Queens-hagkerfið

Queens var eitt sinn heima­völlur hvítra í New York. Árið 1950 voru 96,5 pró­sent íbúa hvítir. Árið 2013 fór hluta­fallið í fyrsta skipti niður fyrir 50 pró­sent. Hverfið iðar af fjöl­breyttu mann­lífi og einka­mark­aður hefur blómstrað þar und­an­farin ár.

Eins og les­endur hafa séð í umfjöll­unum um Harlem-hag­kerfið og Brooklyn-hag­kefið, þá eru hverfi New York-borgar um margt ólík inn­byrðis og hver með sína sér­stöðu. Suðu­pottur fjöl­breyti­leik­ans er einna aug­ljósastur á Man­hattan, þar sem búa 1,6 millj­ónir manna. Svæðið heim­sækja um 50 millj­ónir manna á ári, bæði inn­lendir og erlendir ferða­menn.

Stórt og mikið hverfi

Queens er ekki jafn ofar­lega í huga ferða­manna og Man­hattan, en líkt og með önnur hverfi borg­ar­innar er þar sjálf­stætt efna­hags­líf, saga og menn­ing sem teygir sig meira en 300 ár aftur í tím­ann, sé horft til þess tíma þegar það var orðið rót­gróið sjálf­stætt hverfi. Queens er næst stærsta hverfi New York borgar á eftir Brooklyn, með 2,3 millj­ónir íbúa. Borgin í heild telur um 8,4 millj­ónir íbúa.

Í hverf­inu hefur menn­ing­ar­starf New York borgar verið í önd­vegi frá því á sjö­unda ára­tug síð­ustu aldar, þegar borgin mark­aði sér stefnu um að Queens yrði það hverfi í borg­inni, sem legði mesta áherslu á menn­ingu af öllum hverfum borg­ar­innar. Það má deila um, hvaða hverfi er mest ein­kenn­andi fyrir fjöl­breytt menn­ing­ar­líf í New York – þar sem þau iða öll af menn­ing­ar­legum ein­kennum – en Queens er sann­ar­lega í far­ar­broddi. Söfn, stór og smá, ein­kenna hverfa­lífið og úti­mark­aðir eru víða, þar sem mat­ar­menn­ing og tíska, með áber­andi lita­dýrð, setja mark sitt á umhverfið.

Stórkostlegt safn

Hið stór­kost­lega Queens Museum, þar sem kraftar New York borgar skella saman í frá­bær­lega útfærðum sýn­ingum um sam­tíð og for­tíð, er eitt helsta djásn borg­ar­innar. Það heim­sækja meira en fjórar millj­ónir manna árlega. Það er til marks um fjöl­breyti­leik­ann í safn­inu, að það speglar mann­rétt­inda­bar­áttu Banda­ríkj­anna og New York borgar, og er síðan reglu­lega með smærri sýn­ingar þar sem stefnur og straumar í hönnun og afþr­ey­ingu fá mikið rými. Í apríl er til að mynda sýn­ing um áhrif rokk­ara í The Ramones á tísku- og tón­list­ar­heim­inn, og upp­hafs­stef pönks­ins.

Tilefnið er 40 ára afmæli fyrstu plötu sveit­ar­innar. Sýningin nefn­ist Hey! Ho! Lets Go og fjallar ekki síst um plötu­umslögin og myndir sem hafa fylgt þeim, en þær þykja áhrifa­miklar í list­fræði­legu til­liti.

Samgönguæð

Það sem helst ein­kennir Queens-hag­kerfið eru meðal ann­ars stórir og miklir vinnu­staðir sem tengj­ast sam­göngum, smá­sölu, menn­ingu og listum. Bæði JFK flug­völl­ur­inn og La Guardia flug­völl­ur­inn eru í Queens, og því má segja að sam­göngu­æðin til New York liggi um Queens. Þar lendir fólk, og tekur svo oftar en ekki stöð­una niður til Man­hattan. Þjón­ustu­störf eru uppi­staðan í hverf­inu, en líkt og með Brooklyn, þá hefur hverfið mikið reynt að fá til sín frum­kvöðla og fjár­festa. Ekki síst þá sem flýja ört hækk­andi hús­næð­is­verð á Man­hattan. Þá eru líka rót­grónar lista­stofn­anir í Queens, meðal ann­ars Astoria Studios kvik­mynda­verið.

Einka­geir­inn ber uppi atvinnu­lífið, en ekk­ert hverfi í New York er með hærra hlut­fall starfa úr einka­geir­anum en Queens. Samtals eru þau um 440 þús­und, sé mið tekið af stöðu mála eins og hún var í lok árs 2014. Til sam­an­burðar eru störf á vinnu­mark­aði á Íslandi um 190 þús­und.

Atvinnu­leysi var lengi vel böl í hverf­inu, en það hefur breyst á und­an­förnum árum. Það mælist nú innan við sex pró­sent, en á lands­vísu er atvinnu­leysið tæp­lega 5 pró­sent.

Ekki bara hvítir lengur

Eitt sinn var Queens frægt fyrir að vera heima­völlur hvítra í New York. Árið 1950 voru 96,5 pró­sent íbúa hverf­is­ins hvítir, og svartir áttu þar erfitt upp­dráttar, svo ekki sé meira sagt. Þeir mættu miklu mót­læti og órétti, ekki síst á vinnu­mark­aði. Óhætt er að segja þetta hafi breyst mikið. Árið 2013 var fyrsta árið þar sem hvítir voru ekki í meiri­hluta í hverf­inu. Þá töldur 49,7 pró­sent til hvítra. Næst stærsti hóp­ur­inn var síðan fólk frá Asíu, 28 pró­sent, en af þeim eru Ind­verjar fjöl­menn­astir.

Kyn­þættir í Queens

2013

1990

1970

1950

Hvítir

49.7%

57.9%

85.3%

96.5%

—Ekki spænsku­mæl­andi

26.7%

48.0%

-

-

Svartir

20.9%

21.7%

13.0%

3.3%

Spænsku­mæl­andi/Suður-Ameríka

28.0%

19.5%

7.7%

-

Fólk frá Asíu

25.2%

12.2%

1.1%

-
Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

borgir

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár