Brooklyn-hagkerfið

Brooklyn er stærsta hverfi New York borgar og þar iðar allt af fjöl­breyttu mann­lífi, þar sem sögu­legar rætur setja mark sitt á sam­fé­lagið.

Brooklyn er stærsta hverfi New York, með 2,6 millj­ónir íbúa af um 8,4 millj­óna heildar­í­búa­fjölda borg­ar­innar, eða fjölda sem nemur um hálfri milljón meira en stór-Kaup­manna­hafn­ar­svæðið.

Næst á eftir Brooklyn er Queens með 2,3 millj­ónir, en hin þrjú hverfin eru Man­hattan (1,6 millj­ónir íbúa), The Bronx (1,5 millj­ónir íbúa) og Staten Island (480 þús­und íbúar). Hverfið hefur breyst mikið á und­an­förnum árum vegna vax­andi áhuga ungs fólks á því að koma sér fyrir innan þess. Því hefur fylgt mikil upp­bygg­ing þjónstu og versl­unar, en einnig hafa tækni­fyr­ir­tæki verið í vax­andi mæli að koma sér í hverf­inu og freista þess að byggja upp fyr­ir­tækið í grennd við hverfi þar sem ungt fólk velur að koma sér fyrir.

Um 55 pró­sent íbúa Brooklyn eru hvítir og 38 pró­sent svartir. Ítalskar rætur eru nokkrar í hverf­inu, enn þann dag í dag, og eru Ítalir meira en 160 þús­und tals­ins í hverf­inu, eða um sex pró­sent af heild­ar­fjölda.

Í norður- og aust­ur­hluta Brooklyn, þar sem stærstu svæðin eru Brownsville, Canarsie, East Flatbush, Prospect Lefferts Gardens, East New York, Coney Island og Fort Greene, er eitt stærsta sam­fé­lag svartra í Banda­ríkj­unum, en heildar­í­búa­fjöldi þess­ara hverfa er tæp­lega ein milljón og er 84 pró­sent íbúa svartir.

Táknmyndin

Ein helsta tákn­mynd þess, Brooklyn brúin sem byggð var 1883, gefur fólki kost á góðum sam­göngum við stærsta vinnu­svæðið í New York á Man­hattan. Hröð og mikil upp­bygg­ing hefur átt sér stað nærri staðnum þar sem Brooklyn brúin liggur inn í hverfið og sér ekki fyrir end­ann á henni. Glæsi­hýsi rísa nú meðal ann­ars við hinn fagra og vel hann­aða garð, Brooklyn Bridge Park, sem liggur með­fram fló­anum með útsýni yfir á Man­hattan.

Verslun, þjónusta og nýsköpun

Brooklyn-hag­kerfið byggir öðru fremur á versl­unar og þjón­ustu­störfum, en það sem hefur fært hverf­inu mik­inn styrk und­an­farin ár er mikil upp­bygg­ing á þekk­ing­ar­iðn­aði ýmis konar. Eru þar lista- og hönn­un­ar­störf með­talin. Með­al­stór fyr­ir­tæki, á banda­rískan mæli­kvarða, eins og Kickstarter, Amplify og Vice Media, hafa komið sér fyrir í Brooklyn og vaxið þar hratt á und­an­förnum árum.

Borg­ar­yf­ir­völd í New York hafa lagt mikla áherslu á að byggja upp inn­viði hverf­is­ins þannig að þar blóm­stri fjöl­breytni og sköpun, sem í sögu­legu til­liti eru helstu eig­in­leikar þess. Þá hafa opin­berir skólar í hverf­inu sífellt verið að batna, sé litið til mæl­inga New York borgar og umsagna á vef borg­ar­innar.

Svarta hagkerfið

Þrátt fyrir að hverfið hafi verið að byggj­ast upp í jákvæðum hætti, sé litil til heild­ar­mynd­ar­innar, þá eru ýmsir hlutar hverf­is­ins sem ennþá glíma við tölu­verða félags­lega erf­ið­leika. Glæpa­tíðni er víða hærri í Brooklyn en í öðrum borg­ar­hlutum, og þá hefur atvinnu­leysi hald­ist yfir lands­með­al­tali og einnig yfir með­al­tali hverf­anna í New York. Það mælist nú sex pró­sent en árið 2010, þegar áhrifin af fjár­málakrepp­unni voru djúp­stæð vítt og breitt um Banda­ríkin, fór atvinnu­leysi í 11,1 pró­sent. Á lands­vísu er atvinnu­leysi í Banda­ríkj­unum 4,9 pró­sent.

Í sögu­legu til­liti hefur svarta hag­kerfið í Brooklyn ávallt verið stórt, og var skipu­lögð glæp­a­starf­semi í hverf­inu umfangs­mikil, einkum og sér í lagi framan af 20. öld. Margar kvik­myndir hafa verið gerðar um áhrif glæpa­sam­taka sem störf­uðu í Brooklyn, meðal ann­ars Goodfellas frá 1990, sem Martin Scorsese leik­stýrði. Hún rekur sanna sögu ítalsk-ætt­aðra Banda­ríkja­manna sem stýrðu glæp­a­starf­semi sinni með harðri hendi frá Brooklyn.

Glæpa­tíðni í New York hefur farið lækk­andi á und­an­förnum árum, og sé litið til síð­ustu 25 ára þá hefur borgin farið frá því að vera ein hættu­leg­asta borg Banda­ríkj­anna í að vera ein sú örugg­asta. Árið 1990 voru 2.245 morð framin í borg­inni en 352 í fyrra.

Sterkar rætur íþrótta og lista

Brooklyn, einkum og sér í lagi svæði þar sem svart lág­stétt­ar­fólk er í meiri­hluta íbúa, er þekkt fyrir metn­að­ar­fullt íþrótta­starf. Í gegnum tíð­ina hafa margir heims­frægir íþrótta­menn komið frá Brooklyn og tekið fyrstu skrefin í íþrótt­unum á upp­vaxt­ar­árum. Má þar nefna körfu­bolta­mann­inn Carmelo Anthony, sem leikur með New York Knicks, sprett­hlauparann Justin Gatlin og síðan sjálfan kóng­inn í heimi körfu­bolt­ans, Michael Jordan.

Annað þekkt fólk sem fætt er í Brooklyn er t.d. mafíu­for­ing­inn Al Capone, sem var umsvifa­mik­ill á bann­ár­unum í und­ir­heimum Chicago en hann lést árið 1947. Stjórn­mála­mað­ur­inn Bernie Sanders, sem vill verða for­seta­efni Demókrata í kosn­ing­unum í nóv­em­ber, er einnig fæddur í hverf­inu, líkt og leikkon­urnar Joan Rivers og Ann Hathaway.

Mikil umbreyting

Samkvæmt áætl­unum New York borgar er gert ráð fyrir því að Brooklyn muni vaxa hraðar en önnur hverfi borg­ar­innar, á næstu árum. Fast­eigna­verð á svæð­inu hefur hækkað um meira 30 pró­sent á tveimur árum, sé horft til með­al­tala, en algengt leigu­verð á tveggja her­bergja íbúð í hverf­inu er um þrjú þús­und Banda­ríkja­dalir, eða sem nemur um 380 þús­und krónum á mán­uði. Eins og með önnur hverfi New York borgar eru leigu­verð afar mis­mun­andi eftir gæðum íbúða og þjón­ustu sem oft fylgir leigu í stórum húsum. 

Sjá einnig: Harlem-hag­kefið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár