Guðni með mest fylgi í kosningaspánni fyrir kosningar

Guðni Th. Jóhann­es­son mun standa uppi sem sig­ur­veg­ari for­seta­kosn­ing­anna sam­kvæmt kosn­inga­spánni. Hann mælist með 45,8 pró­sent fylgi. Kjörsókn getur skekkt nið­ur­stöður kosn­inga­spár­innar miðað við úrslit kosn­inga.

Guðni Th. Jóhannesson hefur mælst með mest fylgi allra níu frambjóðenda síðan kosningaspáin var gerð fyrst 13. maí.
Guðni Th. Jóhann­es­son hefur mælst með mest fylgi allra níu fram­bjóð­enda síðan kosn­inga­spáin var gerð fyrst 13. maí. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Guðni Th. Jóhann­es­son mælist með 45,8 pró­sent fylgi í síð­ustu kosn­inga­spánni sem gerð er fyrir for­seta­ko­sn­ign­arnar á morgun. Halla Tóm­as­dóttir mælist nú með 18,2 pró­sent fylgi og hefur síðan kosn­inga­spáin var birt síð­ast, 16. júni, bætt við sig rúm­lega sex pró­sentu­stigum á kostnað Guðna.

Davíð Oddsson og Andri Snær Magnason eru með nán­ast jafn mik­inn stuðn­ing í emb­ætti for­seta. Davíð mælist nú með 15,7 pró­sent og Andri Snær með 15,2 pró­sent. Munurinn á milli þeirra er innan vik­marka.

Í kosn­ing­unum á morgun benda allar vís­bend­ingar sem finna má í kosn­inga­spánni til þess að Guðni Th. Jóhann­es­son verði kjör­inn for­seti. Stærsta spurn­inga­merkið er hins vegar við kosn­inga­þátt­tök­una. Kjör­sóknin mun að öllum lík­indum skekkja kosn­inga­spána í sam­an­burði við kosn­inga­úr­slitin sem kynnt verða á sunnu­dags­morgun.

Erfitt er að áætla hversu margir muni skila sér á kjör­stað. Sé sögu­leg kosn­inga­þátt­taka í for­seta­kosn­ingum skoðuð sést að þegar val­inn hefur verið nýr for­seti þá hefur þátt­takan verið nokkuð góð eða yfir 82 pró­sent. Í þau þrjú skipti sem for­seti hefur verið end­ur­kjör­inn hefur kosn­inga­þátt­takan hins vegar verið minni.

Í for­seta­kosn­ing­unum árið 2012 var kjör­sókn 69,3 pró­sent og árið 2004 var hún 62,9 pró­sent. Í bæði skiptin var Ólafur Ragnar Grímsson end­ur­kjör­inn for­seti Íslands. Þegar hann sótt­ist eftir emb­ætt­inu í fyrsta sinn árið 1996 greiddu 85,9 pró­sent kosn­inga­bærra íslend­inga atkvæði. Áður hafði Vigdís Finn­boga­dóttir sóst eftir end­ur­kjöri árið 1988. Kosn­inga­þátt­takan var þá 72,8 pró­sent.

Í nýlegum rann­sóknum hefur verið sýnt fram á að kosn­inga­þátt­taka ungs fólks hefur minnkað hraðar á und­an­förnum árum en meðal þeirra sem eldri eru. Séu nið­ur­stöður íslensku kosn­inga­rann­sókn­ar­innar á kos­inga­hegðun Íslend­inga í síð­ustu fjórum Alþing­is­kos­ing­unum skoð­aðar, þá sést að yngstu ald­urs­hóp­arnir draga kjör­sókn­ar­hlut­fallið niður.

Í kosn­ing­unum á morgun verður sjötti for­seti Íslands kjör­inn. Sveinn Björns­son rík­is­stjóri var fyrst kjör­inn af Alþingi árið 1944. Ásgeir Ásgeirs­son banka­stjóri var kjör­inn í fyrstu almennu for­seta­kosn­ing­unum árið 1952. Árið 1968 var Kristján Eldjárn þjóð­minja­vörður kjör­inn. Vigdís Finn­boga­dóttir leik­hús­stjóri tók við emb­ætt­inu 1980 og var end­ur­kjörin 1988. Ólafur Ragnar Grímsson alþing­is­maður var kjör­inn árið 1996 og end­ur­kjör­inn 2004 og 2012.

Fjórir turnar skipta með sér 94%

Fylgi við fram­boð Guðna, Höllu, Davíð og Andra Snæ er sam­tals 94,4 pró­sent í kosn­inga­spánni sem gerð var í dag. Aðrir fram­bjóð­endur skipta rest­inni með sér. Sturla Jónsson mælist með 2,5 pró­sent fylgi, Ástþór Magn­ús­son er með 1,1 pró­sent og Elísabet Jök­uls­dóttir er með eitt pró­sent. Guðrún Margrét Páls­dóttir og Hildur Þórð­ar­dóttir eru með 0,3 pró­sent og 0,2 pró­sent fylgi, sam­kvæmt kosn­inga­spánni.

Áhuga­vert er að líta á þróun fylgis fram­bjóð­end­anna. Þar ber helst að nefna ris Höllu Tóm­as­dóttur úr tveimur pró­sentum um miðjan síð­asta mánuð. Á rúmum mán­uði hefur stuðn­ingur við hana auk­ist gríð­ar­lega og er hún nú með 18,2 pró­sent. Guðni Th. Jóhann­es­son var með 66 pró­sent fylgi þegar kosn­inga­spáin var gerð fyrst fyrir for­seta­kosn­ing­arnar þann 13. maí. Hann hefur síðan tapað nokkuð miklu og mælist nú með 45,8 pró­sent.

Kosn­inga­spá Kjarnans og Baldurs Héð­ins­sonar er gerð í fyrsta sinn fyrir for­seta­kosn­ingar í ár. Í þess­ari síð­ustu spá fyrir kosn­ingar þá voru þrjár nýj­ustu kann­an­irnar vegnar:

  • Skoð­ana­könnun Gallup fyrir RÚV 20. til 24. júní (vægi 52,9%)
  • Skoð­ana­könnun Félags­vís­inda­stofn­unar HÍ fyrir Morg­un­blaðið 19. til 22. júní (vægi 28,3%)
  • Skoð­ana­könnun Frétta­blaðs­ins 21. júní (vægi 18,8%)

Hvað er kosn­­­­inga­­­­spá­in?

Kosn­­­­­inga­­­­­spálíkan Bald­­­­­urs Héð­ins­­­­­sonar miðar að því að setja upp­­­­­lýs­ing­­­­­arnar sem skoð­ana­kann­­­­­anir veita í sam­hengi. Fyr­ir­liggj­andi skoð­ana­kann­­­­­anir eru teknar saman og þeim gefið vægi til þess að spá fyrir um úrslit kosn­­­­­inga. Kjarn­inn birti Kosn­­­­­inga­­­­­spá Bald­­­­­urs fyrir sveit­­­­­ar­­­­­stjórn­­­­­­­­­ar­­­­­kosn­­­­­ing­­­­­arnar og reynd­ist sú til­­­­­raun vel. Á vefnum kosn­­­­­inga­­­­­spá.is má lesa nið­­­­­ur­­­­­stöður þeirrar spár og hvernig vægi kann­ana var í takt við frá­­­­­vik kann­ana miðað við kosn­­­­­inga­úr­slit­in.

Áreið­an­­­­­leiki könn­un­­­­­ar­að­ila er reikn­aður út frá sög­u­­­­­legum skoð­ana­könn­unum og kosn­­­­­inga­úr­slit­­­­­um. Einnig hefur það vægi hversu langt er síðan könn­unin var fram­­­­­kvæmd og svo hversu margir svara í könn­un­un­­­­­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár