Manhattan-hagkerfið

Man­hattan er suðu­pottur mann­lífs og höf­uð­vígi fjár­mála- og menn­ing­ar­lífs heims­ins. Það er þriðja stærsta hverfi New York, þegar horft er til mann­fjölda en það langa­sam­lega þétt­býlasta.

Man­hattan er vel lýst sem suðu­potti mann­lífs. Fjöl­breyti­leik­inn er áþreif­an­legur og mik­il­feng­legar bygg­ingar, sem ramma inn einn áhrifa­mesta starfs­vett­vang í ver­öld­inni. Á Man­hattan-eyju búa ríf­lega 1,6 millj­ónir manna og svæðið er oft kallað höf­uð­vígi menn­ingar- og fjár­mála­lífs heims­ins, hvorki meira né minna.

Hjarta kapítalismans

Stærstu fjár­mála­stofn­anir heims­ins eru með höf­uð­stöðvar sínar á Man­hattan og Seðla­bank­inn í New York – stærsta und­ir­stofnun Seðla­banka Banda­ríkj­anna – einnig. Oft er talað um fjár­mála­kerfi borg­ar­innar undir nafn­inu Wall Street, sem er til­tölu­lega lítið stræti í fjár­mála­hverfi borg­ar­innar. Þar í grennd er Kaup­höllin í New York, og má segja að hjartað í þessu sögu­fræga ein­kenni mark­aðs­bú­skaps­ins í heim­inum sé sýni­legt í Charging Bull nauts­stytt­unni eftir Arturo Di Modica. Hún stendur í Bowling Green Park í fjár­mála­hverf­inu, og er eitt helsta ein­kenni kap­ít­al­ískrar ímyndar Man­hattan.

Í lok árs 2014 voru störf í fjár­mála­geir­anum á Man­hattan ríf­lega 163 þús­und, sem nam um fimm pró­sent af heild­ar­starfa­fjölda í borg­inni, í einka­geir­anum. Launin voru hins­vegar um 22 pró­sent af heild­ar­launa­greiðslum, með með­al­laun á ári upp á 360 þús­und Banda­ríkja­dali, eða sem nemur um 3,7 millj­ónum króna á mán­uði.

Söfn, garðar og mannfjöldi

Í grófum dráttum dreif­ist byggðin á Man­hattan þannig að um 700 þús­und manns búa vest­an­verðri eyj­unni, þar af 400 þús­und í efri­hlut­anum (Upper West). Aust­an­megin eru um 500 þús­und íbúar, þar af um 370 þús­und í efri­hlut­anum (Upper East). Á neðsta hluta Man­hattan (Lower Man­hattan), eru um 100 þús­und íbúar. Í Harlem, sem til­heyrir Man­hattan hverf­inu, eru íbúar 335 þús­und. Fjölg­unin hefur mest verið á efri hluta eyj­unnar.

Íbúarnir á eyj­unni eru hins vegar aðeins lít­ill hluti af þeim fjölda sem heldur til á eyj­unni. Svæðið er eitt vin­sælasta fsvæði heims­ins fyrir ferða­menn, en sam­tals heim­sækja um 50 millj­ónir manna New York borg á hverju ári, ef inn­lendir og erlendir ferða menn eru taldir. Flestir þeirra heim­sækja Man­hattan.

Á eyj­unni eru 32 opin­ber söfn, og mörg þeirra eru meðal sögu­fræg­asta safna heims­ins, eins og nýlista­safnið MoMA. Þá eru einnig fjöl­margir opin­berir garðar á eyj­unni, þrátt fyrir að þétt sé byggt. Central Park, inn á miðri eyj­unni, er þeirra lang­sam­lega stærstur, en fleiri garðar á eyj­unni njóta einnig mik­illa vin­sælda. High Line Park, Riverside Park, Morn­ings­ide Park, Bryant Park og Union Square Park, svo ein­hverjir séu nefndir. Samtals eru 30 garðar á Man­hattan, og leggja borg­ar­yf­ir­völd mikla áherslu á að halda þeim við og bjóða upp á aðstöðu til afþrey­ingar.

Upp og niður stéttarstigann

Man­hattan er ekki síður þekkt fyrir að vera staður mik­illa öfga, en mið­stöð við­skipta og menn­ingar. Á eyj­unni býr fólk úr öllum stéttum, þó sífellt sé að verða erf­ið­ara fyrir fólk með lág laun að búa á eyj­unni. Hús­næð­is­kostn­aður hefur farið vax­andi, og þá er einnig mikil sam­keppni um hús­næði, enda pláss tak­markað. Samkvæmt tölum New York borgar voru rúm­lega 60 þús­und heim­il­is­lausir í New York borg í fyrra, þar á meðal 23 þús­und börn. Stærstur hluti þess hóps heldur sig utan Man­hattan, en talið er að um 14 þús­und manns dvelji á Man­hattan án þess að eiga heim­ili.

Innan um glæsi­leg háhýsi, hót­el­bygg­ingar og sögu­frægar stofn­anir blómstrar mann­líf á kaffi­húsum, gall­erýum, veit­inga­stöðum, versl­unum og fleiri stöðum þar sem fólk úr öllum áttum kemur saman.

Borgin sem aldrei sefur, er stundum sagt um New York. Það á svo sann­ar­lega við um mið­punkt hennar á Man­hattan. Þrátt fyrir að vera þriðja fjöl­menn­asta hverfi borg­ar­innar, á eftir Queens og Brooklyn (Bronx og Staten Island eru hin sem talin eru til fimm aðal­hverfa borg­ar­innar), þá er til þess horft sem höf­uð­vígis þar sem þræð­irnir liggja til valda­fólks í atvinnu­lífi, stjórn­málum og menn­ing­ar­lífi. Svæðið hefur birst fólki í gegnum afþrey­ing­ar­iðn­að­inn ára­tugum saman, og virð­ist því stundum standa því nærri.

Atvinnu­leysi mælist um þessar mundir 5,2 pró­sent á Man­hattan, litlu meira en lands­með­al­talið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár