Sérfræðingar við Háskóla Íslands segja ólíklegt að Guðni verði ekki forseti

Sér­fræð­ingar við HÍ sam­mæl­ast um að það sé ólík­legt að Guðni Th. Jóhann­es­son verði ekki næsti for­seti. Ólafur Ragnar Grímsson, kosn­inga­bar­áttan og fram­tíð emb­ætt­is­ins var rædd á fundi í dag.

Hafsteinn Þ. Hauksson, Ólafur Þ. Harðarson, Þorgerður Einarsdóttir, Guðmundur Hálfdánarson og Valgerður Jóhannsdóttir ræddu um forsetann í dag.
Haf­steinn Þ. Hauksson, Ólafur Þ. Harð­ar­son, Þor­gerður Ein­ars­dóttir, Guð­mundur Hálf­dán­ar­son og Val­gerður Jóhanns­dóttir ræddu um for­set­ann í dag. Mynd: Sunna

Kosn­inga­bar­átta for­seta­fram­bjóð­end­anna var rædd og greind á opnum fundi í Háskóla Íslands í dag. Þá var einnig velt vöngum yfir því við hverju megi búast í þróun emb­ætt­is­ins þegar Ísland fær nýjan for­seta í haust. Sér­fræð­ingar við HÍ rýndu í skoð­ana­kann­anir um gengi fram­bjóð­enda, fjöl­miðlaum­fjöllun og hug­myndir fræði­manna um hlut­verk og völd for­set­ans.

Fund­ur­inn, sem hald­inn var í hádeg­inu, var fámennur og þegar fund­ar­stjór­inn Haf­steinn Þór Hauksson, dós­ent við laga­deild Háskóla Íslands, bauð gesti vel­komna sagði hann í léttum tón að það væri „gott að ein­hver, í miðju EM-æðinu, láti sig fram­tíð lýð­veldis okkar varða.“

Núverandi stjórnarskrá getur valdið óþolandi upplausn og ágreiningi

Guð­mundur Hálf­dán­ar­son, pró­fessor við Sagn­fræði- og heim­speki­deild, sagð­ist ætla að gera til­raun til þess að svara þeirri spurn­ingu hvernig emb­ætti for­set­ans verði í fram­tíð­inni. Margt sé mjög óljóst varð­andi emb­ættið og oft háð per­sónu­legri túlkun þeirra sem verma stól­inn að hverju sinni.

Guð­mundur sagði það gefið í skyn í stjórn­ar­skránni að for­set­inn hafi alls konar völd sem hann í raun og veru hafi ekki, eins og til dæmis að leggja fram frum­vörp. Það sé þó sett í hálf­gert upp­nám í 13. grein­inni, þar sem segir að for­seti láti ráð­herra fram­kvæma vald sitt. Þetta sé arf­leifð frá þeim tíma sem kon­ungar voru álitnir hálf­gerðar guð­legar verur.

Guð­mundur ræddi líka um 26. grein­ina, máls­skots­rétt­inn, sem hann gant­að­ist með að Íslend­ingar kunni nú á dögum flestir utan að, svo mikið hafi verið rætt um hana. Hann benti á að þáver­andi stjórn­mála­fræð­ing­ur­inn Ólafur Ragnar Grímsson hafi sagt að 26. greinin væri í raun dauður laga­bók­stafur. Hann beitti þó grein­inni sjálfur 2004 þegar hann synj­aði fjöl­miðla­lög­unum.

Guð­mundur segir nauð­syn­legt að kveða skýrar á um í hverju vald for­set­ans felist í raun og veru.

„Það er mjög brýnt að skýra for­seta­emb­ættið betur. Stjórn­ar­skráin er oft þver­sagna­kennd og opin fyrir alls konar túlk­unum,“ segir Guð­mundur. „Það getur valdið óþol­andi upp­lausn og ágrein­ingi. Svo er óheppi­legt ef for­seti ferð­ast um lönd og boðar aðra utan­rík­is­stefnu en Alþingi. Það getur valdið rugl­ingi, sem er ekki æski­legt á alþjóða­vet­vangi.“

Hann lauk máli sínu með því að hvetja fólk til þess að kjósa.

„Kosn­inga­bar­áttan hefur svo­lítið fallið í skugg­ann af annarri keppni, sem virð­ist skipta fólk meira máli. En þetta er ekki síður mik­il­vægur kapp­leikur.“

Uppgjör við stórkallalega embættistíð

Þor­gerður Ein­ars­dóttir, pró­fessor í kynja­fræði við Stjórn­mála­fræði­deild, setti for­seta­emb­ættið í kynja­fræði­legt sam­hengi, hver ímynd eða ásjóna emb­ætt­is­ins væri og hvort þetta hefði eitt­hvað ákveðið kyn­gervi. Hún sagði emb­ættið hafa afhelg­ast í ein­hverjum skiln­ingi með til­komu Ólafs Ragnars og benti á að aldrei hafi verið gert grín að Vigdísi Finn­boga­dóttur í Ára­mótaskaupi, nema árið 1994, þar sem henni bregður fyrir að taka á móti útlend­ingum. Og það þótti óvið­eig­andi.

Þor­gerður ræddi um grein Baldurs Her­manns­sonar, árið 1995 í DV, sem bar heitið Nýtt blóð á Bessa­staði, og fjall­aði um „þrá­setu Vigdísar“ eftir 16 ár og nauð­syn fyrir nýtt blóð. Hún sagði Baldur hafa skrifað að réttur maður á Bessa­staði geti hjálpað okkur að skil­greina hvað það þýði að vera Íslend­ingur.

„Honum varð að ósk sinni þegar Ólafur varð for­seti og emb­ættið fékk á sig karllæga ímynd eða kyn­gervi og endar sem stór­kalla­legt valda­emb­ætti,“ sagði Þor­gerður. „Og örygg­is­ventill­inn verður hans tæki. Hann færir sig upp á skaftið og fjar­lægist hinn kven­læga arf Vigdísar og Krist­jáns Eldjárn.“ Hún benti á við­brögð Jens Stol­ten­berg, for­sæt­is­ráð­herra Noregs, eftir Útey. Það hafi verið kven­lægt þó að hann sjálfur væri karl.

Þor­gerður gaf í skyn að Ólafur hefði synjað fjöl­miðla­lög­unum árið 2004 í kjöl­far heima­stjórn­araf­mæl­is­ins, þar sem for­seta­emb­ættið kom ekk­ert að und­ir­bún­ingnum, og hann hafi móðg­ast.

„Hann var erlendis á þeim tíma og sendi frá sér yfir­lýs­ingu í kjöl­farið þar sem honum var stór­lega mis­boðið,“ sagði hún. „Það er freist­andi að velta fyrir sér hvort þetta hafi haft ein­hver áhrif. Hann reynir á þol­mörk valds­ins og í hrun­inu er hann gagn­rýndur fyrir að hafa verið klapp­stýra og ímynd hans stór­lega löskuð.“

Þor­gerður sagði Ólaf hafa ein­staka hæfi­leika til að end­ur­skapa sjálfan sig með Icesave, þar sem hann spil­aði á þjóð­ern­is­hyggj­una. Hún ræddi einnig um Pútín Rúss­lands­for­seta, en tók fram að hún væri ekki að bera þá tvo saman. En benti á að vin­sældir Pútíns byggi ekki síst á því að hann end­ur­reisti þjóð­arstolt Rússa. Hún lauk máli sínu með því að segja að nú siglum við inn í nýja tíma sem verður að ein­hverju leyti upp­gjör við stór­kalla­lega emb­ætt­is­tíð.

Meiri neikvæðni hjá Davíð og Ástþóri

Val­gerður Anna Jóhanns­dóttir, aðjúnkt í blaða- og frétta­mennsku, ræddi um fjöl­miðlaum­fjöllun í kosn­inga­bar­átt­unni og um emb­ættið, sem hún sagði að væri svo sann­ar­lega ekki létt verk nú á tímum.

„Það er óhætt að segja að umfjöllun hafi verið mjög mikil. Bæði í hefð­bundnum fjöl­miðlum og á sam­fé­lags­miðlum,“ sagði Val­gerður. Áhorf á umræðu­þætti í sjón­varpi hefur verið mjög mikið og fram­bjóð­endur hafa þús­undir fylgj­enda á sam­fé­lags­miðlum.

„Það má full­yrða það að ef fólk hefur áhuga á að kynna sér fram­bjóð­end­urna, þá eru þær upp­lýs­ingar mjög aðgengi­legar víða. Því hefur verið haldið fram að þessi bar­átta hafi fyrst og fremst verið háð á sam­fé­lags­miðlum og að þeir hafi gjör­breytt eðli kosn­inga­bar­átt­unnar. Ég veit ekki alveg hvað er átt við með því og held að það eigi að setja fyr­ir­vara við það,“ sagði hún.

Ekki sé nóg fyrir fram­bjóð­endur að stóla ein­ungis á sam­fé­lags­miðla, enda sé kosn­inga­bar­áttan í flestum skiln­ingi frekar gam­al­dags.

„Farið út á meðal fólks, allir ferð­ast um landið og fara á vinnu­staði og leggja hendur á börn, eins og sagt var um páfann,“ sagði hún í léttum tón. Hún und­ir­strik­aði að sam­fé­lags­miðl­arnir væru við­bót og leiddi laus­leg rann­sókn hennar í ljós að Guðni Th. Jóhann­es­son sé með lang­flesta fylgj­endur, efni frá honum er skoðað mest og dreift mest og fær flestar athuga­semdir. Hjá flestum fram­bjóð­endum séu athuga­semdir frá almenn­ingi mjög almenns eðlis, nokkur dæmi um spurn­ingar og svör, en minna af nei­kvæðum athuga­semdum.

„Þetta er oft­ast „Áfram Halla“ eða „Flottur Guðni“,“ tók hún sem dæmi. Það sé aftur meiri nei­kvæðni hjá Davíð Oddssyni og Ástþóri Magn­ús­syni.

Ofmetin áhrif skoðanakannanna

Ólafur Þ. Harð­ar­son, pró­fessor við Stjórn­mála­fræði­deild, spurði hvort úrslitin gætu breyst á laug­ar­dag, með einn fram­bjóð­anda með svo afger­andi for­ystu.

„Svarið er já, en lík­urnar á tapi eru ákaf­lega litlar. Ég kann engin dæmi þess.“ sagði hann. „Kjörsókn getur haft áhrif. Ef hún verður lítil, að sumir fram­bjóð­endur með harð­ari stuðn­ings­manna­hóp, getur það breytt hlut­föllum. En það er mjög ólík­legt að ein­hver fari upp fyrir Guðna.“

Varðandi eðli emb­ætt­is­ins sagði Ólafur að hefðin sé þannig að þing­rofs­réttur sé hjá for­sæt­is­ráð­herra.

„Það kom í ljós að Ólafur Ragnar var ekki þeirrar skoð­unar og að hann hafi virk völd í því. Hann var greini­lega þeirrar skoð­unar að for­seti tæki sjálf­stæða ákvörðun um það, hvort hann féllist á þing­rof eða ekki. Ólafi mis­lík­aði for­sæt­is­ráð­herra þegar hann kom, þegar átti að leggja fram form­legt plagg, að Sig­mundur Davíð hafi talað eins og hann gæti rofið þing,“ sagði Ólafur.

Hann sagði einnig að kosn­inga­bar­áttan hafi ekki verið dauf, heldur hefð­bundin. Hún hafi aug­ljós­lega haft ein­hver áhrif, þar sem Halla Tóm­as­dóttir, sem var með tveggja pró­senta fylgi í byrjun, er nú komin upp í 15 til 20 pró­sent.

„Það er fróð­legt að bera hana saman við hina sem hafa ekk­ert breyst. Þeir hafa slíkar hug­myndir um eigið ágæti að það sé nátt­úru­legt ástand að þeir fái 20 til 30 pró­sent. Og það séu svo nátt­úru­leg öfl sem koma í veg fyrir það, eins og skoð­ana­kann­anir eða fjöl­miðlar. Það kemur ekki til greina að þeir séu bara ekki nógu inter­es­ant.“

Hann und­ir­strikar að fáar rann­sóknir sýni fram á að skoð­ana­kann­anir hafi skoð­ana­mynd­andi áhrif. Þá séu sam­fé­lags­miðl­arnir afar merki­legir í þess­ari bar­áttu fyrir margra hluta sakir, en þó sér­stak­lega vegna eins.

„Það er gömul saga og ný að fram­bjóð­endur og stjórn­mála­menn fari með ósann­indi. Það var ekki auð­velt að leið­rétta gamlar syndir þegar fólk sagði bara eitt­hvað í sjón­varpi eða skrif­aði í blöð, en nú þegar fram­bjóð­andi segir eitt­hvað, þá eru þús­und manns strax farnir að gúgla og hrekja sög­una.“

Hann tók þar dæmi um Davíð sem sagði að Guðni hefði sýnt hetjum okkar út Þorska­a­stríð­inu van­virð­ingu í fyr­ir­lestri. Nokkrum tímum síðar hafi komið upp úr krafs­inu á net­inu að Davíð hafði sjálfur skrifað grein sjálfur það sem hann var að gera grín að varð­skip­unum. „Þetta er aukið aðhald fyrir fram­bjóð­endur.“

Síðasti fyrirlesturinn í röðinni

Um var að ræða síð­asta umræðu­fund fundarrað­ar­innar „Forseti Íslands: Hvers­konar emb­ætti er þetta?“. Fræði­menn hafa greint emb­ættið út frá stjórn­málum, lög­fræði og sagn­fræði. Í lýs­ingu fundarrað­ar­innar á vef HÍ kemur fram að löngum hafi verið deilt um hvernig túlka beri ákvæði stjórn­ar­skrár­innar um emb­ætti for­seta Íslands og skiptar skoð­anir hafa verið um hvernig for­set­inn beitir vald­heim­ildum emb­ætt­is­ins.

„Umræðan um hlut­verk og völd for­seta Íslands hefur verið vax­andi á und­an­förnum árum og ýmist er talað um póli­tískan for­seta eða for­seta sem sam­ein­ing­ar­tákn þjóð­ar­innar. Má búast við að umræðan um hlut­verk og vald­svið emb­ætt­is­ins verði enn fyr­ir­ferð­ar­meiri nú í aðdrag­anda for­seta­kosn­ing­anna og að skiptar skoð­anir verði, bæði meðal fram­bjóð­enda sem og þjóð­ar­innar, um hvernig emb­ætti for­seta Íslands eigi að þró­ast á næstu árum,“ segir á vef HÍ.

Björg Thoraren­sen, pró­fessor við Laga­deild, og Stef­an­ína Óskar­dóttir, dós­ent við Stjórn­mála­fræði­deild HÍ, höfðu rætt á öðrum fundi um stjórn­skip­un­ar­lega stöðu for­seta Íslands við lýð­veld­is­stofnun og hvernig hún hefur þró­ast und­an­farin miss­eri. Guðni Th. Jóhann­es­son, for­seta­fram­bjóð­andi og dós­ent við Sagn­fræði- og heim­speki­deild HÍ, ræddi um for­seta­emb­ættið sem sam­ein­ing­ar­tákn ásamt Huldu Þór­is­dóttur, lektor við Stjórn­mála­fræði­deild og Hafstein Þór Hauksson, dós­ent við Laga­deild. Þá hafa Ragn­heiður Krist­jáns­dótttir, pró­fessor við Sagn­fræði- og heim­speki­deild, og Birgir Her­manns­son, aðjúnkt við Stjórn­mála­fræði­deild HÍ, rætt um vænt­ingar til for­seta­emb­ætt­is­ins, meðal ann­ars út frá lýð­ræð­is­hug­myndum og í alþjóð­legum sam­an­burði.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

forseti2016

Fréttirforseti2016

Hvert atkvæði Davíðs kost­aði rúm­lega 1.100 krónur

Davíð Oddsson, rit­stjóri Morg­un­blaðs­ins, greiddi 1.103 krónur fyrir hvert atkvæði sem hann fékk í for­seta­kosn­ing­unum í sumar. Hann fékk rúm­lega 25 þús­und atkvæði og hafn­aði í fjórða sæti í kosn­ing­unum, með 13,7 pró­sent atkvæða. Andri Snær Magnason greiddi næst mest þeirra sem skip­uðu efstu sætin í kjör­inu. Hann greiddi 576 krónur fyrir hvert greitt atkvæði, en Andri Snær hlaut 14,6...
Fréttirforseti2016

Guðni Th. myndi rétt merja Höllu í ann­ari umferð for­seta­kosn­inga

Guðni Th. Jóhann­es­son, nýkjör­inn for­seti Íslands, myndi fá 52 pró­sent atkvæða ef haldin yrði önnur umferð í for­seta­kosn­ing­unum þar sem valið stæði á milli tveggja efstu fram­bjóð­end­anna. Halla Tóm­as­dóttir, sem fékk næst flest atkvæði, myndi fá 48 pró­sent atkvæða í slíkri kosn­ingu. Þetta kemur fram í könnun sem MMR hefur gert um málið. Eldra fólk studdi frekar Guðna Th. en...
Fréttirforseti2016

Skiptir engu máli að for­seti sé ekki í þjóð­kirkj­unni

Það er ekk­ert atriði að for­seti Íslands sé ekki í þjóð­kirkj­unni, segir verð­andi for­seti Íslands, Guðni Th. Jóhann­es­son. Það sé trú­frelsi á Íslandi sem sé varið í stjórn­ar­skrá. „Forseti á að geta staðið utan trú­fé­laga kjósi hann það. Hann á að geta verið í hvaða trú­fé­lagi sem er. Ég mun rækja mínar skyldur gagn­vart kirkj­unni eins og vera ber þrátt...

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár