Harlem-hagkerfið

Harlem hverfið í New York hefur tekið miklum breyt­ingum á und­an­förnum árum, til hins betra. Svipað margir búa þar og á Íslandi.

Harlem hverfið í New York er alræmt hverfi í hugum margra, og ekki af ástæðu­lausu. Í gegnum tíð­ina hefur það orðið að tákn­mynd fátæktar og erf­ið­leika svartra í stór­borgum Banda­ríkj­anna, og hefur þessi mynd oft verið dregin upp í kvik­myndum og öðrum kimum afþrey­ing­ar­iðn­aðar.

En staða mála í hverf­inu hefur verið að batna veru­lega á und­an­förnum árum, og bendir margt til þess að hverfið verði fram­tíð­ar­bú­staður milli­stétt­ar­fólks í New York, sem sífellt fær­ist ofar á Man­hattan eyju. Á henni búa 1,6 millj­ónir manna, en heildar­í­búa­fjöldi í New York var í lok árs í fyrra 8,3 millj­ónir manna, en á síð­ustu þremur árum hefur íbúum fjölgað um 164 þús­und.

Íbúa­fjöldi í Harlem er svip­aður og hér á landi, 335 þús­und manns á móti tæp­lega 333 þús­und á Íslandi. Hverfið er ekki eitt af fimm lyk­il­hverfum borg­ar­innar, sem eru Staten Island, Brooklyn, The Bronx, Queens og Man­hattan. Heldur telst það hluti af Man­hattan byggð­inni.

Mikil breyting

Saga Harlem hverf­is­ins er um margt saga bar­áttu, ekki síst þegar kemur að rétt­indum svartra, enda hefur hverfið ávallt verið heima­völlur svartra Banda­ríkja­manna. Í fyrsta skipti síðan á þriðja ára­tug 20. aldar eru svartir nú í minni­hluta í hverf­inu, eða um 40 pró­sent íbúa. Spænsku mæl­andi fólki, einkum frá Suður-Ameríku, hefur fjölgað mikið í hverf­inu á und­an­förnum tveimur ára­tugum, og þá fær­ist það sífellt í aukanna að hvítir Banda­ríkja­menn velji að búa í hverf­inu.

Með­al­tekjur íbúa hafa hækkað umtals­vert á síð­ast­liðnum árum. Þær eru þó enn umtals­vert lægri en lands­með­al­talið, eða sem nemur 24 pró­sentum lægra. Með­al­tals­tekjur á heim­ili í Harlem nema um 40 þús­und Banda­ríkja­dölum, um 5,2 millj­ónum króna. Með­al­talið í New York er rúm­lega 50 þús­und Banda­ríkja­dalir. Kaup­máttur fólks í Harlem er því minni en gengur og ger­ist að með­al­tali ann­ars staðar, auk þess sem fastur kostn­aður við búsetur í New York er óvíða jafn hár. Borgin er í dag 7. dýrasta borg heims, en hefur oft verið á toppi list­ans, sem The Economist tekur saman árlega.

Atvinnuleysi lækkar

Í gegnum tíð­ina hefur atvinnu­leysi verið einn versti óvinur Harlme-hverf­is­ins. Það hefur stundum verið þrefalt hærra en lands­með­al­tal, en á und­an­förnum tveimur ára­tugum hefur mark­visst tek­ist að búa til traust­ari vinnu­markað, meðal ann­ars með upp­bygg­ingu þjón­ustu innan hverf­is­ins, sem fólk þurfti oft að sækja utan þess á árunum áður. Það á við um verslun og þjón­ustu, en einnig fram­leiðslu á nauð­synja­vörum, svo sem fatn­aði og gjafa­vöru. Ríki menn­ing er fyrir þess háttar vörum í Harlem og sækja ferða­menn og íbúar ann­arra hverf tölu­vert í sér­versl­anir í hverf­inu. Af heild­ar­fjölda vinnu­mark­að­ar­ins í Harlem vinnur um 15 pró­sent við þjón­ustu­störf í hverf­inu sjálfu, en færst hefur í vöxt að fólk sem vinnur sér­fræði­störf á Man­hattan, finni sér heim­ili í hverf­inu.

Þá nýtur hverfið góðs af áhrifum frá Columbia-háskóla, en aðstaða á vegum skól­ans er að miklu leyti byggð upp í Harlem. Ríflega þrjá­tíu þús­und nem­endur voru skráðir í skól­ann í fyrra, en þegar allir eru með­taldir, kenn­arar, stjórn­endur, rann­sak­endur og fjöl­skyldur þeirra sem starfa við skól­ann, eru tæp­lega 50 þús­und manns í sam­fé­lagi skól­ans.

Mán­að­ar­leiga í mið­hluta Harlem er mun lægri en neðar á Man­hattan, og munar þar oft tugum pró­senta á fer­metra­verði. Dæmigerð tveggja her­bergja íbúð er víða um um 2.000 Banda­ríkja­dali, um 260 þús­und krónur, á mán­uði, á meðan verðið neðar á Man­hattan er mun hærra að með­al­tali, eða nærri 4.000 þús­und Banda­ríkja­dölum, eða um 520 þús­und krónum á mán­uði.

Atvinnu­leysi mælist nú 7,7 pró­sent í Harlem, en lands­með­al­talið er tæp­lega fimm pró­sent. Í New York er atvinnu­leysi 6,4 pró­sent, mest í Queens og ákveðnum hluta Brooklyn-hverf­is­ins. Þetta er mikil breyt­ing frá því sem var áður fyrr, en þá var algengt að árs­með­tal atvinnu­leysis í Harlem væri á bil­inu fimmtán til tutt­ugu pró­sent. Með til­heyr­andi félags­legum vanda­málum sem fylgdu. Mikið hefur dregið úr þeim, sam­hliða upp­bygg­ingu sterk­ari inn­viða í hverf­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár