð­herra, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og núver­andi rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, hlaut 13,7 pró­sent atkvæða. Fylgi við hann dal­aði umtals­vert þegar leið á kosn­inga­bar­átt­una. Þetta er í fyrsta sinn sem Davíð tapar kosn­ingum á sínum stjórn­mála­ferli. Þá vakti frammi­staða Sturlu Jóns­sonar nokkra athygli, en hann hlaut alls 3,5 pró­sent atkvæða.

Fyrir kosn­ing­arnar í gær átti Hannes Bjarna­son hið vafa­sama met að hafa notið minnst fylgis allra sem boðið hafa sig fram í for­seta­kosn­ingum. Það met var marg­s­legið. Alls fjórir fram­bjóð­endur fengu færri atkvæði en Hannes hlaut árið 2012, þegar hann kusu alls 1.556 manns. Elísabet Jök­uls­dóttir hlaut 1.280 atkvæði, Ástþór Magn­ús­son hlaut 615 atkvæði og Guðrún Margrét Páls­dóttir 477 atkvæði. Lestina rak hins vegar Hildur Þórð­ar­dóttir. Hún hlaut ein­ungis 294 atkvæði.

Kjörsókn var umtals­vert betri en í for­seta­kosn­ing­unum 2012, þegar alls fimm fram­bjóð­endur buðu sig fram gegn sitj­andi for­seta. Þá kusu 69,3 pró­sent þeirra sem voru á kjör­skrá. Í kosn­ing­unum sem lauk í gær reynd­ist kjör­sóknin 75,7 pró­sent.

Þrátt fyrir að kosn­ingum sé lokið mun Ólafur Ragnar sitja áfram sem for­seti út júlí­mánuð. Þann 1. ágúst mun Guðni Th. Jóhann­es­son svo verða settur í emb­ættið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár