Tíu staðreyndir um efnahagshorfur

Hvert stefnir Ísland? Kjarninn rýndi í nýja hag­spá Hagstofu Íslands og tók saman tíu stað­reyndir um efna­hags­horfur hér á landi.

Staða efna­hags­mála hefur gjör­breyst á til­tölu­lega skömmum tíma. Þar vegur upp­gjörið vegna slita­búa föllnu bank­anna þungt, en með því voru sjö þús­und millj­arða skuldir þjóð­ar­búss­ins erlendis þurrk­aðar út, og ríkið fékk til sín miklar eignir, þar á meðal Íslands­banka að fullu. Hagstofa Íslands birti hag­spá í síð­ustu viku, þar sem fram kemur að gert sé ráð fyrir kröft­ugu hag­vaxt­ar­skeiði næstu fimm árin.

1. Á þessu ári gerir Hagstofa Íslands ráð fyrir 4,3 pró­sent hag­vexti, miðað við árið í fyrra. Það er í sögu­legu til­liti fremur mik­ill hag­vöxtur. Á árinu 2017 er gert ráð fyrir 3,5 pró­sent hag­vexti og árin 2018 til 2021, um þrjú pró­sent hag­vexti á ári. Árleg lands­fram­leiðsla Íslands var í fyrra um tvö þús­und millj­arðar króna.

2. Mikill gangur verður í aukn­ingu fjár­fest­ingar, næstu tvö árin, sam­kvæmt spá Hagstofu Íslands. Á þessu ári eykst fjár­fest­ing í hag­kerf­inu um sextán pró­sent. Þar vegur meðal ann­ars þungt mikil fjár­fest­ing í hót­el­bygg­ingum og iðn­aði. Á næsta ári verður aukn­ingin enn meiri, eða um sautján pró­sent. Þá er gert ráð fyrir mik­illi fjár­fest­ingu vegna upp­bygg­ingar stór­iðju, meðal ann­ars á Bakka við Húsavík og í Helguvík. Á árunum 2018 til 2021 mun hún aukast minna, eða um tvö til fjögur pró­sent árlega.

3. En hvernig hefur staðan erlendis áhrif á Ísland? Und­an­farin miss­eri hefur staða mála á alþjóða­mörk­uðum verið Íslandi um margt hag­felld. Frá árinu 2013 hefur hrá­vöru­verð lækkað um þrjá­tíu pró­sent að með­al­tali. Meg­in­á­stæðan er almennur hæga­gangur í heims­bú­skapnum, og minnk­andi eft­ir­spurn. Olíuverð hefur hækkað nokkuð und­an­farna mán­uði, eftir mikla lækkun árið þar á undan. Frá því í jan­úar og til dags­ins í dag hefur hrá­ol­íu­tunnan farið úr 27 Banda­ríkja­dölum í 48 dali nú. Verð­þróun á ýmsum hrá­vörum skiptir máli fyrir útflutn­ing á Íslandi, og einnig fyrir verð­þróun á inn­fluttum vörum á Íslandi.

4. Hag­vöxt­ur­inn á Íslandi hefur breyst mikið á und­an­förnum árum. Ferða­þjón­ustan hefur vaxið gríð­ar­lega hratt. Árið 2010 komu innan við 500 þús­und ferða­menn til Íslands en því er spáð að þeir verði 1,6 millj­ónir í ár. Þetta hefur mikil áhrif á sam­setn­ingu hag­vaxtar, sem er nú er mun útflutn­ings­drifn­ari en áður. Áfram­hald­andi vexti í ferða­þjón­ustu er spáð, og gera spár ráð fyrir því að fjöldi ferða­manna verði 2,2 millj­ónir á ári eftir tvö ár.

5. Ólíkt mörgum öðrum hrá­vörum, þá hefur verð á sjáv­ar­af­urðum farið hækk­andi á alþjóða­mörk­uðum, að með­al­tali. Tölu­verður mark­aðs­brestur er þó víða, meðal ann­ars í Nígeríu, sem er mik­il­vægur mark­aður fyrir þurrk­aðar afurðir. Þar er gjald­eyr­is­skortur sem hefur hamlað við­skiptum. Heilt yfir er þó íslenskur sjáv­ar­út­vegur á góðu róli, og hafa und­an­farin ár verið bestu rekstr­arár í sögu sjáv­ar­út­vegs­ins.

6. Kaup­máttur ráð­stöf­un­ar­tekna, sem ræður mestu um svig­rúm heim­il­anna til einka­neyslu, eykst sér­stak­lega mikið árin 2014–2018, sam­kvæmt spá Hagstofu Íslands. Miklar launa­hækk­anir, lítil verð- bólga, geng­is­styrk­ing og skatta­lækk­anir er allt þættir sem styðja aukna einka­neyslu. Þennan tíma er vöxtur einka­neyslu einnig mestur en gert er ráð fyrir að einka­neyslan hafi auk­ist um 4,8% árið 2015, auk­ist um 6% árið 2016 og 4,8% árið 2017, 3,6% árið 2018 en nærri 3% árlega árin 2019–2021. Verð­bólga gæti auk­ist nokkuð á næstu árum, en hún mælist nú 1,7 pr´rósent

7. Á síð­asta ári jókst atvinnu­vega­fjár­fest­ing um 29,5 pró­sent. Þessi mikla aukn­ing var á breiðum grunni þó fjár­fest­ingar í tengslum við ferða­þjón­ustu hafi verið áber­andi vegna hót­el­bygg­inga, inn­flutn­ings bíla­leigu­bíla og fjár­fest­ingar í flug­vélum.

8. Atvinnu­leysi er í lægstu lægðum, og hefur mælst tvö til þrjú pró­sent á síð­ustu miss­erum. Útlit er fyrir mikla vöntun á vinnu­afli, á næstu árum og mun það ekki síst koma erlendis frá. Krefj­andi verður fyrir mörg fyr­ir­tæki að ná að ráða hæft starfs­fólk, á þeim litla vinnu­mark­aði sem Ísland er. Um 200 þús­und eru á vinnu­mark­aði á Íslandi.

9. Íbúða­fjár­fest­ing reynd­ist tals­vert minni árið 2015 en útlit var fyrir framan af síð­asta ári. Lík­leg­ast er að bygg­ing­ar­iðn­að­ur­inn hafi að ein­hverju leiti beint kröftum sínum að bygg­ingu atvinnu­hús­næðis, t.d. hót­ela og gisti­staða. Í spánni er nú gert ráð fyrir að íbúða­fjár­fest­ing verði nokkru meiri í ár en í fyrra og vöxt­ur­inn verði umtals­verður út spá­tím­ann. Yfir­stand­andi, fyr­ir­liggj­andi og áformuð íbúða­verk­efni duga til að standa undir þeim vexti sem spáð er að minnsta kosti framan af, segir í hag­spá Hag­stof­unnar. Áhrifin ferða­þjón­ust­unnar á fast­eigna­markað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafa verið tölu­verð, þar sem Airbnb og fleiri fyr­ir­tæki, hafa verið áhrifa­mikil og leitt til þess að hátt í tvö þús­und íbúðir hafa farið af almennum mark­aði.

10. Gengi krón­unnar getur styrkst nokkuð gagn­vart helstu við­skipta­myntum á næstu miss­erum. Evran kostar nú um 140 krónur en gert er ráð fyrir því, meðal ann­ars í hag­spá Lands­bank­ans og Íslands­banka, sem birt var í morgun, að gengið geti styrkst nokkuð á næstu árum. Farið í átt að því að evran kosti 120 krónur á næstu tveimur árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

atvinnumál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár